Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 32
6 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Rýmið nýtt til hins ýtrasta
VEL SKIPULAGT ANDDYRI LÉTTIR Á HEIMILINU. BÆÐI ER AUÐVELDARA AÐ ÞRÍFA
OG UMHVERFIÐ VERÐUR FALLEGRA. KÖRFUR OG SKÓHILLUR LEYSA MÖRG VANDA-
MÁL OG RÝMIÐ STÆKKAR.
Anddyrið er sá staður þar sem oft-
ast er draslið. Yfirhafnir og skór
geta flætt út um allt, og húfur og
vettlingar eiga það til að týnast. „Ef
maður gefur sér smá tíma til að
ganga frá öllu á sinn stað, þá verð-
ur þetta ekki að vandamáli,“ segir
Guðrún Brynjólfsdóttir sem rekur
fyrirtækið Röð og regla. Hún sér
um að skipuleggja híbýli fólks og
vinnustaði og er uppfull af sniðug-
um hugmyndum og praktískum
lausnum. Á heimili hennar er
andyrið mjög lítið, en Guðrún gaf
sér smá tíma í skipulag. „Við byrj-
uðum á því að taka burt skáp sem
var í andyrinu og maðurinn minn
smíðaði skóhillu á tveimur hæðum.
Auk þess sérsmíðaði hann hillur
undir körfum sem við notum undir
húfur og vettlinga,“ segir Guðrún.
Hún segir að ekki megi gleyma
börnunum og mikilvægt að koma
upp aðstöðu þar sem þau geta
gengið frá eftir sig sjálf. Háir snag-
ar og þungar hurðir eru erfiðar
fyrir smáfólkið.
„Það þarf alls ekki að kosta svo
mikið að taka í gegn rými sem þarf
að skipuleggja, það fást víða fall-
legar og ódýrar körfur sem gott er
að nota undir smáhluti,“ segir Guð-
rún. Hún segir aðalmálið að tengj-
ast hlutunum ekki of sterkum
böndum og vera duglegur við að
losa sig við hluti sem ekki eru í
notkun.
Skóhilla á tveimur hæðum var sérsmíðuð
undir fatahengið.
Sniðugt er að koma snögum fyrir á
miðjum vegg fyrir jakka og úlpur.
Hillurnar undir körfurnar eru sérsmíðaðar.
Efsta hillan er falleg undir skrautmuni og
ofan við hana eru myndir af gömlum
tímaritum sem settar hafa verið í ramma.
Körfur fyrir ofan fatahengið eru ágætar til að geyma vettlinga og húfur sem sjaldan eru
notuð.
Falleg karfa undir húfur og vettlinga, sem fæst í Rúmfatalagernum.
Best er að hafa aðeins lykla sem eru í notkun á lyklasnaga. Karfan er til skrauts.
Gott er að hafa snaga fyrir börnin, svo þau
geti sjálf hengt af sér án þess að þurfa
hjálp.
06-07 lesið 24.10.2005 15:34 Page 2