Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 74
34 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is22
fijálfari Stj
synlegt ef l
deilt í Svífl
Jöru
Stjö
FÓTBOLTI Átta a
mönnum í nor
vilja ekki að
fram á gervig
sænsk rannsók
ir draga úr áh
fara á völlinn
leikmanna er
gervigrasi.
Stjarnan í G
kynslóð gervig
á síðasta ári og
ir reynsluna af
góða. „Ég get a
ég var svolítið
eftir reynsluna
að segja að hú
Jörundur Áki
Stjörnunnar í
heimaleikina í
á gervigrasvel
an tryggði sér
Mikil umræða
� � SJÓNVARP
� 07.00 Olíssport á Sýn. Þátturinn er
endursýndur þrisvar sinnum til
klukkan 09.00 og svo aftur klukkan
17.35.
� 18.05 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
Fréttir af leikmönnum og liðum
deildarinnar.
� 18.35 Enski deildarbikarinn á Sýn.
Crystal Palace tekur á móti Liverpool.
� 20.40 X-Games á Sýn.
� 21.30 Mótorsport á Sýn.
� 22.00 Olíssport á Sýn.
� 22.30 A1 kappaksturinn á Sýn.
� 00.00 Enski deildarbikarinn á
Sýn. Leikur Crystal Palace og
Liverpool endursýndur.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Þriðjudagur
OKTÓBER
FÓTBOLTI Þegar Guðjón Þórðarson
réð sig til starfa hjá enska 2. deild-
arliðinu Notts County gerði hann
ér grein fyrir að það tæki tíma að
byggja upp sterkt lið hjá félaginu.
Tímabilið byrjaði með óvæntum
látum þar sem County vann hvern
leikinn á fætur öðrum og Guðjón
var að lokum valinn knattspyrnu-
stjóri ágústmánaðar.
Eftir það fór að halla verulega
undan fæti og síðasti sigurleikur
liðsins var 29. ágúst síðastliðinn.
Síðan þá hefur liðið leikið tíu leiki
án sigurs – fimm hafa endað með
jafntefli og fimm tapast. Marka-
talan í þessum tíu leikjum er 5-18.
„Þetta er töluverð brekka en ég
hef lent í erfiðum brekkum áður
og farið þær brattari þó þessi sé
svolítið löng,“ sagði Guðjón frek-
ar léttur við Fréttablaðið í gær.
Helsta vandamál Guðjóns að mati
Steve Roden, íþróttafréttamanns
hjá Evening Post í Nottingham, er
sú að hann er með ákaflega þunn-
skipaðan hóp. Guðjón er sammála
því mati Rodens.
„Ég er líka með mjög ungt lið
og þetta tekur sinn tíma. Sumir
þessara stráka eru líka með kjúkl-
ingahjörtu og það er mitt hlutverk
að styrkja sjálfstraust þessara
manna. Það sem er líka að fara
með okkur er að senterarnir mínir
eru alveg steingeldir og hreinlega
geta ekki skorað þessa dagana,“
sagði Guðjón, sem er nýbúinn
að senda tvo unga lánsmenn frá
félaginu en hann á von á því að fá
jafnvel þrjá aðra í staðinn fljót-
lega. Það er Crystal Palace sem
er tilbúið að lána Guðjóni þessa
stráka.
Guðjón fær enga peninga frá
stjórn félagsins á þessari leiktíð
en að sama skapi er lítil pressa
á að hann nái árangri í vetur.
„Stjórnin sagði við mig um dag-
inn að þeir yrðu sáttir með 18.
sæti en það sama á ekki við um
mig,“ sagði Guðjón, sem er ekki
undir neinni pressu þrátt fyrir
dapurt gengi síðustu vikur. „Það
er mikill skilningur hjá stjórninni
sem og stuðningsmönnum félags-
ins og Guðjón verður seint rekinn
frá félaginu,“ sagði Steve Roden
íþróttafréttamaður við Frétta-
blaðið.
Guðjón hefur oftar en ekki
verið í sigurliði á sínum ferli og
því vaknar óhjákvæmilega sú
spurning hvernig það sé fyrir
sigursælan þjálfara eins og Guð-
jón að vera allt í einu á hinum end-
anum?
„Það er sko ekki auðvelt og í
raun mjög erfitt. Þetta tekur í og
það má segja sem svo að maður
verði að passa upp á að styrk-
leiki manns verði ekki veikleiki
manns.
Það eina sem ég get gert er að
vinna með það sem ég hef í hönd-
unum því lausnirnir eru ekki ann-
ars staðar og ég get hvorki keypt
þær né sótt,“ sagði Guðjón en allir
leikmenn félagsins fyrir utan einn
eru samningslausir næsta sumar.
„Það er ágæt staða því þeir eru
að berjast fyrir nýjum samningi.
Það má samt ekki tapa trúnni og
nóttin verður alltaf dekkst rétt
fyrir dögun eins og þeir segja
hérna,“ sagði Guðjón Þórðarson,
knattspyrnustjóri Notts County.
henry@frettabladid.is
Nóttin alltaf dekkst rétt fyrir dögun
Það er ekkert svartnætti hjá Guðjóni Þórðarsyni þó að lið hans, Notts County, hafi ekki unnið leik í tæp-
lega tvo mánuði eða í síðustu tíu leikjum liðsins. Síðasti sigurleikurinn kom 29. ágúst síðastliðinn.
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Sést hér með sigurlaunin fyrir að vera knattspyrnustjóri ágústmánað-
ar. Guðjón er ekki af baki dottinn þrátt fyrir dapurt gengi síðustu tvo mánuði.
FÓTBOLTI Björgólfur Takefusa stað-
festi í viðtali við DV í gær að hann
hefði þegið laun frá Fylki síðustu
tvö ár þó hann hefði ekki verið
með KSÍ-samning en samkvæmt
reglum KSÍ er það ólöglegt.
Björgólfur gerði samning við
Fylki á sínum tíma en óskaði þess
að samningum yrði aldrei skilað
inn til KSÍ og virti Fylkir þá ósk
Björgólfs. Ástæðan er sú að hann
var í námi í Bandaríkjunum á
skólastyrk en leikmenn á skóla-
styrk í Bandaríkjunum mega ekki
þiggja laun fyrir að spila fótbolta
á meðan þeir eru í námi.
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, kom af fjöllum
þegar Fréttablaðið greindi honum
frá orðum Björgólfs í DV en sagð-
ist verða að skoða málið áður en
hann tjáði sig um það opinberlega.
Hann sagði reglur KSÍ þó skýrar.
„Það er þannig að félög sem
greiða leikmönnum þóknun eiga
að gera við þá KSÍ-samning og
það eru reglur knattspyrnusam-
bandsins,“ sagði Geir, sem sagðist
ekki hafa séð umrætt viðtal.
Hann ætti því eftir að kynna
sér málið til hlítar áður en hann
ákveddi hvort það væri ástæða
til þess að fara lengra með málið
en Geir hefur heimild til að fara
lengra með málið kjósi hann svo.
Miðað við þær upplýsingar sem
lægju fyrir væri þó ljóst að hann
þyrfti að skoða málið. - hbg
Framkvæmdastjóri KSÍ, Geir Þorsteinsson, segir reglur sambandsins skýrar:
Þarf að skoða Björgólfsmálið
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA Skrifar hér undir samninginn við Fylki sem síðan var aldrei skilað
inn til KSÍ að ósk Björgólfs.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Sigmundur Kristjánsson,
leikmaður KR, fer í dag til sænska
félagsins BK Häcken en hann mun
dvelja hjá félaginu í óákveðinn
tíma til reynslu. Häcken endaði í
áttunda sæti sænsku úrvalsdeild-
arinnar en sóknarleikur liðsins
var frekar stirður allt tímabilið
og vonast forsvarsmenn félagsins
eftir því að styrkja leikmanna-
hóp félagsins með skapandi leik-
mönnum. „Mér líst vel á þetta og
ætla bara að reyna að standa mig.
Þetta er nú svona dæmigerð ferð
þar sem maður fer til reynslu til
félags. Vonandi gengur mér vel en
annars er ég ekkert að stressa mig
á þessari ferð. Ég er nýlega búinn
að ganga frá mínum málum við
KR og það yrði bara ánægjulegt
ef það kæmi eitthvað út úr þessari
ferð.“
- mh
Sigmundur Kristjánsson:
Sigmundur hjá
BK Häcken
SIGMUNDUR KRISTJÁNSSON Á leið út.
FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson
heldur í dag til Svíþjóðar þar
sem hann mun æfa í vikutíma hjá
úrvalsdeildarfélaginu Kalmar FF.
Garðar lék vel með Valsliðinu
í sumar og vann sér með því sæti
í U-21 landsliðinu þar sem hann
var meðal annars á skotskónum
gegn Svíum fyrr í mánuðinum.
„Mér líst mjög vel á þetta lið og
ég ætla mér að standa mig þarna
úti. Kalmar FF endaði í þriðja
sæti í deildarkeppninni í Svíþjóð
og fékk á sig fæst mörk alla liða
í deildinni. Markahæsti maðurinn
í liðinu skoraði samt ekki nema
fjögur mörk þannig að forráða-
menn liðsins eru að leita að fram-
herja þessa dagana.“ - mh
Framherji Vals til Svíþjóðar:
Garðar til
Kalmar
GARÐAR GUNNLAUGSSON Garðar vonast til
þess að fá samningstilboð frá Kalmar FF.
Víkingur og Valur eru komin í hart yfir
leikmönnunum Grétari Sigurðssyni og
Viktori Bjarka Arnarssyni. Báðir voru þeir
lánaðir frá Víkingi síðasta sumar - Grétar
til Vals en Viktor til Fylkis - en þeir eru
enn samningsbundnir Víkingi og ber
þeim því að snúa aftur til félagsins kjósi
það svo.
Báðir leikmenn höfðu lýst því yfir
að þeir hefðu áhuga að vera áfram hjá
þeim félögum sem þeir voru hjá í sumar
og Grétar gekk skrefinu lengra og sagð-
ist frekar vilja vera áfram hjá Val en að
snúa aftur til Víkings. Víkingur neitar að
sleppa honum og hefur kært Val í þeirri
von að félagið láti leikmennina í friði.
„Við höfðum heimildir fyrir því að
Valsmenn hafi verið byrjaðir að ræða við
samningsbundna leikmenn hjá Víkingi
án þess það hafi verið í fullu samráði
við okkur. Á þeim forsendum lögðum
við fram kvörtun til KSÍ og svo sjáum
við bara til hvað gerist í framhaldinu.
Við ætlum okkur að halda öllum
leikmönnum sem eru samningsbundn-
ir félaginu,“ sagði Róbert Agnarsson,
formaður knattspyrnudeildar Víkings,
en kollegi hans hjá Val,
Börkur Edvardsson, er
ekki sáttur við kæruna ef
marka má yfirlýsingu
sem hann gaf frá sér
í gær. „Knattspyrnu-
deild Vals hefur
ekkert um þetta
mál að segja.
Deildin mun
ekki reka þetta
mál í fjölmiðlum heldur verður málið
leyst hjá Knattspyrnusambandi Íslands.
Forráðamenn Víkings virðast hins vegar
vera búnir að átta sig á því að sumir
leikmenn félagsins hafa ekki áhuga á
því að vera áfram hjá félaginu en beita
öllum ráðum til þess að halda þeim hjá
félaginu þrátt fyrir það.“
Grétar sjálfur segist vera hálfsorgmædd-
ur yfir stöðunni sem upp sé kominn.
„Víkingarnir virðast vera byrjaðir
með dónaskap og það finnst mér
leiðinlegt. Mér finnst þetta vera
asnalegt hjá þeim að kæra Val,“
sagði Grétar, sem segist
hafa fengið þau skilaboð
frá Víkingi að hann verði
ekki seldur. Hann von-
ast eftir farsælli lausn.
KNATTSPYRNUMAÐURINN GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐSSON: EKKI ÁNÆGÐUR MEÐ FÉLAGIÐ SITT
Víkingarnir eru með dónaskap
Heyrst hefur...
... að körfuknattleiksdeild Keflavíkur hafi
íhugað að tefla fram tveim bandarískum
leikmönnum gegn Grindavík í Hópbíla-
bikarnum til að lýsa yfir óánægju sinni
með leikjaniðurröðun KKÍ í vetur. Kefla-
vík er með tvo Kana á sínum snærum
en aðeins annar þeirra er löglegur.
KÖRFUBOLTI Stúdínur unnu sinn
fyrsta leik í Iceland Express-deild-
inni í vetur í gær þegar Blikar
komu í heimsókn. Lokatölur voru
68-59 fyrir ÍS en Stúdínur leiddu í
hálfleik, 33-25.
ÍS var alltaf skrefi á undan í
leiknum og sigur liðsins í raun
aldrei í hætti. Signý Hermannsdótt-
ir var atkvæðamest hjá ÍS með 20
stig en þær Stella Kristjánsdóttir
og Hafdís Helgadóttir komu næst-
ar með 14. Hann Kjartansdóttir átti
síðan ágætan leik með 10 stig.
Jessalyn Deveny var bókstaf-
lega allt í öllu hjá Breiðablik en
hún skoraði 40 stig í leiknum og
hinar stelpurnar í Blikum skiptu
síðan með sér 19 stigum. Heiðrún
Hauksdóttir skoraði 5 af þessum
19 stigum. - hbg
Iceland-Express deild kvenna:
Fyrsti sigur ÍS
> Það er gott að búa í Kópa-
vogi
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa-
vogi, laug greiniega engu þegar hann lét
þessi frómu orð falla. Það er nefnilega
von á fjölda stúlkna
í Kópavoginn
sem hefur í
hyggju að
spila með
knatt-
spyrnulið
Breiðabliks
næsta sumar en sem
kunnugt er þá stefna
Blikar á Evrópumeistar-
atitil. Elín Anna Stein-
arsdóttir og Olga Færseth
ku vera á leið í Kópavog-
inn frá ÍBV og svo hafa
Blikar augastað á Ásthlidi
Helgadóttur og Erla
Steinu Arnarsdóttur sem
báðar leika í Svíþjóð.