Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 69
ÞRIÐJUDAGUR 25. október 2005 29
Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur
upp á tíu ára afmælið sitt um þess-
ar mundir. Af því tilefni heldur
sveitin ferna tónleika í Austurbæ.
Fyrstu tveir tónleikarnir verða í
kvöld klukkan 20.00 og 23.30 þar
sem bestu lög hljómsveitarinnar
Pink Floyd verða á boðstólnum.
Aðspurður segir Matthías
Matthíasson, söngvari Dúndur-
frétta, í léttum dúr að hljómsveit-
in hafi orðið til svo að þeir félag-
ar gætu komist í reikning hjá
Gauki á Stöng. „Ég og Pétur [Örn
Guðmundsson] sátum á efri hæð
á Gauknum, sem þá var helm-
ingi minni en í dag, og vorum að
spjalla um hvaða tónlist við fíluð-
um. Það var dálítið það sama hjá
okkur báðum og okkur datt þá
í hug að safna í góða hljómsveit
sem væri í því að spila uppáhalds-
lögin. Ekki væri verra að komast
í reikning á Gauknum,“ segir
Matthías. „Þá labbaði Óli Hólm
inn og við spurðum hann hvort
hann væri ekki til í þetta. Hann
var heldur betur til og síðan var
þessi hljómsveit í smá stund að
myndast.“
Matthíast segir að ekki sé á
stefnuskránni að fara með dag-
skrána til útlanda þrátt fyrir að
sveitin hafi meðal annars fengið
frábæra dóma í tímaritinu Rolling
Stone. „Ef einhver vill fá okkur út
og gera þetta fyrir okkur erum við
til í það en við erum svo latir í því
að koma okkur á framfæri. Eng-
inn okkar hefur þannig drifkraft
en þessi hugmynd kemur samt
upp á pallborðið svona fimm sinn-
um á ári,“ segir hann. Bætir hann
því við að Dúndurfréttir eigi eina
frumsamda plötu og þrjár tónleika-
plötur til á lager sem geri ekkert
annað en að safna ryki vegna iðju-
leysis þeirra félaga.
Seinni tveir tónleikar Dúndur-
frétta verða í Austurbæ á fimmtu-
dag klukkan 20.00 og 23.30. Þá
spilar sveitin lög eftir Led Zeppel-
in, Deep Purple og Uriah Heep.
freyr@frettabladid.is
Eiga fjórar óútgefnar plötur
Lögfræðingar upptökustjórans
Phil Spector hafa krafist þess að
játning sem hann gaf lögreglu skö-
mmu eftir að hann var handtekinn
verði ekki tekin gild fyrir rétti.
Segja þeir að þegar játningin var
gerð hafi Spector verið haldinn
fráhvarfseinkennum vegna lyfja
sem hann tók.
Það var í febrúar sem lögreglu
barst tilkynning um skothljóð frá
heimili Phils Spector. Þegar lög-
reglu bar að garði var Lana Clark-
son látin og Spector handtekinn á
staðnum. Samkvæmt skjölum á
Spector að hafa spurt lögregluna
hvað væri að gerast. „Hvað er að
ykkur, ég ætlaði ekki að skjóta
hana, þetta var slys,“ hafði lögregl-
an eftir Spector.
Að sögn lögfræðinga Spect-
ors gerði skjólstæðingur þeirra
ekkert rangt og drap engan þetta
örlagaríka kvöld. Þeir munu halda
því fram að Clarkson hafi framið
sjálfsmorð. Saksóknari í málinu
mun hins vegar ætla að gera sitt til
að fá að nota játninguna.
Phil Spector er álitinn frum-
kvöðull í hljóðupptöku og varð
frægur fyrir „Wall of Sound“-
tæknina. Hann hefur lýst yfir
sakleysi sínu en verði Spector
dæmdur sekur á hann yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi. ■
Vilja játninguna burt
MATTHÍAS MATTHÍASSON Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur ferna tónleika í Austurbæ í
kvöld og á fimmtudaginn.
PHIL SPECTOR Er grunaður um að hafa
valdið dauða b-myndaleikkonunnar
Lönu Clarkson. Lögfræðingar hans
vilja að játningu hans verði vísað frá.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES