Fréttablaðið - 04.12.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sími: 550 5000
SUNNUDAGUR
4. desember 2005 — 328. tölublað — 5. árgangur
www.postur.is
5.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum
til landa
utan
Evrópu!
SIRRÝ Í FÓLKI
NFS og Fólk með Sirrý hafa
eins sófa í settinu
Habitat-sófar slá í gegn
FÓLK 50
SÓLEY HALLA MÖLLER
Hundar fá
jólaklippingu
• atvinna
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÓLÆTI Hópur fólks safnaðist saman
fyrir utan þríbýlishús við Njálsgötu
aðfaranótt laugardags, lét ófriðlega
og kastaði eggjum í húsið. Ástæðan
fyrir árásunum á húsið var sú að
fólkið taldi það vera heimili Stefáns
Hjaltested sem kallaður hefur
verið svefnnauðgarinn. Lögreglu
barst tilkynning um ólætin frá íbúa
hússins en hópurinn leystist upp
eftir komu hennar svo hún þurfti
ekki að hafa frekari afskipti af
fólkinu.
Einn af íbúum hússins var mjög
sleginn yfir aðgerðum fólksins og
sagði þetta vera aðra helgina í röð
sem ráðist væri með þessum hætti
á húsið. Hann sagði að Stefán byggi
ekki lengur í húsinu og því væri
það saklaust fólk sem yrði fyrir
óþægindum af þessum árásum.
Íbúinn sagði þá sem byggju í
húsinu vera áhyggjufulla og ekki
vita á hverju þeir ættu næst von.
Stefán Hjaltested var nýlega
dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir hrottalega nauðgun,
en hann er talinn hafa gefið
fórnarlambinu svefnlyf til þess að
koma fram vilja sínum. - eö
Ráðist að húsi þar sem dæmdur kynferðisbrotamaður átti áður heima:
Íbúarnir mjög áhyggjufullir
STJÓRNMÁL Hlutfallslega helmingi
færri íbúar á landsbyggðinni eru
með háskólamenntun en á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í svari
Halldórs Ásgrímssonar forsætis-
ráðherra við fyrirspurn Önnu
Kristínar Gunnarsdóttur, þing-
manns Samfylkingarinnar, en
svörin byggjast á gögnum Hag-
stofu Íslands.
Anna Kristín spurði meðal
annars um menntun eftir aldri í
þéttbýli og dreifbýli.
Í svari forsætisráðherra kemur
fram að á höfuðborgarsvæðinu
eru tæplega 23 prósent á aldrinum
16 til 74 ára með háskólamenntun
en einungis um 12 prósent í sama
aldurshópi á landsbyggðinni.
„Munurinn er sláandi. Á lands-
byggðinni eru um 45 prósent
íbúa á aldrinum 20 til 40 ára ein-
vörðungu með grunnmenntun.
Á höfuðborgarsvæðinu eru 28
prósent á þessum aldri aðeins
með slíka menntun,“ segir Anna
Kristín.
Hún kveðst hafa spurst sérstak-
lega fyrir um aldurshópinn 20
til 40 ára því hann standi meðal
annars undir mannfjölgun. Fram
kemur að á höfuðborgarsvæðinu
eru hlutfallslega fleiri á þessu
aldursbili en á landsbyggðinni.
„Ef 20 til 40 ára íbúa vantar, þá
fækkar fólki í byggðarlaginu í
framtíðinni.“
Anna Kristín bendir á að
stefna stjórnvalda sé að fjölga
störfum sem krefjast sérhæf-
ingar og menntunar. „Þar sem
menntunarstig er lægra er einnig
lægra kaup og meiri hætta á
atvinnuleysi. Niðurstaða mín er
sú að menntakerfið sé stórgallað
fyrst það skilar fólki út í lífið með
svo litla menntun. Er það góður
vitnisburður um menntakerfið
þegar nálægt helmingur íbúa
landsbyggðarinnar á aldrinum
20 til 40 ára er aðeins með grunn-
menntun?“ johannh@frettabladid.is
Menntakerfið beinir
ungu fólki á mölina
Landsbyggðin bíður enn og aftur lægri hlut í samkeppninni um ungt fólk.
Menntakerfið hefur brugðist, segir Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem leitað hefur svara við málinu hjá forsætisráðherra.
Grétar verður hjá Víkingi
Knattspyrnumaðurinn Grétar Sigfinnur
Sigurðsson hefur
ákveðið að spila
með liði Víkings
í Landsbanka-
deildinni á næsta ári.
Hann segir þungu fargi af
sér létt.
ÍÞRÓTTIR 46
Á NJÁLSGÖTU Kynferðisbrotamaðurinn býr
ekki lengur í húsinu en íbúar þess hafa
áhyggjur af árásum á það. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HÖFUÐ-
BORGAR-
SVÆÐIÐ
LANDS-
BYGGÐIN
45%
40%
28%
26%
46%
14% Háskólamenntun
Starfs- og fram-
haldsmenntun
Grunnmenntun
SKIPTING EFTIR MENNTUNARSTIGI
20 - 40 ÁRA
HÆGLÆTISVEÐUR með lítilsháttar
vætu austast á landinu. Ennfremur
verða snjó- eða slydduél á Vestfjörðum
og á Vesturlandi annars úrkomulítið.
Hiti 0-6 stig, hlýjast fyrir austan.
SARAH REINERTSEN
Fyrsta járnkonan með
gervifót
Milljón dala tilfinning
TÍMAMÓT 16
Tsjekhov í
Nemendaleikhúsinu
Nemendaleikhús Listaháskólans
frumsýnir Þrjár systur eftir Anton
Tsjekhov í kvöld.
MENNING 37
Verslunin Vísir
Það verða liðin 90 ár
á morgun frá því
verslunin Vísir opnaði
á Laugaveginum.
VIÐTAL 24
VIÐSKIPTI Eignir íslenskra
lífeyrissjóða verða um tvö þúsund
milljarðar króna eftir tíu ár.
Um síðustu áramót voru eignir
lífeyrissjóða þúsund milljarðar
króna og munu þær því tvöfaldast á
þessum tíma. Til samanburðar var
verðmæti landsframleiðslunnar
árið 2004 885 milljarðar króna.
Þetta kemur fram í grein
eftir Guðmund Guðmundsson
og Kristíönu Baldursdóttur,
sérfræðinga á tölfræðisviði
Seðlabanka Íslands. Þau segja
takmarkaða fjárfestingarkosti
á Íslandi leiða til þess að líf-
eyrissjóðirnir muni stórauka
fjárfestingu erlendis. Ávöxtun
erlendra verðbréfa muni því
skipta sköpum fyrir framtíð
lífeyrissjóðanna. - bg / Sjá síðu 12
Eignir lífeyrissjóða tvöfaldast:
2000 milljarðar
eftir tíu ár
NJÁLSGATA 7 Kynferðisbrotamaðurinn býr
ekki lengur í húsinu en íbúar þess hafa
áhyggjur af árásum á það.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Trúbador frá Húsavík
Þórir Georg Jónsson sem kallar sig My
Summer as a Salvation
Soldier hefur fengið
frábæra dóma
fyrir nýju plötuna
sína, Anarchists
are Hopeless
Romantics.
VIÐTAL 30
STJÓRNMÁL „Þessi lítilsvirðing
ríkisvaldsins á þörf aldraðra um
bætur vegna hærri verðbólgu
slær öll fyrri met,“ segir Pétur
Guðmundsson verkfræðingur og
fulltrúi í starfshópi sem fjallað
hefur um kjör aldraðra.
Pétur segir að desemberuppbótin
á almenna launamarkaðnum færi
ríkinu 650 milljónir króna í skatta.
Auk mikilla skerðinga sem meira
en helmingur aldraðra þarf að
þola greiða aldraðir jafnframt 175
milljónir króna í skatta af 26 þúsund
króna uppbótinni í desember.
„Ríkissjóður græðir á öllu
saman,“ segir Pétur. Sjá síðu 10 / - jh
Uppbót veldur vonbrigðum:
Ríkið vanvirðir
eldri borgara
BÖRN SYNGJA Á BESSASTÖÐUM Íslensk börn af erlendum uppruna færðu forsetanum í gær fyrsta eintakið af geisladiskinum Úr vísnabók
heimsins. Á diskinum eru barnalög frá átján löndum sungin á fimmtán tungumálum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
PÉTUR GUÐMUNDSSON Pétur segir desem-
beruppbótina færa ríkinu 650 milljónir króna.