Fréttablaðið - 25.10.2005, Síða 78

Fréttablaðið - 25.10.2005, Síða 78
 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR38 LÁRÉTT 2 slitrótt tal 6 2 eins 8 struns 9 stormur 11 skyldir 12 ráðagerð 14 hlátur 16 nafnorð 17 mánuður 18 pappírsblað 20 í röð 21 dreifa. LÓÐRÉTT 1 listi 3 samtök 4 afsal 5 skjön 7 kista 10 bergtegund 13 þrep í stiga 15 fjar- skiptatæki 16 á nefi 19 íþróttafélag. LAUSN. LÁRÉTT: 2 tafs, 6 kk, 8 ark, 9 rok, 11 aá, 12 áform, 14 fliss, 16 no, 17 maí, 18 örk, 20 lm, 21 strá. LÓÐRÉTT: 1 skrá, 3 aa, 4 framsal, 5 ská, 7 koff- ort, 10 kol, 13 rim, 15 sími, 16 nös, 19 kr. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1. 40 til 50 þúsund manns 2. Suzuki Swift 3. Giovani Dos Santos 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 SEM ER? Fyrir þá sem þykir fátt jafn gott að koma heim og geta fengið sér te samstundis er þessi ketill mikið þarfaþing. Að ekki sé minnst á sæl- kerana sem finnst það munaður að koma heim í heitt kakó. Með einu smáskilaboði úr farsímanum fer ketillinn af stað og hitar vatn. Þegar styttist í annan endann á löngum göngutúr í kulda og trekki þarf ekki annað en að rífa upp símann, skrifa nokkur vel valin orð og þá fer allt af stað heima fyrir. Kostir? Í fljótu bragði hljómar þetta allt voðalega gott. Sagt er að fyrirtæk- ið PG Tips hafi fengið hugmyndina úr kvikmyndinni Bölvun vígakanín- unnar sem nú er sýnd í kvikmynda- húsum. Þar sem umrætt fyrirtæki er frá Englandi, en þar er tedrykkja samofin menningunni, þarf ekki að undra að Englendingar hoppi hæð sína af gleði. Þessi tækni fækkar ferðunum fram í eldhús og sam- kvæmt talsmanni fyrirtækisins á þetta eftir að valda gjörbyltingu á tetímanum. Gallar? Notandinn þarf að muna eftir því að setja vatn í ketilinn auk þess sem hann þarf að hella upp á, sama hvað tautar og raular. Það verður því ekki alveg séð hversu mikil búbót þetta er nema fólk hafi hreinlega alltaf vatn í katlinum. Kostnaður? Svona tæki þarf ekki endilega að vera neitt sérstaklega dýrt. FRÉTTIR AF FÓLKI Stuðningsmenn Gísla Marteins Baldurssonar hafa gert athuga- semdir við mola sem birtist hér á laug- ardaginn en þar kom fram að frambjóð- endurnir Gísli Marteinn og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefðu gert með sér samkomulag um að mætast fyrst í beinni sjónvarpsútsendingu í Kastljósi RÚV fimmtudaginn 20. september. Gísli mætti hins vegar auðum stól Vilhjálms á Stöð 2 í Íslandi í dag tveimur dögum fyrr en sú skýring var gefin að Vilhjálmur hefði ekki treyst sér til að mæta. Stuðningsmenn Gísla Marteins segja frambjóðandann ekki hafa gert neitt samkomulag við Vilhjálm um framkomu í fjölmiðlum. Þá hafi umsjónarmönnum Ísland í dag leiðst þófið og þótt Vilhjálmur draga lappirnar í málinu. Þeir vildu ekki sæta sig við til- burði Vilhjálms til að ritstýra þættinum og settu Vilhjálmi úrslitakosti. Niðurstaðan varð svo að Gísli Marteinn sat einn fyrir svörum í þættin- um. Stuðningsmenn Gísla Marteins segja Vilhjálmi hins vegar hafa gengið betur að stjórna atburða- rásinni í Kastljósi þar sem könnun sem hann lét gera á fylgi frambjóðend- anna var notuð sem upplegg í þeim þætti. Vilhjálmur gerir svo grein fyrir sinni hlið málsins á heimasíðu sinni og segir: „stjórnendum Íslands í dag hefur verið kunnugt um það í langan tíma að Vilhjálmur vildi ekki setja framboð sitt í sviðsljós fjölmiðla, með þeim hætti sem óskað var eftir, fyrr en að landsfundi Sjálfstæðisflokksinsfloknum. Þeir kusu að hringja með fjögurra klukkustunda fyrirvara sl. þriðjudag og tilkynna þá ákvörðun sína að ef Vilhjálmur myndi ekki mæta yrði Gísli Marteinn einfald- lega einn í viðtali og jafnframt yrði þess getið að Vilhjálmur hefði ekki séð sér fært að mæta. Vilhjálmur hafði gefið fulltrúum Kastljós loforð að mæta til þeirra á fimmtudag þar sem hann og Gísli Marteinn myndu mætast í fyrstu umræðum og stóð við það heit.“ Leikar eiga svo væntanlega enn eftir að æsast þar sem það styttist óðum í prófkjörið og taugatitringurinn getur ekki annað en magnast. Englarnir Pú og Pa hafa undanfar- ið eitt og hálft ár skemmt lesend- um Fréttablaðsins á myndasögu- síðu blaðsins. Myndasögurnar um félagana eru nú farnar að birtast í eistneska staðarblaðinu Lääne Elu eða Vestur líf. Það er sem fyrr Sigurður Örn Brynjólfsson sem teiknar englana en þeir birtust fyrst fyrir tíu árum í jóladagatali Ríkissjónvarpsins sem hann og Friðrik Erlingsson gerðu saman. „Hugmyndin var alltaf að gera meira úr þessu,“ segir Sigurður og á við að þá hafi alltaf langað til að gera teiknimyndir. „Þegar það gekk ekki eftir þróaði ég þá út í myndasögur en það tók lang- an tíma, að færa persónurnar frá brúðuleik yfir í myndasöguform,“ útskýrir hann. Höfundurinn segir þá Pú og Pa hafa breyst mjög mikið í gegnum árin. Þeir séu farnir að vera meira heimspeki- lega þenkjandi og velti tilvist guðs og himnaríkis mikið fyrir sér. „Húmor þarf ekki alltaf að vera skrípalæti, það er mikið alvöru- mál að gera grín,“ segir hann og bendir á að bestu myndasögurnar velti yfirleitt fyrir sér alvarlegum hlutum. „Þá eru Pú og Pa ekki sér- íslenskir heldur ganga þeir hvar sem er.“ Sigurður hefur enn frem- ur velt bókaútgáfu fyrir sér og hefur sent nokkrum útgefendum póst en að hætti Íslendinga hefur fátt verið um svör. Sigurður ætlar nú að láta reyna aftur á að senda Pú og Pa til stórra dreifingarfyrirtækja eins og Bulls. „Ég ætla að gefa þessu fjögur til sex ár og sjá hvað kemur út úr þessu,“ segir Sigurður, sem kvartar ekkert. „Þetta er ágæt- is vinna og ég hef líka gaman af þessu.“ - fgg Alvörumál að gera grín SIGURÐUR ÖRN BRYNJÓLFSSON Englarnir hans tveir eru nú komnir í eistneskt staðarblað og stefnir teiknarinn á fleiri landvinninga. DÓTAKASSINN READY WHEN UR-KETILL Þarfaþing tedrykkjumannsins Dúettinn Steintryggur er að leggja upp í mikið ferðalag um þessar mundir og kemur til með að gera strandhögg víða í Evrópu í slagtogi með Óla ósýnilega sem er tölva. Ætlunin að kynna geisladiskinn Dialog ásamt nýju efni sem vænt- anlega kemur út á næsta ári. „Við ætlum að gefa út tvö diska á næsta ári. Annar þeirra verður órafmagnaður með tyrkneskum lögum,“ segir Steingrímur Guð- mundsson en á plötunni njóta þeir liðsinnis tyrknesks tónlistarmanns sem spilar á ýmis strengjahljóð- færi. Sigtryggur segir plötuna talsvert frábrugðna því sem Stein- tryggur hefur gert hingað til. „Það er ekki svona póstmódernísk til- raunastarfsemi eins og á Dialog þar sem við vorum að klippa allan andskotann saman; hrópandi inúíta- kellingar og kúbönsk bít.“ Seinni platan verður aftur á móti meira í ætt við Dialog. Steintryggur heldur út 1. nóv- ember og hyggst heimsækja Eng- land, Danmörku, Belgíu, Holland og Þýskaland en tónleikaferðalag- inu lýkur 19. nóvember á mikilli Íslendingahátíð í Köln sem nefnist Islandsbiler. Þar munu margir af fremstu listamönnum Íslands vera með sýningar og tónleika. Steingrímur segir að hljóm- sveitin verði með tvenns konar dagskrá. „Annars vegar verðum við með hefðbundna dagskrá fyrir tónleikastaði en við erum líka með klúbbadagskrá sem fólk getur dansað við,“ útskýrir hann. Þeir félagar kveðast hlakka til að spila á öllum stöðum, þá sér- staklega tónleika sem þeir halda í enskum skólum þar sem Stein- tryggur kemur fram með nemend- um. „Við fengum send lög sem við endurhljóðblönduðum en nemend- urnir hafa síðan samið dans við þau og spila með okkur,“ útskýrir Steingrímur og bætir við að líklega verði þessir viðburðir teknir upp en Sigtryggur hefur líka hugsað sér að blogga um ferðina á heima- síðunni steintryggur.com. „Mig langar til að lýsa þessari ferð því þetta er nefnilega ekki þessi hefð- bundni poppstjörnutúr með til- heyrandi munúðarlífi. Næsta skref hjá okkur gæti þess vegna verið að troða upp á elliheimilum; það kæmi sjálfsagt eitthvað spennandi út úr því.“ bergsteinn@frettabladid.is STEINTRYGGUR OG ÓLI ÓSÝNILEGI: GERA VÍÐREIST UM EVRÓPU Elliheimilin næsta skrefið STEINTRYGGUR Hyggst heimsækja England, Danmörku, Belgíu, Holland og Þýskaland en tónleikaferðalaginu lýkur 19. nóvember á mikilli Íslendingahátíð í Köln. Rætt um bæjarstjórastól Reykjanesbæjar Áhugi á Þórólfi Árnasyni DV2x10-lesin 24.10.2005 20:31 Page 1 HRÓSIÐ ...fá allar konur sem lögðu niður vinnu í gær og fóru á baráttufund Kvennafrídagsins.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.