Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 15
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra hafði orð fyrir for-
sætisráðherrum Norðurlanda og
Eystrasaltsríkjanna á blaðamanna-
fundi í Reykjavík í gærkvöldi.
„Viðræður okkar snerust eink-
um um samband Norðurlanda og
Eystrasaltslandanna við Evrópu-
sambandið og tengslin milli ES og
Evrópska efnahagssvæðisins. Við
ræddum einnig sambandið við
Rússland og Úkraínu. Við ræðum
þau mál áfram á síðari fundi hér.
En einnig ræddum við tengsl
Norðurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna.“
Spurðir um formlega aðild
Eystrasaltsríkjanna að Norður-
landaráði sagði Halldór að slíkar
aðildarumsóknir hefðu ekki bor-
ist.
Göran Pers-
son, forsætisráð-
herra Svíþjóðar,
sagði að tengslin
og samvinnan
við Rússland
væri afar þýð-
ingarmikil. Sví-
þjóð, Finnland
og Danmörk eiga
aðild að Evrópu-
sambandinu og
sagði Persson
að umræður um nánari samvinnu
við Rússa færu fram innan þess
einnig. „Hagsmunirnir liggja
á orkusviðinu, framboði á elds-
neyti, áætlunum um að horfa til
fjölbreytilegra orkugjafa og verða
ekki háðir eldsneyti frá einu eða
tveimur löndum innan álfunnar.
Það er margt að ræða við Rússa
bæði af hálfu Norðurlandaráðs
og Evrópusambandsins,“ sagði
Göran Persson.
„Norðmenn vilja áfram grund-
valla tengsl sín við Evrópusam-
bandið á samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið,“ sagði
Jens Stoltenberg, nýbakaður for-
sætisráðherra Noregs. Sósíalíski
vinstriflokkurinn, samstarfs-
flokkur Verkamannaflokksins
í nýrri ríkisstjórn Noregs, er
andvígur inngöngu í Evrópu-
bambandið og í stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar er ekki gert
ráð fyrir aðildarumsókn. „Verka-
mannaflokkurinn áskilur sér þó
frelsi til þess að fylgja stefnu
sinni í Evrópumálum, taka upp
málið ef og þegar sá tími kemur
að Norðmenn eru reiðubúinir á
ný til þess að taka afstöðu til inn-
göngu í Evrópusambandið,“ segir
Stoltenberg. Norðmenn höfnuðu
inngöngu í Evrópusambandið í
þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1972
og aftur árið 1994. Stoltenberg
segir að ef ætlunin sé að sækja
um inngöngu verði að ganga úr
skugga um að það sé afdráttar-
laus vilji þjóðarinnar í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. „Ég er viss um
að ef Ísland sækir um inngöngu í
Evrópusambandið mun það hafa
mikil áhrif á umræðuna í Noregi.
Við fylgjumst með því hvernig
umræðan þróast á Íslandi því
hún hefur áhrif í Noregi. En ólíkt
Íslendingum höfum við í tvígang
farið í gegnum samningaviðræð-
ur, sótt um inngöngu og fellt aðild-
ina í þjóðaratkvæðagreiðslu,“
sagði Jens Stoltenberg í samtali
við Fréttablaðið.
Þing Norðurlandaráðs hefst
formlega í dag með fundi forsæt-
isráðherra Norðurlanda. Tveir
þeirra, Göran Persson og Jens
Stoltenberg, fara af landi brott að
loknum fundinum.
Allt að 800 manns eru komn-
ir til Reykjavíkur vegna þings
Norðurlandaráðs, þar af um 100
þingmenn og ráðherrar. Nokkrir
tugir fulltrúa Eystrasaltsríkj-
anna, blaðamenn og fleiri eru hér
á landi í tengslum við þingið, sem
stendur fram á fimmtudag.
johannh@frettabladid.is
Umræðan hér hefur
áhrif á Norðmenn
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir að umræða á Íslandi um aðild
að Evrópusambandinu geti haft mikil áhrif í Noregi. Hann situr fundi í Reykja-
vík ásamt öðrum forsætisráðherrum við upphaf Norðurlandaráðsþings.
JENS STOLTENBERG FORSÆTISRÁÐHERRA NOREGS „Við
fylgjumst með því hvernig umræðan þróast á Íslandi því hún
hefur áhrif í Noregi.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ÞRIÐJUDAGUR 25. október 2005 15