Fréttablaðið - 25.10.2005, Qupperneq 6
6 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR
NEYTENDUR Húsasmiðjan blæs
til sóknar á bygginga- og heimil-
svörumarkaði með því að bjóða
viðskiptavinum sínum ávallt læg-
sta verð. Það byggist á því að þeir
fá vöru keypta hjá Húsasmiðjunni
endurgreidda sjáist hún auglýst á
lægra verði annars staðar innan
fimmtán daga frá kaupum.
„Með þessu viljum við hnykkja
á því að viðskiptavinir okkar njóti
ávallt bestu kjara“, segir Steinn
Logi Björnsson forstjóri Húsa-
smiðjunnar. „Ef varan er ódýrari
annars staðar lækkum við okkur
og greiðum mismuninn.“
Byggingavörumarkaður:
Verðvernd og
endurgreiðslur
HEILBRIGÐISMÁL Yfirdýralæknir
hefur ákveðið að grípa til sérstakra
varúðarráðstafana varðandi inn-
flutning hunda. Veira sem veldur
inflúensu hjá hestum í Bandaríkj-
unum hefur breyst og sýkir nú ein-
nig hunda þar í landi. Því sé talið að
innflutningur hunda frá Bandaríkj-
unum geti falið í sér hættu fyrir
íslenska hrossastofninn.
Fyrirkomulagi einangrunar verð-
ur breytt og sjúkdómavarnir efldar.
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma, segir að blóðsýni
til mótefnarannsókna verði tekin úr
öllum hundum sem koma til landsins
þar sem nokkrar líkur séu á því að
veiran hafi borist út fyrir Bandaríkin.
„Infúensan er þannig sjúkdóm-
ur að það á mjög auðveldlega að
vera hægt að stöðva hana af með
sóttkví,“ segir Sigríður en Ísland er
eina landið í Evrópu þar sem hestar
eru ekki bólusettir gegn hestainflú-
ensu.
„Það er mikið í húfi og við
ætlum að hafa vaðið fyrir neðan
okkur,“ segir Sigríður en ljóst
væri að tjón hrossaræktarinnar
vegna tímabundinnar stöðvunar á
allri starfsemi og útflutningi yrði
umtalsvert. - sgi
HESTAR Hestar eru ekki bólusettir gegn
inflúensu á Íslandi. Farsótt gæti haft veru-
lega slæm áhrif á afkomu hrossaræktar.
Yfirdýralæknir bregst við breytingu hestainflúensuveiru sem borist hefur í hunda:
Sýktir hundar ógna hestum
Hindrar launaneynd launajöfn-
uð kynjanna?
Já 78%
Nei 22%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þarf að setja strangari reglur um
starfsemi starfsmannaleiga?
DÓMSMÁL Þórhalli Ölveri Gunn-
laugssyni, sem gengur nú undir
nafninu Þór Óliver, voru í gær
dæmdar skaða- og þjáningabæt-
ur í kjölfar líkamsárásar sem
hann varð fyrir á Litla-Hrauni
í maí 2002.
Forsaga málsins er að sam-
fangi Þórhalls veittist að
honum inni í fangaklefa með
þeim afleiðingum að tennur í
Þórhalli brotnuðu ásamt því
að hann hruflaðist og marðist.
Kröfur Þórhalls um skaðabæt-
ur frá íslenska ríkinu byggjast
á því að hann hafi ekki fengið
viðunandi læknismeðferð í kjöl-
far árásarinnar.
Lögmaður íslenska ríkisins
mótmælti kröfum Þórhalls á
þeim forsendum að ósannað
væri að hann hefði hlotið áverk-
ana í umræddri árás. Hann
hefði fengið alla þá umönnun
sem hann ætti rétt á.
Dómurinn viðurkennir að
Þórhallur eigi rétt á skaðabót-
um frá árásarmanninum og
jafnframt eigi hann rétt á þján-
ingabótum frá íslenska ríkinu
vegna þess að hann hafi ekki
fengið viðhlítandi tannlækna-
þjónustu í kjölfar árásarinnar.
Þórhallur er refsifangi á
Litla-Hrauni en hann var sak-
felldur fyrir að hafa myrt
Agnar W. Agnarsson sumarið
1999. - saj
Morðingi fær þjáningabætur frá ríkinu:
Fær tennur bættar
KJÖRKASSINN
FELLIBYLUR Fellibylurinn Wilma fór
yfir Flórídaskaga og Kúbu í gær
og varð umtalsvert tjón af völdum
veðursins. Sunnar við Mexíkóflóa
var hitabeltisstormurinn Alfa á
ferðinni og varð í það minnsta átta
manns að fjörtjóni.
„Ég hef hvorki fyrr né síðar
upplifað annan eins veðurofsa,
ég er nú 63 ára og hef oft verið í
óveðri á Íslandi. Þeir voru eins
og þytur í laufi í samanburði við
þetta,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson
fréttamaður. Ingvi var í bænum
Hollywood, rétt sunnan við Fort
Lauderdale, og lenti bókstaflega
undir auga stormsins. „Það var líkt
og risastór hendi væri að reyna að
hrista húsið af grunninum. Mynd-
ir duttu af veggjunum og miklir
brestir heyrðust í þakinu.“
Vindhraði Wilmu var vel yfir
fimmtíu metrar á sekúndu enda olli
bylurinn umtalsverðu tjóni. Einn
maður lést í úthverfi Fort Lauder-
dale þegar tré féll á hann. Rúður
brotnuðu í skýjakljúfum borgar-
innar, raflínur slitnuðu og vatns-
leiðslur rofnuðu. „Það er ótrúlegt
að horfa hérna yfir hverfið. Það er
eins og risastór jarðýta hafi farið
yfir og ýtt um koll trjánum sem
eru hérna,“ sagði Ingvi Hrafn um
ástandið í Hollywood.
Key West eyjaklasinn sem er
suður af Flórída fór nánast á kaf
í hamförunum og í Havana, höf-
uðborg Kúbu, festist fjöldi fólks í
híbýlum sínum sem voru umlukin
vatni.
Sunnar við Mexíkóflóann lét
hitabeltisstormurinn Alfa til sín
taka. Á Haítí fórust í það minnsta
átta manns í veðurofsanum. 23 til
viðbótar er saknað eftir að aur-
skriðum og vatnsflóð hrifu hús og
bifreiðar með sér. Þrír menn eru
ófundnir í Dóminíkanska lýðveld-
inu eftir óveðrið þar.
Wilma heldur nú sem leið ligg-
ur norður eftir strönd Bandaríkj-
anna en stormurinn er svo langt
úti á hafi að áhrif hans eru óveru-
leg. Alfa mjakaði sér jafnframt út
á Atlantshafið en er nú einungis
meðaldjúp lægð. Alfa er 22. hita-
beltisstormurinn á Atlantshafinu
þetta árið en um slíkan fjölda eru
engin dæmi.
sveinng@frettabladid.is
Líkt og risastór hendi
væri að hrista húsið
Fellibylurinn Wilma fór yfir Mexíkóflóa í gær og olli íbúum Kúbu og Flóríd-
askaga þungum búsifjum. Einn maður lét lífið í veðurofsanum. Þá eru átta ma-
nns taldir af á Haítí eftir að hitabeltisstormurinn Alfa lagði þangað leið sína.
ALLT Á FLOTI Íbúar Havana urðu margir hverjir að ösla vatnselginn upp í axlir. Björgunarsveitir í kafarabúningum sóttu um 250 stranda-
glópa af heimilum sínum. MYND/AP
GALAPAGOS-EYJAR Eldfjallið Sierra
Negra á eynni Isabelu í Galap-
agos-eyjaklasanum í Kyrrahafi
byrjaði að gjósa um helgina með
miklum látum.
Gosefni úr hinu fimmtán
hundruð metra háa fjalli breidd-
ust um stórt svæði en íbúar í
nágrenninu eru þó ekki taldir í
hættu. Öllum ferðamannastöðum
í grennd við fjallið hefur þó verið
lokað í varúðarskyni.
Ekki er enn ljóst hve mikil
áhrifin verða á gróður og dýr á
eynni en hún er fræg fyrir fallega
náttúru og fjölbreytt dýralíf sem
varð Charles Darwin innblástur
að þróunarkenningu sinni.
Eldgos í Suðurhöfum:
Íbúar Isabelu
ekki í hættu
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Bandarík-
in og Frakkar ætla að beita sér fyrir
því að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna krefji Sýrlendinga um fulla
samvinnu í rannsókninni á morðinu
á Rafik Hariri, fyrrverandi for-
sætisráðherra Líbanons, ella sæta
refsiaðgerðum.
„Tími sannra játninga er runn-
inn upp fyrir Sýrlendinga,“ sagði
John Bolton, sendiherra Bandaríkj-
anna hjá SÞ, í gær. Í svipaðan str-
eng tók Jean-Marc de La Sabliere,
franskur starfsbróðir hans.
Detlev Mehlis, formaður rann-
sóknarnefndar SÞ um morðið, flyt-
ur öryggisráðinu skýrslu í dag.
Frakkar og Bandaríkjamenn:
Sýrlendingar
sýni samvinnu
NÍGERÍA, AP Nígerísk stjórnvöld
reyna nú að finna skýringar á flug-
slysinu um helgina þegar Boeing
737-þota Bellview Airlines fórst á
leið sinni frá Lagos til höfuðborg-
arinnar Abuja með 117 manns inn-
anborðs.
Yfirvöld útiloka ekki að um
hryðjuverk sé að ræða þótt það sé
talið ólíklegt. Vonast er til að fund-
ur svörtu kassanna svonefndu
muni varpa ljósi á málið.
Sjónvarps- og útvarpsstöð í
landinu hefur verið lokað þar
sem yfirvöld töldu fréttaflutning
þeirra af slysinu vera óviðeig-
andi.
Flugslysið í Nígeríu:
Allt á huldu
um orsakirnar