Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 4
4 4. desember 2005 SUNNUDAGUR Minningar um Einar Olgeirsson edda.is Einar Olgeirsson er einn umdeildasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðustu aldar á Íslandi. Hann var leiðtogi kommúnista og sósíalista og heillaði fjölmarga til liðs við málstað sinn með annálaðri mælsku og persónutöfrum. Hér fjallar Sólveig Einarsdóttir um föður sinn frá ýmsum hliðum, um skoðanir hans og hvernig pólitískt líf hans og einkalíf fléttaðist saman. En ekki síst fjallar þessi bók um afl hugsjóna og hverju er til fórnandi fyrir þær. Bókin er prýdd fjölmörgum myndum sem aldrei áður hafa komið fyrir almenningssjónir. EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands sem gegnir nú formennskunni í Evrópusambandinu, hefur á ferð sinni milli höfuðborga nýju aðildarríkjanna í austanverðri álfunni ekki orðið mikið ágengt við að afla sjónarmiðum sínum hljóm- grunns í mesta ágreiningsmálinu innan sambandsins um þessar mundir. Heimsóknarrúnturinn er liður í undirbúningi leiðtoga- fundar ESB sem markar hápunkt breska formennskumisserisins sem lýkur um áramótin, en hann fer fram í Brussel dagana 15. og 16. desember. Ágreiningur- inn stendur um fjárlagaramma Evrópusambandsins fyrir tíma- bilið 2007-2013. Blair hitti starfsbræður sína frá Póllandi, Tékklandi, Slóvakíu og Ungverjalandi í ungversku höfuð- borginni Búdapest á föstudag. Hugmyndir Blairs um uppstokkun á sjóðakerfi sambandsins hlutu þar kaldar móttökur, enda óttast ráðamenn þar eystra að lönd þeirra missi við þær breytingar spón úr aski sínum - að minni fjárhags- aðstoð við efnahagsuppbyggingu í austantjaldslöndunum fyrrverandi berist úr sjóðum ESB. En Blair varaði við því að það gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir sam- bandið ef ekki tekst samkomulag um fjármálin á leiðtogafundinum nú. „Náist ekki samkomulag núna... tel ég að það sé ólíklegt að við náum nokkru samkomulagi á næstu tveimur formennskumisserum (árið 2006),“ tjáði Blair blaðamönn- um í Búdapest. Hávær krafa er um það meðal margra aðildarríkja að Bretar gefi eftir endurgreiðslur sem þeir hafa fengið úr sjóðum ESB frá því Margaret Thatcher tókst að semja um þær árið 1984. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, hitti pólska forsætisráðherr- ann, Kazimierz Marcinkiewicz, líka á föstudaginn á heimavelli hans í Varsjá. Hún sagði við það tækifæri að ESB yrði að ná „sanngjarnri málamiðlun“ í fjárlagamálinu. Merkel gaf í skyn eftir viðræður sínar við Marcinkiewicz að þýska stjórnin væri reiðubúin að koma til móts við sjónarmið nýju aðildar- ríkjanna. audunn@frettabladid.is Engu nær lausn á fjárlagadeilu ESB Tony Blair hefur lítið orðið ágengt við að afla fylgis við hugmyndir Breta að uppstokkun á fjárlögum ESB í undirbúningi leiðtogafundar sem fram fer um miðjan mánuðinn. Leiðtogar nýju aðildarríkjanna óttast um sinn hag. TREGIR TIL AÐ FYLGJA BLAIR Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands sem nú gegnir formennskunni í ESB, og starfsbræður hans frá nýju aðildarríkjunum, Tékklandi, Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi, í Búdapest á föstudag.MYND/AP VERSLUN Ranglega var hermt í nýjum bæklingi Hagkaups, sem borinn var út í áttatíu þúsund eintökum að morgni fimmtudags, að nýtt kortatímabil væri hafið. Hið rétta er að nýtt kortatímabil hófst í gær, laugardag. Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segir villuna hafa slæðst inn vegna mis- taka í prentun. „En við verðum náttúrulega að standa við 80 þús- und loforð sem við sendum í hús,“ segir hann og kveður fyrirtækið bera kostnaðinn sem af þessu hlaust. „Það var verið að breyta hjá okkur lógói og ég búinn að upplýsa VISA um málið. En auðvitað er skelfilegt þegar svona gerist.“ - óká Hagkaup borgar brúsann: Farið rangt með kortatímabilBRETLAND Til að losa opinbera lífeyrissjóðakerfið úr þeim ógöng- um sem það er komið í hefur breska ríkisstjórnin lagt til að hækka eftirlaunaaldur í áföngum úr 65 árum upp í 68 ár. Í staðinn eiga lífeyrisgreiðslur að hækka og taka fremur mið af ævitekjum en verðbólgu. Stjórnarandstaðan gagnrýnir tillögurnar harðlega og segir þær allt of kostnaðarsamar. Michael Howard, fráfarandi leiðtogi íhalds- manna, benti auk þess á að á valda- tíma ríkisstjórnarinnar hefðu tugþúsundir manna tapað lífeyri sínum. BBC hermir að tólf milljónir Breta yfir 25 ára aldri muni eiga erfitt með að láta enda ná saman þegar þeir komast á eftirlaun.  Breska ríkisstjórnin: Lífeyrisaldur hækkaður ELLIN BÍÐUR ALLRA Árið 2050 þurfa Bretar að vera orðnir 68 ára til að geta hafið töku lífeyris úr opinbera kerfinu.MYND/AP GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 2.12.2005 Gengisvísitala krónunnar 63,51 63,81 109,76 110,3 74,33 74,75 9,973 10,031 9,38 9,436 7,883 7,929 0,5258 0,5288 90,12 90,66 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 105,105 ÚKRAÍNA Úkraínsk yfirvöld hafa fellt niður vegabréfsáritunar- skyldu ferðamanna frá Íslandi og nokkrum öðrum ríkjum í Evrópu sem eiga ekki aðild að Evrópu- sambandinu. Þetta til- kynnti skrif- stofa Viktors Jú s t sj e n k ó Úkraínufor- seta á þriðju- dag, að því er AFP-fréttastofan greindi frá. Áður hafði áritunarskylda fyrir ferðamenn frá Evrópu- sambandslöndunum tuttugu og fimm, Sviss, Bandaríkjunum og Japan verið felld niður, dvelji þeir ekki lengur en 90 daga í landinu. Úkraínskir ríkisborgarar verða eftir sem áður að afla sér vegabréfsáritunar vilji þeir sækja Ísland heim. - aa Úkraína opnar landamærin: Áritunarskylda afnumin VIKTOR JÚSTSJENKÓ Forseti Úkraínu. Enn ein sprengingin Einn lést og þrjátíu eru sárir eftir öfluga sprengingu við dómstól í borginni Gazipur í Bangladess í fyrradag. Fjöldi lögfræðinga hafði safnast saman fyrir utan hús dómstólsins í mótmælagöngu. Aðeins eru fáeinir dagar síðan sex manns létust í sprengingu fyrir utan sama dómshús. BANGLADESS Fíkniefni í Grundarfirði Tveir menn voru stöðvaðir með sextíu grömm af kannabisefnum og tíu grömm af amfetamíni við venjubundið eftirlit lögreglu í Grundarfirði. Mennirnir sem eru á þrítugsaldri hafa áður komið við sögu hennar. Þeim var sleppt að skýrslutöku lokinni. Þá voru fjórir menn teknir fyrir hraðakstur og einn fyrir ölvunarakstur á Snæfellsnesvegi. LÖGREGLUFRÉTTIR SVÍÞJÓÐ Sænski utanríkisráð- herrann Laila Freivalds á að segja af sér en Göran Persson forsætisráðherra á að halda áfram. Þetta er niðurstaða í skoðanakönnun sem gerð var í framhaldi af gagnrýninni á sænsk stjórnvöld eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi í fyrra. Í sænsku vefmiðlunum segir að þjóðin hafi fyrirgefið Persson en að meirihluti þjóðarinnar vilji að Freivalds segi af sér. Stuðningur við vantraustsyfirlýsingu virð- ist fara minnkandi meðal þjóðarinnar.  Skoðanakönnun í Svíþjóð: Vilja Persson en ekki Freivalds BAUGSMÁLIÐ Ákæruliðunum átta í Baugsmálinu, sem nú eru fyrir héraðsdómi, kann að verða vísað frá dómi eða málið fellt niður, að mati Eiríks Tómassonar prófessors. Eiríkur sagði í Ríkisútvarpinu í gærkvöld að þetta kynni að leiða af dómi Hæstaréttar á föstudaginn en þá var felldur úr gildi úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur saksóknari, væri ekki bær til að sækja þennan hluta málsins. Eiríkur telur að í dómi Hæstaréttar felist að héraðs- dómur hafi átt að líta svo á að ákæruvaldið hafi verið fjarverandi í þinghaldi um miðjan nóvember. Héraðsdómur hefði frekar átt að boða nýtt þinghald í héraði. Hæstiréttur tók ekki afstöðu til þess hvort Sigurður Tómas væri bær til að sækja málið eða ekki. Að öllum líkindum verður boðað til nýs þinghalds í héraði og telja fræðimenn að héraðsdómur gæti þá litið svo á að ríkissaksóknarinn væri enn fjarverandi. Dómari gæti þá neyðst til þess að fella málið niður eða vísa málinu frá. - ghs Eiríkur Tómasson prófessor um Baugsmálið: Fellt niður eða vísað frá EIRÍKUR TÓMASSON Eiríkur sagði í gær að héraðsdómur gæti neyðst til að fella málið niður eða vísa því frá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.