Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 70

Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 70
FRÉTTIR AF FÓLKI Madonna settist aftur í söðul fyrir helgi í fyrsta sinn síðan hún féll af hestbaki á afmælisdaginn sinn í ágúst. Madonna var að kynna nýju plötuna sína í kvöldþætti David Letterman, sem bauð henni á með sér. Söngkonan og þáttastjórnandinn riðu svo út á sitt hvor- um hestinum, vegfarendum í New York til mikillar furðu. Madonna braut fimm rifbein og brákaði viðbein þegar hún féll af hestbaki í útreiðartúr á sveitaóðali sínu í sumar og sagði fréttamönnum að hún hefði verið bæði spennt og taugaóstyrk við að fara aftur á bak. Þótt reiðtúrinn með Letterman hafi gengið snurðulaust fyrir sig býst Madonna ekki við að fara aftur á bak fyrr en hún hefur fengið grænt ljós frá plötuútgáfunni. „Þeir eru ekki sérlega hrifnir að því að ég slasi mig.“ Haft er fyrir satt að Michael Jackson hyggist flytja til Barein og setjast þar að fyrir fullt og allt. Poppkóngurinn dvaldi í Barein eftir að hann var sýkn- aður af barnamisnotkun fyrr á árinu og dvaldi í góðu yfirlæti hjá krónprinsi rík- isins, Sheik Salman Ibn Hamed Khalifa. Lögmaður Jackson, Thomas Mesereau, staðfestir að söngvarinn ætli að „breyta um lífsstíl“ og setjast að í Mið-Austur- löndum. „Michael á vini í Barein sem hafa stutt við bakið á honum á þrautastund- um.“ Hann bætti við að dvölin ytra hefði haft hressandi áhrif á Jackson, sem væri nú eins og nýsleginn túskildingur. Önnur plata hljómsveitarinnar Nylon nefnist Góðir hlutir. Platan kemur út hinn 8. nóvember. Undir- búningur við gerð plötunnar hófst strax í janúar á þessu ári og fóru upptökur fram hér á landi og í London. Flest lögin eru ný en lögin Dans, dans, dans og Einskonar ást eru endurunnin. Einvala lið manna kemur að lagasmíðum á plötunni, meðal annars Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson og Magnús Eiríksson. Góðir hlutir frá Nylon NYLON Stúlknasveitin Nylon gefur út sína aðra plötu í næsta mánuði. Svo virðist sem samband Jessicu Simpson og Nick Lachey sé ekki það eina sem standi höllum fæti. Breska blaðið News of the World birtir frétt í sunnudagsblaði sínu að hjónaband Britney Spears og Kevin Federline muni brátt heyra sögunni til. Samkvæmt heimildum blaðsins er parið sagt rífast í gríð og erg. Dropinn sem fyllti mælinn var þegar Federline yfirgaf villu þeirra í miklu fússi. Hann sást síðar á skemmtistað umkringdur glæsimeyjum. Britney er sögð æf yfir þessari hegðun eigin- manns síns, sem þykir víst fátt betra en að drekka nokkra bjóra með félög- unum. Hann er ekki sagður mikið fyrir að eyða tíma sínum í faðmi fjölskyldunnar. Samkvæmt heim- ildarmanni blaðsins finnst Britney maðurinn sinn vera ábyrgðarlaus og láta henni eftir alla erfiðisvinnuna. Britney dró á dögunum til baka tilboð um myndatöku af þeim með nýfædda barninu en hún hefði skilað fjölskyldunni nokkrum milljónum. Rennir þetta stoðum undir þann grun að ekki sé allt með felldu. Að sögn móður Britney er Kevin sagður hafa gerst mjög stórtækur með auð- ævi poppdrottningarinnar. „Hann hefur fjárfest í dansskóla með pabba Michael Jackson en sú framkvæmd kemur til með að kosta sinn skild- ing,“ er haft eftir henni. Britney að skilja SPENNTIR FORELDRAR Þegar allt lék í lyndi virtist parið vera tilbúið í foreldrahlutverkin. Nú drekkur Federline bara bjór með félög- unum en Britney á að sjá um uppeldið. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Jeff Who? hitaði upp fyrir hljómsveitina Franz Ferdinand á frábærum tónleikum hennar í Kaplakrika í byrjun september. Væntanlega hefur það verið mikil upplifun fyrir þá Jeff Who?-liða því nýja platan þeirra hljómar ótrúlega líkt því sem Ferdinand hefur verið að gera á sínum farsæla ferli. Einnig koma upp í hugann hljómsveit- ir eins og The Bravery og The Strokes sem hafa verið framar- lega í þessari diskórokkstefnu sem hefur verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum. Það er nákvæmlega ekkert frumlegt eða nýtt við Jeff Who? Söngvarinn reynir hvað hann getur til að hljóma eins og Alex Kapranos úr Franz Ferdinand og tekst það svo sem ágætlega. Best tekst Jeff Who? upp í tit- illagi plötunnar, Barfly og í hinu rólega Bipolar Breakdown. Sveitin gengur síðan alla leið og fer í diskóbúninginn í Puppy Eyes/Success, í lagi sem er ein- ungis eftirminnilegt fyrir þær sakir. Hljómurinn og hljóðfæraleik- urinn á plötunni er í góðu lagi en lögin sjálf eru aftur á móti óáhugaverð og fara að mestu inn um annað eyrað en út um hitt. Kannski er Jeff Who? bara að reyna of mikið að hljóma eins og einhverjir allt aðrir. Freyr Bjarnason Algjör eftirlíking JEFF WHO? DEATH BEFORE DISCO Niðurstaða: Jeff Who? er algjör eftirlíking af Franz Ferdinand. Tvö til þrjú lög eru í lagi en restin fer inn um annað en út um hitt. Sýnd kl. 4 í þrívídd HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Sýnd í Lúxus kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 450 kr. Sýnd kl. 3.50 með íslensku tali. Frá leikstjórum There Is Something About Mary Eftir bók frá höfundi About a Boy Hún fílar vinnuna Hann íþróttir Munu þau fíla hvort annað “Þeir eru hér til að spila fótbolta, ekki til að gera misök” “ Gamanmynd úr íslenskum raunveruleika frá framleiðendum Blindskers” “Fótfrá gamanmynd” Variety i til il f t lt , i til i í l l i f f l i li tf i t Frá framleiðendum The Professional og La Femme Nikita Fór beint á toppinn í USA Sá besti í bransanum er mættur aftur! ���� SV MBL SÍMI 551 9000 History Of Violence kl. 6 Africa United kl. 6 og 8 Doom kl. 8 og 10 Transporter II kl. 10 Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára ��� -ÓHT Rás 2 ��� -HJ MBL Sýnd kl. 6, 8.15 og 10.20 B.i. 16 ára Skemmtileg ævintýramynd með íslensku tali. Sýnd kl. 6 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 6 og 8 ��� -SV MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10 Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXX “Þeir eru hér til að spila fótbolta, ekki til að gera misök” “ Gamanmynd úr íslenskum raunveruleika frá framleiðendum Blindskers” “Fótfrá gamanmynd” Variety i til il f t lt , i til i í l l i f f l i li tf i t STELTH Sýnd kl.8 og 10.30 B.i. 14 ára ���� SV MBL G O T T F Ó LK M cC A N N · 2 9 8 7 7 HYDROXYCUT L’ORÉAL SCULPT UP Stinnir og styrkir slappa húð á maga og rassi. Frábært fyrir konur til dæmis eftir barnsburð og þá sem hafa misst mikla þyngd á skömmum tíma. Áttu eitthvað gott fyrir línurnar? 15% 20% T ilb o ð in g ild a ti l 8 .1 1. 2 00 5 L’ORÉAL PERFECT SLIM PLÁSTRAR OG GEL Plástrarnir eru 6 sinnum öflugri en samanburðar- vara í rannsóknum og mjög öflugir gegn fitusöfnun. Bæði plástrarnir og gelið virka einnig vel gegn appelsínuhúð þannig að húðin verður sýnilega mýkri og sléttari – strax eftir fyrstu notkun. 15% Nýtt Eitt vinsælasta fitubrennsluefnií heiminum í dag. Eykur hitastiglíkamans og margfaldar þannig brennsluna allan daginn. Inniheldur, koffein, króm, carnitine, grænt te, o.fl.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.