Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2005, Qupperneq 67

Fréttablaðið - 25.10.2005, Qupperneq 67
 25. october 2005 TUESDAY27 [ BÓKMENNTIR ] UMFJÖLLUN Árið 1966 kom skáldsaga Guð- bergs Bergssonar, Tómas Jónsson metsölubók, út. Þetta er marg- slungið niðurrifsverk og það er ekki gott að átta sig á honum Tóm- asi hans Guðbergs. Hann er sund- urtætt og útblásið sjálf, einhvers konar gróteskt skrímsli, sem ekki er nokkur leið að festi hendi á. Bók Guðbergs er tímamótaverk og hristi hressilega upp í samtíma sínum. Árið 2005 sprettur svo fram nýr Tómas Jónsson og sá ekki síður brýnt erindi við samtíma sinn en forverinn. Það er rithöf- undurinn Kristjón Kormákur Guðjónsson sem dregur Tómas nýrrar aldar fyrir almennings- sjónir og þó þessi bók hans muni sjálfsagt ekki marka jafn djúp spor og Tómas Jónsson anno 1966 er hér komin hressileg þjóðfélags- og samtímaádeila sem vert er að gefa gaum. Raunveruleg skáldsagnapersóna Bókin um þennan nýja Tómas heitir Frægasti maður í heimi en það er einmitt þannig sem Tómas sér sig. Hann er því vitaskuld snargeðveikur en þó sjálf hans sé sundurtætt er hann þó heilsteypt- ari persóna en gamli Tómas. Það leikur lítill vafi á því að Tómas Jónsson er geðsjúklingur sem segir sögu sína en það sem gerir bókina jafn áhugaverða og raun ber vitni er að innan ramma henn- ar eru mörkin milli skáldskapar og raunveruleika jafn óljós og í huga aðalpersónunnar. Tómas hefur nefnilega lifað sjálfstæðu lífi og gengið laus í raunheimum og hefur verið í sam- bandi við þjóðþekkta einstaklinga (í alvöru). Kristjón Kormákur gaf Tóm- asi fyrst líf á bloggsíðu (www. raunveruleiki.blogspot.com/) sem var eignuð persónunni fyrir nok- krum mánuðum og þar rakti hann raunir sínar og leyfði almenningi að fylgjast með tilraunum sínum til þess að ná fyrrverandi eigin- konu sinni og tveimur dætrum frá nýjum sambýlismanni. Sjálfur bjó Tómas einn með yngstu dóttur sinni sem eiginkonan hafði snúið baki við. Þessi listræna blekking Krist- jóns gekk fullkomlega upp og fólk vissi ekki betur en Tómas væri raunverulegur maður af holdi og blóði. Kristjón lét Tómas jafn- framt hafa samband, með tölvu- pósti, við ekki ómerkari einstakl- inga en Einar Bárðarson, Jakob Frímann Magnússon, Steinar Braga, Karl Sigurbjörnsson bisk- up, Dr. Gunna, Stefán Karl Stef- ánsson leikara og fleiri. Þessir menn vissu ekki betur en Tómas væri „alvöru“ og svöruðu bréfum hans á þeim forsendum. Tölvu- póstarnir eru svo birtir óbreyttir í bókinni þannig að allir þessir heiðursmenn verða í raun persón- ur í skáldverki og viðbrögð þeirra við umleitunum Tómasar hafa áhrif á þróun persónuleika hans. Raunveruleikaskáldskapur Það er ekki hægt að segja annað en þetta sé bráðsnjallt uppátæki hjá Kristjóni um leið og það lýsir ákveðinni ófyrirleitni og dirfsku. Hann hefði til dæmis ekki þurft að kemba hærurnar ef hann hefði komið Tómasi í samband við Jónínu Ben. Þessi raunveruleikatenging er hryggjarstykki skáldsögunnar og þarna fellur efni og umgjörð saman í eina þétta heild sem steinliggur. Það vill nefnilega svo skemmtilega til að Tómas, í geðveiki sinni, telur sig vera aðalpersónu í raunveru- leikaþættinum Fallegasti maður í heimi. Hann er svona íslensk sjón- varpsútgáfa af Jim Carrey í kvik- myndinni The Truman Show. Þetta er bráðsnjöll lausn hjá Kristjóni þar sem þessi ranghugmynd býður upp á endalaust rými fyrir geðveiki Tómasar og gerir firrta tilveru hans mjög trúverðuga enda er allt sem við sjáum á skjánum raunverulegt. Ekki satt? Það er ekki gott að koma bók- menntalegum merkimiðum á skáld- sögu Kristjóns frekar en niður- rifsverk Guðbergs en sennilega má segja að hér sé komin fram á sjónarsviðið raunveruleikaskáld- saga. Það má því segja að hér svari gamla góða skáldsöguformið þei- rri lágkúrudellu sem nú tröllríður dagskrárgerð sjónvarpsstöðva úti um allan heim. Munurinn er sá að Frægasti maður í heimi á erindi við fólk og kjarni hennar er vitrænn á meðan raunveruleikasjónvarpið er eins innantómt og andlaust og hugs- ast getur. Firring, eina ferðina enn Frægasti maður í heimi er frekar stutt og auðlesin skáldsaga sem vekur lesandann til umhugsunar um þann kengruglaða heim sem við búum í. Fyrir einhverjum ára- tugum var það orðið að klisju að tala um firringu en það breytir því ekki að mannskepnan hefur aldr- ei verið firrtari en einmitt núna. Við þessu ástandi bregðast þeir Kristjón og Tómas á snaggaraleg- an og skemmtilegan hátt og það er óhætt að mæla með bókinni við alla þá sem hafa áhuga á samtíma sínum og þeim raunveruleika sem við búum við. Kristjón hefur með þessu verki sínu gert áhugaverða tilraun með skáldsagnaformið og tekst býsna vel upp. Það mætti helst fetta fingur út í frágang bókarinnar en á köflum virðist yfirlestri hafa verið ábótavant þar sem nokkuð er um stafsetningar- og málfars- villur. Þetta gæti þó hæglega átt að vera svona enda sér maður ekki Tómas fyrir sér sem mann sem hirðir um réttritun auk þess sem raunverulegir tölvupóstar eru oftar en ekki morandi í vill- um. Villurnar falla því grunsam- lega vel að byggingu bókarinnar og gera hana „raunverulegri“. Það myndi eiginlega stinga meira í stúf ef textinn væri villulaus. Þórarinn Þórarinsson Tómas nýrra tíma FRÆGASTI MAÐUR Í HEIMI Höf: Kristjón Kormákur Guðjónsson Útg: Ísabella KRISTJÁN KORMÁKUR GUÐJÓNSSON 41FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 22 23 24 25 26 27 28 Þriðjudagur OKTÓBER � � KVIKMYNDIR � 20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir Árshátíð slökkviliðsmannanna eftir Milos Forman í Bæjarbíói í Hafnar- firði. Myndin er sýnd með sænskum texta. � 20.00 Íslandsdeild Amnesty International sýnir heimildamyndina „Too Flawed to Fix“ í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18. Heimildamyndin skoðar og afhjúpar brotalamir í bandarísku réttarkerfi. � � FYRIRLESTRAR � 12.10 Þórunn Guðmundsdóttir flytur erindi í hádegisfundaröð Sagn- fræðingafélags Íslands í Þjóðminja- safni Íslands. Erindið nefnir hún „Hverjir nutu góðs af framförum á 19. öld?“ � 17.00 Janette Land Schou, dansk- ur listamaður sem vinnur með myndbönd og ljósmyndir, flytur fyrir- lestur um vídeólist í Danmörku og eigin verk í Listaháskólanum, Skip- holti 1, stofu 113. � � BÆKUR � 20.00 Þorsteinn frá Hamri les úr glænýrri ljóðabók á Skáldaspíru- kvöldi, sem haldið verður í Iðu við Lækjargötu. Guðmundur Björgvins- son og Gunnar Randversson leika nokkur sígild lög á gítar. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Document1 24.10.2005 18:28 Page 3 41FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 22 23 24 25 26 27 28 Þriðjudagur OKTÓBER � � KVIKMYNDIR � 20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir Árshátíð slökkviliðsmannanna eftir Milos Forman í Bæja bíói í Hafnar- firði. Myndin er sýnd með sænskum texta. � 20.00 Íslandsdeild Amnesty International sýnir heimildamyndina „Too Flawed to Fix“ í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18. Heimildamyndin skoðar og afhjúpar brotalamir í bandarísku réttarkerfi. � � FYRIRLESTRAR � 12.10 Þórunn Guðmundsdóttir flytur erindi í hádegisfundaröð Sagn- fræðingafélags Íslands í Þjóðminja- safni Íslands. Erindið nefnir hún „Hverjir nutu góðs af framförum á 19. öld?“ � 17.00 Janette Land Schou, dansk- ur listamaður sem vinnur með myndbönd og ljósmyndir, flytur fyrir- lestur um vídeólist í Danmörku og eigin verk í Listaháskólanum, Skip- holti 1, stofu 113. � � BÆKUR � 20.00 Þorsteinn frá Hamri les úr glænýrri ljóðabók á Skáldaspíru- kvöldi, sem haldið verður í Iðu við Lækjargötu. Guðmundur Björgvins- son og Gunnar Randversson leika nokkur sígild lög á gítar. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Document1 24.10.2005 18:28 Page 3 ÍSAFJARÐAR 5.999kr. Milli Reykjavíkur og AKUREYRAR 5.999kr. Verð miðast við flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og Minnum á krónufargjald fyrir börnin 15. okt. - 15. nóv. 2005 á alla áfangastaði Flugfélags Íslands. - Verð án skatta og tryggingargjalds aðra leið 1 kr. - Verð með sköttum og tryggingargjaldi aðra leið 440 kr. 4.999kr. Milli Reykjavíkur og VESTMANNAEYJA flugfelag.is EGILSSTAÐA 6.999 Milli Reykjavíkur og kr. HORNAFJARÐAR 6.499 Milli Reykjavíkur og kr. GJÖGURS 5.999kr. Milli Reykjavíkur og SAUÐÁRKRÓKS 5.999kr. Milli Reykjavíkur og BÍLDUDALS 5.999 Milli Reykjavíkur og kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 99 67 1 0/ 20 05 flugfelag.is 26. okt - 1. nóv. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.