Fréttablaðið - 25.10.2005, Qupperneq 46
12 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Stílhreint og fallegt heimili
Í Smárahverfinu í Kópa-
vogi hafa þau Kristín Berg-
mann og Páll Jónsson
hreiðrað um sig í fallegri
og bjartri íbúð. Þau eiga
tvíburana Jón Egil og
Tómas Ara sem eru tíu
mánaða gamlir og því er
oft líf og fjör á heimilinu.
Fallegur og snyrtilegur stíll er áberandi
á heimili þeirra Kristínar og Páls, þar
sem eikin er allsráðandi ásamt dökku
leðri og hvítum húsgögnum. „Veggirn-
ir eru allir hvítir, en við stefnum að því
að setja einhvern lit einhvers staðar.
Mér finnst fallegt að hafa bara einn
lit, enda erum við ekki mjög litaglöð,“
segir Kristín. Þau eru tiltölulega ný-
flutt í íbúðina og því margt eftir ógert.
„Það kom reyndar aldrei annað til
greina en að fara í nýtt húsnæði. Við
þurftum að stækka við okkur þar sem
von var á tvíburunum og þessi íbúð
kom upp í hendurnar á okkur,“ segir
Kristín.
Hún segir þau afar ánægð í íbúð-
inni en margt sé ógert, þó ekki sé það
beinlínis að sjá þegar gengið er inn á
heimilið. „Okkur vantar algerlega
listaverk á veggina,“ segir Kristín. En
þau eru með eitt málverk yfir sófanum
sem tengdaforeldrar hennar keyptu á
Kúbu. „Ég hef ekki hugmynd um hver
málaði þessa mynd, en ég er mjög
ánægð með hana,“ segir Kristín. Aðrar
myndir á veggjum eru ljósmyndir sem
Kristín og Páll hafa tekið sjálf og látið
prenta og sett í fallega ramma. „Það
gefur heimilinu persónulegan blæ, það
verður nú að sjást að það búi fólk
hérna,“ segir Kristín og hlær. Hún er
ekki fyrir það að hafa mikið af hlutum
út um allt, vill frekar fáa og fallega
hluti. „Það er nú bara vegna þess að
mér finnst svo leiðinlegt að þurrka af,“
segir Kristín og hlær. Auk þess sem
hún telur það koma sér vel, þegar tví-
burarnir fara af stað. „Það verður fjör,“
segir Kristín.
Gamall baukur frá Út-
vegsbankanum er not-
aður sem skraut í
glugga.
Í stofunni eru dökkir leðursófar og á veggnum hangir málverk eftir óþekkta
kúbverska málarann. Ofan við sjónvarpið eru ljósmyndir sem Páll og Kristín tóku
sjálf. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Glugginn lýsir upp eld-
húsið og gerir vistaver-
una bjarta og þægilega.
Rauða skálin verður
áberandi þar sem lítið
er um liti í umhverfi
hennar.
Falleg og stílhrein
borðstofa. Spegillinn
ofan við skenkinn er
klæddur eins leðri og
sófarnir í stofunni.
12-13 lesið 24.10.2005 15:41 Page 2