Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 21
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL Hinn landsfrægi spaugari Karl Ágúst Úlfs- son leysir samgönguvanda höfuðborgarinn- ar á skemmtilegan hátt. „Stundum hjóla ég úr Garðabænum en oftast tek ég hjólið með mér í strætó og hjóla það sem ég þarf að fara innanbæjar í Reykjavík,“ segir Karl Ágúst. „Ég myndi feginn hjóla úr Garðabænum ef ég treysti umferðinni til að hleypa mér heilum á leið- arenda. Þetta er ekki góð hjólaleið eins og hún er núna og það er mjög flókið að kom- ast í bæinn án þess að leggja sig í stórhættu með því að hjóla Hafnarfjarðarveginn.“ Karl Ágúst segist aldrei hafa stundað hjól- reiðar sem hobbí. „En ég hef lengst af átt hjól og notað það töluvert og hjólaði mikið á árum áður. Hjólreiðarnar eru mín aðal líkamsrækt núna, því miður þá hef ég ekki getað fundið mér tíma í að gera mikið meira eins og stendur. Hjólreiðar eru praktísk líkamsrækt því þannig sameinar maður hreyfingu og samgöngur og svo er útiveran sem gerir hjólreiðarnar mikið hollari en að hjóla á þrekhjóli.“ Karl Ágúst segist aldrei hafa verið það harður hjólreiðamaður að hann fari á nagladekk svo þegar fer að kólna verulega þá er hjólinu lagt í bili. „En annars er veðurfarið að breytast svo mikið hérlendis að það gerir aldrei neina veru- lega vetur svo það er aldrei að vita nema ég verði á hjóli í allan vetur.“ Karl Ágúst segir miklu minna mál en hann hélt að fara með hjólið í strætó. „Ég byrjaði á þessu í haust því ég var að kenna vestur í Háskóla og það var löng leið að fara snemma á morgnana svo ég ákvað að nýta mér strætó og það reyndist vera sáralítið mál. Þá er ég bara með hjólið aftast. Svo fjárfesti ég í miklu þarfaþingi sem er hjólastatíf aftan á bíl þannig að ef ég þarf einhverntíma á miðjum degi að skipta um samgöngutæki og nota bílinn þá er ég aldrei í neinum vanda að kippa hjólinu með.“ Á hjóli í strætó Karl Ágúst Úlfsson tekur hjólið með sér hvert á land sem er. Karl Ágúst fer allra sinna ferða innan Reykjavíkur á hjóli. Ég fæddist á því hnerrans fári 1998! KRÍLIN Góðan dag! Í dag er þriðjudagur 25. október, 298. dagur ársins. Ofbeldi getur haft áhrif á tilfinningalegan og lífeðlis- legan þroska unglinga. Verði unglingar vitni að ofbeldi eða verða fyrir því getur það haft áhrif á tilfinningalíf unglingsins í mörg ár á eftir. Unglingar þessir virðast upplifa það sama og þeir sem verða fyrir stöðugri langvarandi streitu. Þetta eru meðal niðurstaðna sem birtust í rannsókn Annals of Behavior- al Medicine. Sjálfsvígum hefur fækkað eftir að hópur á vegum landlækn- isembættisins hóf vinnu gegn sjálfsvígum fyrir þremur árum. Farið var í verkefnið Þjóð gegn þung- lyndi eftir mikinn fjölda sjálfsvíga árið 2000. Það ár var virkilega slæmt en þá svipti 51 sig lífi. Árangur- inn mælist meðal annars í því að fólk sé meðvit- aðra um áhrif þunglyndis. Verkefnið hefur nú staðið í tæp þrjú ár og hefur sjálfsmorðum fækkað töluvert síðan en á síðasta ári féll 31 fyrir eigin hendi. Verkefninu er hvergi nærri lokið. Göngudeild barna- og ungl- ingageðdeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss stendur frammi fyrir miklum biðlistum. Um eitt hundrað börn bíða nú eftir mati og álagið er mikið á starfsfólk, sérstaklega í ljósi þess að húsnæði göngudeild- arinnar er löngu sprungið utan af starfseminni. Vonast er til að ástandið lagist með fyrirhug- aðri stækkun húsnæðisins en verklok eru fyrirhug- uð árið 2008. Komum á deildina hefur fjölgað mikið á undanförn- um árum og má það að einhverju leyti rekja til fram- fara í greiningu og meðferð geðraskana. LIGGUR Í LOFTINU HEILSA SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.49 13.12 17.34 Akureyri 8.41 12.56 17.11 Heimild: Almanak Háskólans DAGVISTUN Stressar börn bls. 2 TANNBURSTUN Réttu handtökin mikilvæg bls. 3 Rannsóknir sýna að sameiginlegur matmáls- tími fjölskyldunnar getur gert gæfumuninn fyrir sjálfstraust barna. Bandarísk rannsókn sýnir að þeim fjölskyldum sem borða saman líður betur með sjálfar sig og gengur betur í líf- inu en þeim fjölskyldum sem leggja enga áhers- lu á samverustundir við matarborðið. Marshall Duke frá Emery-háskóla í Bandaríkjunum stóð fyrir rann- sókninni sem stóð yfir í þrjú ár og náði til 40 fjölskyldna. N i ð u r s t ö ð - ur rannsóknarinnar sýndu einnig að náin samvera fjölskyldu skilaði sér í meira sjálfstrausti barna. Ef fjölskylda var vön að ræða saman um tilfinningar, ágreiningsefni og erfiða atburði í lífi hver annars hafði það jákvæð áhrif á börnin. Nú er sífellt minni áhersla lögð á sameiginlegar máltíðir og segir Marshall Duke að matmálstímar ættu að vera regla innan hverrar fjölskyldu. Sérstaklega þar sem slíkar samverustundir geti gert gæfumuninn fyrir viðkvæm börn eða þau sem þjást af kvíða. Samvera skilar sjálfstrausti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.