Tíminn - 01.08.1975, Síða 14
14
TÍMINN
Föstudagur 1. ágúst 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
84
eftir handlegg hans. Rambo lá í þykkum óþverra, sem
þrengdi sér gegnum rifnar skyrtur hans og snerti kvið
hans. Hann heyrði væl yfir höfði sér og flöktandi
vængjaslátt. Jesús guðssonur — þetta voru leðurblökur.
Hann lá í saur þeirra og nú voru um sex kvikindi, sem
skriðu á höndum hans og nörtuðu. Þetta voru ruslætur,
sem nærðwst á eigin úrgangi og dauðum leðurblökum^
sem féllu á gólf ið. Þær gátu hæglega étið heilt hræ — og
nú nörtuðu þær í húðina á höndum hans, RSambo hörf aði
af tur i trylltri skelf ingu. Hann lamdi þær af höndum sér,
rak höfuðið í og hiífði hvergi illa förnum rif jum sínum.
Þessar leðurblökur voru smitberar. Þriðjungur sér-
hverrar leðurblökuholu voru smitberar. Færi svo að þær
vöknuðu og skynjuðu hann,var vel líkíegt að þær gerðu
áraá og hyldu hann, sibítandi, á meðan hann öskraði.
— Hættu þessu, sagði hann við sjálfan sig. Þú leiðir at-
hygli þeirra að þér. Hættu að öskra. Vængjaslátturinn
var að aukast. Rambo gat ekki stillt sig. Hann öskraði
meðan hann kraf saði sig aftur á bak. Loks var hann aft-
ur kominn út á sylluna. Hann burstaði hendur og hand-
leggi. Hann vildi vera þess f ullviss að þær væru ekki enn
sitjandi á sér. En fann hann fyrir þeim. Þá f laug honum
annað í hug: KANNSKI ELTA ÞÆR MIG.... Hann hörf-
aði þvi enn lengra frá opinu inn í holuna.... Hann var
áttavilltur í myrkrinu. Annar fótur hans dinglaði fram
af syllunni. Það munaði minnstu að hann félli fram af.
Við þetta greip hann enn meiri skelf ing, svo hann þaut í
gagnstæða átt og rakst á klettavegg. Hann skalf allur og
þurrkaði af sér rakan óþverrann á steininn. Einnig
reyndi hann að strjúka af skyrtunni. Skyrtan. Eitthvað
| Auglýsicf
t
iTlmanum 1
var að klóra á kvið hans. Rambo greip kvikindið og
kramdi það. Svo henti hann hræinu af öllu af li inn í hol-
una.
Leðurblökur. Pestarbæli. Sjúkdómar. Oldin fýlan af
saurnum þrengdi sér i nasir hans og háls. Þannig hafði
námamaðurinn þá dáið. Leðurblökurnar. Kvikindin
höfðu bitið hann án þess hann yrði þess var. Nokkrum
dögum seinna altók sjúkdómurinn vesalings manninn,
sem reikaði vitstola gegnum skóginn, inn í námuna, út úr
henni, svo enn einu sinni inn í hana og niður í sprunguna.
Loks féll hann niður og drapst. Vesalings ræfillinn.
Sjálfsagt hefur hann haldið að einmanaleikinn væri að
f ara með sig. Að minnsta kosti til að byrja með. Þegar ó-
ráðið heltók hann var hann orðinn of aðframkominn til
að bjarga sér. Eða vissi hann kannski undir það síðasta,
aðekkert gat hjálpað honum. Kannski skreið hann þarna
inn til að deyja án þess að valda smiti eða hættu fyrir
aðra.
— Kannski hvað? Kannski þetta og kannski hitt.
Hvern f jandann þykist þú vita um það, sagði Rambo
við sjálfan sig í huganum. Hann hefði ekki leitað niður í
rök göngin ef hann hefði smitazt. Þá hefði hann alls ekki
þolað vatn eða raka. Þú ert bara að ímynda þér að þú
drepist svona sjálf ur. EF ÞÆR ÉTA ÞIG ÞÁ EKKI ÁÐ-
UR. Hvað er ég eiginlega að rausa? Leðurblökurnar geta
ekki étið mig. Að minnsta kosti ekki þær sem hér eru. En
hvað þá um bjöllurnar?
Rambo var enn sjálfandi og nötrandi, en hann barðist
hetjulega við að telja kjarkinn í sjálfan sig. Inni í leður-'
blökuholunni var golan greinilega sterkari. En sú leið
var honum ófær. Hann vissi ekki hvaða leið hann átti að
fara til að komast í ef ri göngin. Nú var komið að því að
horfast í augu við staðreyndir. Hann var kominn í sjálf-
heldu og komst hvorki aftur á bak né áf ram.
Þó gat hann ekki með nokkru móti fengizt til að trúa
því, að svo væri komið f yrir sér. Hann yarð að ber jast við
skelf inguna og ímynda sér að til væri leið út. Hann varð
að setjast upp við klettavegginn og reyna að jafna sig.
Kannski dytti hann ofan á rétta leið út úr þessum ógöng-‘
um, ef hann hugleiddi málið nógu gaumgæfilega. Gall-
inn við þetta var bara sá, að hann vissi f ullvel, að aðeins
var ein leið fær. Inn á eftir golunni í leðurblökuholuna.
Hann vætti varir sínar og saup úr málmf löskunni vatnið.
— Þú veizt að þú verður að fara þara inn til kvikind-
anna, ekki satt, sagði hann við sjálfan sig. Annað hvort
það eða að sitja hér og drepast úr sulti og verða veikur af
rakanum og deyja þannig. Eða þá að fremja sjálfsmorð.
Þér var kennt að gera það líka, í æf ingabúðunum. Eins
konar varaskeifa ef ske kynni að atburðarásin bæri mót-
stöðuaf lið of urliði. En auðvitað geri ég það ekki. Jafnvel
þótt ég drepist eða missi meðvitund er alltaf möguleiki á
því að þeir leiti i sprungunum þar til þeir rekast hingað
inn og finna mig meðvitundarlausan.
En til þess kemur aldrei. Ég verð að fylgja golunni inn
í þessa viðbjóðslegu leðurblökuholu. Ég veit hvað verður
að gera, ekki satt?
f Af hverju? Af bvi að
[ við erum búnir að / 1
V pumpa svo mikið af /
\ oliu út úr honum / !
lil::
1
lllffl
Föstudagur
1. ágúst
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 tþróttir- Nýjustu fréttir
og myndir frá iþróttavið-
burðum. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
21.35 Skáld og vikingur. Norsk
kvikmynd um ferðir víkinga
fyrr á öldum og um hinn
dæmigerða viking Egil
Skallagrimsson, heiðingja,
skáld og bardagamann.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson. Atriði úr þessari
mynd voru sýnd hér fyrir
sex árum I myndaflokknum
,,A slóðum vlkinga”. (Nord-
vision-Norska sjónvarpið)
22.25 Skálkarnir (The
Villains) Nýr, breskur
sakamálamyndaflokkur. 1.
þáttur. George. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
Myndaflokkur þessi greinir
frá bankaráni og eftirmál-
um þess. Ræningjarnir, nlu
talsins, sleppa úr varðhaldi,
og greinir slðan frá ferli og
athöfnum hvers þeirra.
23.15 Dagskrárlok
iiliiilll
|
Föstudagur
í. ágúst
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan : ,,í
Rauðárdalnum” eftir Jó-
hann Magnús Bjarnason
Orn Eiðsson les (4).
15.00 Miðdegistónleikar
Guiseppe di Stefano syngur
lög frá Napoll. Hljómsveit
Iller Pattacinis leikur með.
N.B.C. sinfóniuhljómsveitin
leikur „Furutrén I Róm”,
sinfónískt ljóð eftir
Respighi: Arturo Toscanini
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.10 Tónleikar
17.30 „Sýslað I baslinu” eftir
Jón frá PálmholtiHöfundur
les (9).
18.00 Mig hendir aldrei neitt”
stuttur umferðarþáttur I
umsjá Kára Jónassonar.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frá sjónarhóli neyt-
enda: Meistarakerfið og
húsbyggjandinn Reynir
Hugason ræðir við tvo iðn-
meistara úr Keflavik um
galla meistarakerfisins.
20.00 Frá tónlistarhátiðinni I
Helsinki i fyrrahaust
Sinfóniuhljómsveitin i Vln
leikur undir stjórn Carlo
Maria Giulini Sinfóniu nr. 11
c-moll op. 68 eftir Brahms.
20.50 Ljós á vegi. Séra Björn
Jónsson flytur erindi um
fyrstu prestana I vestur-is-
lenzkum söfnuðum.
21.10 Novelettur op. 21 nr. 1, 3
og 4 eftir Schumann Dmitri
Blago leikur á pianó.
21.30 Utvarpssagan: „Hjóna-
band” eftir Þorgils gjall-
anda Sveinn Skorri
Höskuldsson les (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. iþróttir
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar Tónlistarþáttur
I umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.