Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 4

Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 4
4 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR ������������������������������� ������������������ � ����������������� ����������������� ������������������ ��� ������ ��������������������������������� ���������������������������������� ���������������������������� ��������������� ����������������������������� ����������������������������������� ��������������������������� ������������������� �������� ����������������������������������������������������������������������������������������� GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 24.10.2005 Gengisvísitala krónunnar 60,25 60,53 106,48 107 71,91 72,31 9,637 9,693 9,199 9,253 7,538 7,582 0,5204 0,5234 86,77 87,29 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 101,3133 Báðar fyrir þrjátíu árum „Við vorum hérna báðar fyrir þrjátíu árum,“ segir Sólborg Sigurðardóttir. Hún segir að miklu meira sé um fólk nú en síðast. Þær segja að ekki hafi verið auðvelt að fá frí á kvennafrídaginn 1975. Það hafi verið nokkur barningur fyrir konur. Ingibjörg Sigurðardóttir telur að meiri skilningur ríki í dag gagnvart frídeginum og þær hafi sennilega átt auðveldara með að komast frá störfum sínum. Voru í fríi „Það voru ekki tímar hjá okkur í háskólanum þannig að það var lítið mál fyrir okkur að mæta á svæðið,“ segir Kristín Björk Friðriksdóttir háskóla- nemi. Kristín og vinkona hennar Sigrún Sif Kristjánsdóttir segjast gefa réttindamál- um kvenna gaum. „Ég kem frá heimili þar sem þessum málum er veitt athygli,“ segir Sigrún. Krafturinn svona mikill alla daga „Sú yfirlýsing felst í þessum fundi að nú verðum við að fá aðgerðir og þær ekki aðeins á tyllidögum heldur þannig að konur þurfi ekki að vera hálfdrættingar í launum á við karla,“ segir Kolbrún Hall- dórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Kolbrún var þáttakandi í leikþætti á sviðinu á Ingólfs- torgi. „Þetta sýnir það svo að ekki verður um villst að krafturinn í jafnréttisbaráttunni og kvenfrelsisbar- áttunni á að vera svona mikill alla daga,“ segir Kolbrún. KVENNAFRÍDAGURINN KVENNAFRÍDAGUR Lögregla telur að ekki hafi verið færri en 45 þús- und manns í miðbæ Reykjavíkur i gærdag í tilefni kvennafrídags- ins. Þrjátíu ár eru liðin frá því að kvennafrídagurinn var haldinn síðast á eftirminnilegan hátt fyrir þá sem þar voru. Mikil stemning var á fundinum á Ingólfstorgi en nokkurn tíma tók fyrir allan fjöldann að komast leið sinnar frá Skólavörðuholtinu og niður í bæ. Við setningu fundarins sagði Edda Björgvinsdóttir fundar- stýra: „Mér er það mikill heiður að vera fundarstjóri hér í dag. Fyrir 30 árum síðan var ég, ung tveggja barna móðir, ákaflega bjartsýn og mér þótti stutt í það að við konurnar myndum ekki aðeins standa jafnfætis körlum til dæmis hvað varðar laun, heldur hélt ég að við myndum hreinlega taka yfir. Það yrði svo gott fyrir heiminn. Nú þrjátíu árum seinna stend ég hér fjögurra barna móðir og fimm barna amma og ég er hrærð og klökk yfir samstöðunni, stemningunni, gleðinni og öllum þessum fjölda. Á sama tíma er ég örlítið sorgmædd yfir því að við skulum þurfa að hafa annan svona dag, þrjátíu árum seinna.“ Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum var Amal Tamimi en hún talaði fyrir hönd Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Amal sagði að konur af erlendu bergi brotnar stæðu frammi fyrir tvíþættum vanda. Annars vegar misrétti vegna kynþáttar og hins vegar misrétti vegna kynferðis. „Launakannanir hafa sýnt að hér ríkir launamisrétti fyrir sömu störf en kannanir hafa líka sýnt að meirihluti kvenna telur að launa- misréttið sé á öðrum vinnustöð- um en ekki þeirra,“ sagði Katrín Anna Guðmundsdóttir, fulltrúi kvennahreyfingarinnar, í baráttu- ræðu sinni. Hún telur að hægt sé að útrýma launamisrétti strax á morgun með því að afnema launa- leynd. „Þetta er svo glæsilegt að mann langar mest að fara að gráta úr gleði,“ segir Edda Jónsdóttir, verkefnisstjóri kvennafrídagsins. Hún segist líka hafa verið við- stödd hátíðahöldin fyrir þrjátíu árum. „Þá var ég eins mánaðar gömul í vagni fyrir utan stjórnar- ráðið,“ segir Edda. saj@frettabladid.is Hægt að útrýma launamisrétti strax Að minnsta kosti 45 þúsund manns söfnuðust saman í miðborg Reykjavíkur í gær í tilefni kvennafrídagsins. Edda Björgvinsdóttir fundarstýra telur sorglegt að aftur hafi þurft að halda slíkan fund. Mikil stemning ríkti. LAGT AF STAÐ FRÁ SKÓLAVÖRÐUHOLTI Fjöldi fólks, meirihlutinn konur, söfnuðust saman á Skólavörðuholtinu í gær og gengu niður á Ingólfstorg þar sem haldinn var fundur í tilefni kvennafrídagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Á bæn fyrir góðu veðri „Þetta er guðdómlegt. Ég var svo glöð þegar ég vaknaði í morgun og veðrið var svona fallegt enda held ég að öll kvennakirkjan hafi legið á bæn fyrir góðu veðri síðasta mánuðinn,“ segir María Heba Þorkels- dóttir, sviðstýra fund- arins á Ingólfstorgi. María segir var ekki á fundinum fyrir þrjátíu árum. „En mamma var hérna,“ segir María. „Það er æðislegt að upplifa þessa samstöðu.“ Hópurinn gekk úr vinnu „Við vorum báðar í vinnunni og gengum þar út til þess að fara í gönguna ásamt öðrum góðum konum,“ segir Berglind María Tómasdóttir flautuleikari. Berglind og Ása Briem vinna báðar að dag- skrárgerð á Rás 1. Þær segja að hópur kvenna hafi gengið frá útvarpshúsinu við Efstaleiti og alla leið í bæinn. „Þetta var stór hópur, og svo blandaðist hann saman við fleiri hópa á leiðinni,“ segir Ása. Þær eru sammála um að gangan hafi verið góð og samstaðan mikil. Þarf að finna fyrirstöðuna „Þetta er gjörsamlega stórkostlegt og ég er hálfpartinn orðlaus,“ segir Edda Björgvins- dóttir fundarstýra á Ingólfstorgi. „Það var aldrei neinn vafi í mínum huga að konur og þeirra stuðningsað- ilar myndu fjölmenna hingað í dag. En ég bjóst samt ekki við þessum mikla fjölda,“ segir Edda. Edda segir að þeir síðustu sem lögðu frá Hallgrímskirju væru nánst fastir þar, svo mikill væri fólksfjöldinn. „Það fylgja því þó blendnar tilfinningar að þurfa að berjast fyrir sömu hlutunum nú 30 árum seinna,“ segir Edda. Hún segir að ekki vanti samstöðuna, nú þurfi hins vegar að finna út hver fyrirstaðan sé. KVENNAFRÍDAGURINN KVENNAFRÍDAGURINN Konur á Akur- eyri héldu baráttuhátíð sína í gær í Sjallanum og var húsið orðið yfirfullt tæpum hálftíma áður en skipulögð dagskrá hófst klukk- an 15. Sárafáir karlmenn mættu á hátíðina en að mati Sólveigar Hrafnsdóttur, sem þátt tók í und- irbúningnum, voru á milli 2.000 og 2.500 konur í Sjallanum og þurfti hópur kvenna að hlýða á dagskrána utandyra þar sem ekki komust fleiri inn. „Við erum ofboðslega ánægðar með samstöðu kvenna á Akureyri og mætingin var langt umfram okkar björtustu vonir. Kvenna- frídagurinn olli bylgju á meðal þjóðarinnar fyrir 30 árum og ekki ólíklegt að slík verði raunin núna þó svo baráttumálin séu kannski ekki þau sömu,“ segir Sólveig. Sumum vinnustöðum á Akur- eyri var lokað upp úr klukkan 14 í gær og á öðrum gekk starfsemi hægt fyrir sig þar sem vinnu- veitendur gáfu konum almennt leyfi til að sækja baráttuhátíðina í Sjallanum. Þar á meðal voru allir stóru vinnustaðirnir á Akureyri: Fjórðungssjúkrahúsið, Háskólinn og Akureyrarbær. - kk Á þriðja þúsund konur komu saman í Sjallanum á Akureyri: Þátttakan langt umfram væntingar SJALLINN YFRIFULLUR Konur á Akureyri voru ánægðar með kvennafrídaginn og vona að góð þátttaka gefi þeim vind í seglin í jafnréttisbaráttunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.