Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 64

Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 64
25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR24 menning@frettabladid.is inniheldur plöntustanólester sem lækkar kólesteról Rannsóknir sýna að dagleg neysla Benecols stuðlar að lækkun kólesteróls um allt að 15%. nýjung Kl. 17.00 Janette Land Schou, danskur listamaður sem vinnur með myndbönd og ljósmyndir, flytur fyrirlestur um vídeólist í Danmörku og um eigin verk í Listaháskólanum, Skipholti 1, stofu 113. > Ekki missa af ... ... kvikmyndinni Árshátíð slökkviliðs- mannanna eftir Milos Forman, sem Kvikmyndasafn Íslands sýnir í Bæjarbíó í Hafnarfirði í kvöld klukkan átta. ... tónleikum Sinfóníunnar í Háskólabíói á fimmtudaginn þar sem stórsöngkon- an Barbara Bonney stígur á svið og syngur lög eftir Grieg. ... sýningum þeirra Þorbjargar Þorvaldsdóttur og Karenar Óskar Sigurðardóttur í Listasafni ASÍ við Freyjugötu í Reykjavík. Þorsteinn frá Hamri verður konungur Skáldaspíru- kvöldsins sem haldið verður í bókaversluninni Iðu við Lækjargötu. Þorsteinn er eitt af virtustu skáldum landsins og les að þessu sinni úr glænýrri ljóðabók sinni sem heitir Dyr að draumi. Allt frá því að hann gaf út sína fyrstu ljóðabók, tvítugur að aldri, hefur hann mótað og fágað ljóðstíl sinn. Í þessari nýju bók leitar hann á fornar slóðir og mörg ljóðanna eru í senn jarðbundin og rómantísk. Upplesturinn verður að venju á jarðhæð bóka- verslunarinnar. Gestir geta haft hressingu með sér frá kaffihúsinu á annarri hæð og jafnframt gefst tækifæri til að spjalla við skáldið um verk hans. Einnig ætla þeir Guðmundur Björgvinsson og Gunnar Randversson að leika nokkur sígild lög á gítar. Skáldaspírukvöldið í kvöld er hið 42. í röðinni. Hinn fjölhæfi Benedikt Lafleur, sem er í senn rit- höfundur, myndlistar- maður, bókaútgefandi og sjósundmaður, hefur undanfarin miss- eri skipulagt regluleg Skáldaspírukvöld þar sem jafnt þekktum sem óþekktum skáld- um gefst tækifæri til að kynna verk sín. Í vetur eru Skáld- aspírukvöldin hald- in í bókaversluninni Iðu við Lækjargötu á hverju einasta þriðju- dagskvöldi. Í stað þess að nokkur skáld lesi úr verkum sínum á hverju Skáldaspírukvöldi hefur í vetur verið farin sú leið að eitt skáld lesi upp hverju sinni. Skáldaspíran Þorsteinn ! Eitt fremsta leikskáld þjóðarinnar hefur sent frá sér sína fyrstu skáldsögu þar sem hann fjallar um drungalegan hversdags- veruleika einstæðrar móð- ur, sem þvælist stefnulítið milli skylduverka sinna og skemmtanalífsins. „Þetta er bara beint upp úr íslensk- um veruleika í dag,“ segir Jón Atli Jónasson rithöfundur um fyrstu skáldsögu sína, Í frostinu, sem nú er nýkomin út. „Bókin fjallar um unga konu sem er tæplega þrítug. Hún vakn- ar á morgnana, fer með son sinn á leikskóla og síðan í vinnuna. Svo fer hún út að skemmta sér með vinum sínum á kvöldin.“ Líf hennar virðist óskaplega stefnulaust en stutt er í háskalega atburði sem skyndilega umhverfa veruleika hennar. Óttinn magnast í hverju skrefi og óvissa um fram- haldið nær tökum á lesendum bók- arinnar, þrátt fyrir hversdagslegt yfirborðið. Jón Atli er eitt fremsta leikskáld þjóðarinnar um þessar mundir. Árið 2004 hlaut hann Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, og verk hans hafa verið sviðsett víða um heim. Hann hefur einnig sent frá sér smásögur og skrifað kvik- myndahandrit, þar á meðal hand- ritið að Strákunum okkar sem frumsýnd var fyrir skemmstu. Jón Atli er sjálfur aðeins fáein- um árum eldri en söguhetjan og segir bókina að mörgu leyti skrif- aða fyrir sína kynslóð. „Fólk er farið að meta hlutina á svolítið öðrum forsendum en áður,“ segir Jón Atli og á þar við að fagur- fræðin sé farin að gegna stærra hlutverki í því hvernig yngra fólk metur kvikmyndir, tónlist, bækur og annað það sem það hefur sér til afþreyingar og endurnæringar. „Fólk sér fegurð í allt öðrum hlutum en það gerði áður,“ segir hann og nefnir sem dæmi bíó- myndir á borð við Seven og Matrix- myndirnar. „Það sem gerist í þessum mynd- um er í sjálfu sér alveg hrikalegt, en í þeim er ákveðið andrúmsloft sem höfðar til fólks. Það er í þeim einhver drungi en í honum sér fólk ákveðna fegurð sem það kann að meta. Fólk metur þessar myndir vegna þess að þær eru flottar, þær eru fallegar.“ Annars segist Jón Atli ekki vera mikið fyrir að tala um verkin sín eða útskýra þau. „Mér finnst að það eigi að vera í höndum annarra.“ Svolítil nýbreytni er í því að aðalpersónan er kona. Jón Atli hefur til þessa einbeitt sér mikið að heimi karlmennskunnar í verk- um sínum. „Kannski er ég að koma ein- hverjum ballans á það núna,“ segir hann en tekur þó fram að hann hafi hreint ekki sett sér neitt markmið um að koma á einhvers konar jafn- vægi kynjanna. „Þetta gerist bara, ég fór að skrifa þessa bók og hún varð svona.“ Þessi fyrsta skáldsaga Jóns Atla kemur strax út í kilju en þar fer útgefandinn, JPV útgáfa, óvenju- lega leið því hingað til hefur það ekki tíðkast hér á landi að bækur komi út í kilju fyrr en búið er að metta jólagjafamarkaðinn með innbundnum harðspjaldaútgáfum. „Hugmyndin var bara sú að hún yrði ekki allt of dýr til þess að fólk af minni kynslóð gæti keypt hana án þess að það þyrfti að vera ein- hver meiri háttar fjárfesting. En það var ekkert sjálfgefið að þetta yrði svona. Ég þurfti að berjast svolítið fyrir því að hún kæmi bara út í kilju.“ Fegurðarskynið breytist JÓN ATLI JÓNASSON RITHÖFUNDUR Í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu var um síðustu helgi opnuð sýningin Aðföng 2002-2005. Á sýningunni má sjá nokkur þeirra verka sem safnið hefur keypt eða fengið að gjöf á síðustu árum. Markmiðið með sýningunni að minna á þennan grunnþátt starfseminnar, söfnunina sjá- lfa. Alls eru það 390 verk sem safnið hefur eignast á þessum árum eftir 83 listamenn. Á þessu tímabili hefur safnið fengið nokkrar mjög stórar gjaf- ir eins og á verkum Guðmundu Andrésdóttur, Brian Griffin og verkum Nínu Sæmundsen. Einnig hafa verið sett upp nokk- ur útilistaverk á þessum tíma, en sérfjárveiting til kaupa og kostn- að við uppsetningar þeirra hefur verið um 2,5 milljónir á ári. Eðli málsins samkvæmt er aðeins unnt að sýna brot af þess- um verkum á einni sýningu. Þar á meðal má nefna verk eftir Sig- urð Guðmundsson, Eggert Pét- ursson og Hrafnkel Sigurðsson. Listasafn Reykjavíkur hefur hins vegar brugðið á það ráð að gera öll nýju verkin aðgengileg á sérstökum gagnagrunni sem er opinn gestum við sýningarsal- ina. Þar er að finna upplýsingar um sérhvert verk, listamenn- ina, hvort um gjöf eða kaup er að ræða og ýmislegt fleira. Listasafn Reykjavíkur setur reglulega upp sýningar sem byggjast á safneigninni. Á Kjar- valsstöðum hefur mátt sjá verk Kjarvals á sýningum sem ýmist eru unnar úr safneigninni ein- göngu eða einnig með lánsverk- um frá öðrum söfnum og ein- staklingum. Í Hafnarhúsinu eru tveir salir ætlaðir til sýninga á verkum Errós. Þar hafa verið gerðar árlega tvær sýningar úr Errósafninu þar sem verkin hafa verið valin út frá tímabil- um eða unnar þemasýningar þar sem áherslan hefur verið á inntak og efnistök. Það sama á við um Ásmundarsafn. Þar hafa verið gerðar sýningar árlega eða á tveggja ára fresti þar sem sjónum hefur verið beint að ýmsum þáttum í list Ásmundar Sveinssonar. Sýningin Aðföng 2002-2005 stendur til áramóta. Á sýning- artímabilinu verður boðið upp á leiðsagnir á sunnudögum klukk- an 15. HRAFNKELL SIGURÐSSON Hrafnkell er meðal þeirra myndlistarmanna sem eiga verk á sýningu Listasafns Reykjavíkur á nýjum aðföngum safnsins í Hafnarhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN Brot af því nýjasta Kvikmyndasafn Íslands sýnir næstu þrjár vikurnar þrjár af uppáhaldskvikmyndum Friðriks Þórs Friðrikssonar kvikmynda- leikstjóra. Fyrsta myndin í röðinni er Árs- hátíð slökkviliðsmannanna eftir Milos Forman sem verður sýnd í kvöld klukkan átta og aftur á laugardaginn klukkan 16. Þetta er grínmynd frá árinu 1967 og segir frá því þegar slökkviliðsmenn í tékkneskum smábæ halda sam- kvæmi til heiðurs fyrrverandi slökkviliðsstjóra. Allir bæjarbúar eru boðnir í veisluna sem fer úr böndunum. Þessi mynd vakti athygli heimsins á Forman og var jafn- framt sú síðasta sem hann gerði í Tékkóslóvakíu áður en hann flúði til Ameríku eftir innrás Varsjár- bandalagsins í landið 1968 til að stöðva vorið í Prag. Myndin var bönnuð í Tékkóslóvakíu, þótti vera þjóðfélagsádeila en því hefur höf- undurinn ávallt neitað. Myndin er sýnd með sænskum texta. Hinar uppáhaldsmyndir Frið- riks eru íranska myndin Gabbeh frá árinu 1996 og franska myndin Themroc frá 1973. Sýningar Kvikmyndasafnsins fara fram í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Ný mynd er tekin til sýninga í hverri viku. Sjá www. kvikmyndasafn@kvikmyndasafn.is. Uppáhaldsmyndir Friðriks FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON KVIKMYNDA- LEIKSTJÓRI OG FRAMLEIÐANDI Ein af uppáhaldsmyndum hans er Árshátíð slökkviliðsmannanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.