Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 49
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { hús og heimili } ■■■■ 15
www.fl ugger.is
10
35
43
Gæðamálning
Gott verð
Polytex 7
Ljósir litir 4 lítrar 1.990 kr.
Íslensk gæðamálning með góða hulu,
endingargóð og auðveld í notkun.
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Sólbakka 8
Flügger ehf
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
Nú er
það svart
HVÍTUM VEGGJUM
SAGT STRÍÐ Á HENDUR.
Í stað þess að sækja alltaf í ljósa liti
á veggina, er skemmtileg tilbreyt-
ing að notast við svartan lit. Hann
getur verið flottur á einn stóran
vegg og jafnvel hægt að mála ein-
hverskonar mynstur. Þá er hann
fyrst málaður möttum lit og sami
liturinn með hærri glans notaður til
að mála mynstur. Smart er að hafa
húsgögn, púða, gardínur eða ljós í
sterkum eða ljósum litum sem
skera sig frá svarta litnum. Svarti
liturinn getur einnig verið mjög
flottur á eldhúsinnréttingar eða
inni á baðherbergi með stórum
speglum.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES
Andlitið á
bakinu
STÓLAR MEÐ MYNDUM
FORNASETTIS.
S t ó l a r n i r
Tattochairs
eru með
mynstri eftir
ítalska lista-
manninn Pi-
ero Forna-
setti sem
skapaði um
11 þúsund listaverk á æviferli sínum.
Sonur hans Barnaba hefur tekið
myndir hans og þá hluti sem voru
vinsælastir og endurskapað í nýjum
hlutum. Þar á meðal eru stólar, bindi,
skyrtur, regnhlífar og margt fleira.
Upplýsingar um Fornasetti er hægt
að nálgast á heimasíðunni www.
fornasetti.com.
Sigurjón Már Guðmansson eigandi
Gler og spegla í Dalshrauni segir að
speglar séu löngu hættir að vera bara
einhverjir kassalagðir hlutir á veggj-
um sem fólk noti til að greiða á sér
hárið. ,,Í dag getum við líka beinlín-
is gert allt sem okkur lystir við spegl-
ana. Hægt er að skera út mynstur,
sandblása þá og ýmsilegt fleira. Þá
má eiginlega segja að við getum gert
allt nema að beygja þá.“ Sigurjón
segir að vinsælast sé að láta sand-
blása eitthvert munstur á speglana,
til dæmis rós eða eitthvað slíkt, þá er
strax kominn einhver karakter í
spegilinn.
,,Í litlum rýmum hefur fólk áttað sig
á því að það getur nær tvöfaldað
rýmið með því að hafa stóran spegil
á veggnum, allavega í augum þeirra
sem þangað koma.“ Það sem hefur
verið að koma hvað sterkast inn seg-
ir er að láta skera út í spegilinn fyrir
flúorljósi. Hægt sé að mynda ljós-
ramma í spegilnn þannig að lýsing-
in gefur fullkomna birtu þegar fólk
vilji spegla sig, enda elski allir að
skoða sjálfan sig. Sigurjón bætir við
að vaxandi eftirspurn sé eftir móðu-
fríum speglum. Aðspurður segir Sig-
urjón að enn hafi ekki litaðir speglar
rutt sér til rúms á íslenskum heimil-
um. Slíkir speglar séu nær eingöngu
að finna á veitingahúsum og
skemmtistöðum þar sem þær tengj-
ast heildarmynd staðanna. Sigurjón
segir að svipað sögu megi segja um
glerið og speglana. Sandblásun er
vinsæ og þá í gler í borð, handrið og
síðan í eldhúsinnréttingar á milli
borðplötu og skápa.
,,Eins og með speglana þá er nánast
allt hægt að gera. Fólk getur bara
kíkt í heimsókn og þá er örugglega
hægt að finna einhverja lausn á
vandamálum þeirra,“ segir Sigurjón
að lokum.
Sigurjón Már hjá Gler og speglum í Hafnarfirði segir fá vandamál óleysanleg FRÉTTABLAÐ-
IÐ/HEIÐA
Það hefur færst sífellt í aukana á undanförnum árum að fólk noti spegla til yndisauka á
heimilum. Margt fólk lætur skreyta speglana á meðan aðrir nota þá til að stækka rými.
Meira en kassalaga hlutir sem notaðir eru þegar hárið er greitt
14-15 NOTA lesið 24.10.2005 15:44 Page 3