Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 51

Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 51
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { hús og heimili } ■■■■ 15 Líflegir nytjahlutir ALESSI GJAFAVÖRUR OG BORÐBÚNAÐUR ERU HÖNNUN Á HEIMSMÆLIKVARÐA. Ítalska fyrirtækið Alessi á sér áralanga sögu en Alessi-fjölskyldan segir að átta ættliðir hennar hafi hannað og selt hinar ýmsu vörur. Fyrirtækið var þó form- lega stofnað á þriðja áratug síðustu aldar en síðan þá hafa vörur fyrirtækisins skipað sér í fremstu röð á sviði hönnunar ýmissa gjafavara eins og til dæmis borðbúnaðar, eldhúsvara, raftækja og fleira. Alessi sker sig úr fjöldanum með einkar frumlegri og skemmtilegri hönnun þar sem leitast er við að gefa nytja- hlutum líf með bæði persónugervingu og litum. Einfaldleiki og notagildi er einnig smáatriði sem Alessi-fyritækið leggur mikið upp úr. Alessi-vörurnar fást meðal annars í Mirale á Grensásvegi. Sóthreinsikubbar fyrir reykrör og skorsteina, kamínur og arna. Þegar viður er brenndur í eldhólfi þá safnast upp tjara og creosote í skorsteininum en það er einn helsti valdur skortsteinsbruna. Hreinsikubbarnir hindra og fjarlægja creosote- og tjörumyndun. í skorsteinum og eldstæðið verður öruggara og eldurinn í arninum nýtur sín miklu betur. Sóthreinsikubbar fyrir reykrör og skorsteina, kamínur og arna. Krókhálsi 10 • sími: 898 1931 nytjahlutir } Sniðugur og líflegur dósaopnari frá Alessi. Gólfin tekin í gegn FALLEG VIÐARGÓLF GERA GÆFUMUNINN. Það getur borgað sig að pússa upp og lakka illa farið viðargólf, í stað þess að skipta því út fyrir nýtt. Gólf sem eru úr gegnheil- um viði er hægt að pússa oftar en einu sinni upp, á meðan önnur viðargólf er aðeins hægt að pússa einu sinni. Þegar gólf- ið er pússað er borið á það lakk eða olía og þá er kjörið tækifæri að breyta útliti gólfsins með því að hafa smá hvítan lit í lakkinu eða olíunni sem lýsir gólfið. Ef gólfið er olíuborið þarf að bera nýja olíu á gólfið á tveggja ára fresti á meðan lakkið dugar í fjöldamörg ár. N O R D IC P H O TO /G ET TY I M AG ES Æpandi gleði UNGLINGAHERBERGIÐ ER KJÖRINN STAÐUR TIL AÐ LEIKA SÉR MEÐ LITI OG MYNSTUR. Bjartir litir ásamt hvítum lit lífga upp á herbergið og gera það glaðlegt og skemmtilegt. Sixtís-tískan hefur verið að láta á sér kræla upp á síðkast- ið, sem er leikandi og lifandi með ótal litaafbrigðum og mynstri. Auðvelt er að taka gömul húsgögn og lakka þau með skipalakki í fallegum lit og nota stensla á veggina til að mála mynstur. Best er að velja fáa liti sem tóna vel saman, sem setur fallegan heildarsvip á umhverfið. Hugmyndir er hægt að fá úr gömlum kvik- myndum, tímaritum og ljós- myndabókum. 16-17 lesið 24.10.2005 15:51 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.