Fréttablaðið - 04.12.2005, Síða 16
4. desember 2005 SUNNUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli, andlát og
jarðarfarir í smáletursdálkinn
hér að ofan má senda á
netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
MERKISATBURÐIR
1954 Kvikmyndin Salka Valka, sem
gerð var eftir sögu Halldórs
Laxness, er frumsýnd í
Austurbæjarbíói og Nýja
bíói í Reykjavík.
1971 Veitingahúsið Glaumbær
við Fríkirkjuveg brennur.
Þetta var einn vinsælasti
skemmtistaðurinn í heilan
áratug.
1976 Breska tónskáldið Benjamin
Britten andast.
1991 Síðasta bandaríska gíslnum
er sleppt úr haldi í Líbanon.
Maðurinn hafði þá verið í
haldi mannræningja í 2.454
daga.
1992 Bush Bandaríkjaforseti sendir
mikið herlið til Sómalíu.
1993 Tónlistarmaðurinn Frank
Zappa deyr 52 ára að aldri.
Bandaríska hlaupakonan Sarah Rei-
nertsen skráði nafn sitt í sögubæ-
kurnar þegar hún nýlega varð fyrsta
konan með gervilim til að ljúka „Iron
man“-þríþrautinni á innan við sautján
tímum. Keppnin um járnmannin er
geysilega erfið, þar eru hjólaðir 180
kílómetrar, syntir sjö kílómetrar í sjó
og hlaupið heilt maraþon. Sarah star-
far fyrir Össur í Bandaríkjunum og
var stödd hér á landi í vikunni til að
halda fyrirlestur um reynslu sína.
Hún er snaggaraleg í hreyfingum,
hristir sítt ljóst hárið frá andlitinu
þegar hún tekur hressilega í hendina
á blaðamanni. Yfir henni er norrænt
yfirbragð enda kemur í ljós að mamma
Söruh er norsk og heitir Sólveig.
Það er varla hægt að greina að hún
sé hölt þegar hún gengur á undan inn
á kaffihúsið þar sem hún var að ljúka
öðrum fundi með undirbúningsnefnd
Reykjavíkurmaraþons en það er jafn-
vel líklegt að Sarah taki þátt í því á
næsta ári.
„Ég er þrítug og missti fótinn þegar
ég var sjö ára. Ég fæddist með fæðin-
gargalla sem leiddi til þess að fóturinn
óx ekki rétt, og því var tekin ákvörðun
um að taka fótinn af rétt fyrir ofan
hné því hann var talsvert vanska-
paður,“ segir Sarah í léttum tóni og
gýtur augunum á kærastann sem situr
við hlið hennar. Hann er frá Ástralíu
og þau kynntust á „Iron man“-kepp-
ninni í ár.
Sarah hefur því verið með gervilim
í mörg ár og hefur á þeim tíma séð
ótrúlegar framfarir í tækninni. „Fyr-
sti fóturinn sem ég fékk var úr tré með
gúmmíi. Nú höfum við komist mikið
lengra og það er mjög spennandi að
vinna fyrir fyrirtækið sem gerir þetta
mögulegt,“ segir Sarah og bætir við að
henni finnist ótrúlegt að í þessu litla
landi sé verið að upphugsa tækni sem
hefur áhrif á svo marga í heiminum.
Sarah segist ekki hafa verið íþrót-
tamannsleg á fyrstu árunum eftir afli-
munina. Þegar hún var ellefu ára hitti
hún konu með gervifót sem hafði tekið
þátt í maraþoni. Hún kenndi Söruh að
hlaupa, sagði henni frá ólympíuleikum
fatlaðra og veitti henni innblástur til
að setja háleit markmið. „Það varð
markmið mitt að komast á leikana
fyrir Bandaríkin,“ segir Sarah og
með mikilli ákveðni og staðfestu tókst
henni ætlunarverkið og hún keppti í
hundrað metra hlaupi í Barcelona árið
1992. „Ég fékk ekki verðlaun og varð
mjög vonsvikin en það hvatti mig til
að setja mér næsta markmið sem var
að hlaupa maraþon,“ rifjar Sarah upp
en fimm árum síðar, þá 21 árs árs að
aldri, hljóp hún sitt fyrsta maraþon-
hlaup í New York.
Sarah fylgdist ávallt með „Iron
man“-keppninni í sjónvarpi og dáðist
að þeim sem þrautina þreyttu. Það
hafði því lengi verið draumur hennar
að taka þátt. Kepptnin fer fram víða
um heim en heimsmeistaramótið og
ein erfiðasta leiðin er í Havaí. Engin
kona með gervilim hafði nokkurn tíma
lokið slíkri keppni en tuttugu ár eru
síðan karl gerði það. „Líklega fannst
mér bara kominn tími til,“ segir Sarah
kímin, en þá tilfinningu, að verða fyr-
sta konan með gervifót til að komast
í mark á tilsettum tíma, segir hún
ótrúlega. „Þetta var milljón dala til-
finning,“ segir hún hlæjandi og ben-
dir því til staðfestingar á myndina af
sjálfri sér þar sem hún hleypur í mark.
„Mér finnst ég vera hluti af sögu kepp-
ninnar og að ég hafi breytt viðhorfi
fólks og veiti fólki kannski innblástur,“
segir Sara sem er síður en svo hætt að
hlaupa. „Ég á eftir að hlaupa marga
endaspretti,“ segir hún skælbrosandi
og hlakkar til næstu átaka. ■
SARAH REINERTSEN: FYRSTA JÁRNKONAN MEÐ GERVIFÓT
Milljón dala tilfinning
Í REYKJAVÍK Það er ekki á Söruh að sjá að á hana vanti annan fótinn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
GÓÐUR ENDASPRETTUR Sarah kemur í mark
eftir rúma fimmtán klukkutíma. Hún hafði þá
hjólað 180 kílómetra, synt sjö kílómetra í sjó og
hlaupið heilt maraþon í skóglendi og við erfiðar
aðstæður á Havaí.
Á þessum degi árið 1872 fann lítið breskt briggskip,
undir stjórn David Morehouse skipstjóra, ameríska
skipið Mary Celeste þar sem það sigldi fullum
seglum við Azoreyjar í Atlantshafi. Það var vel
sjófært, geymslurými full af vistum en ekki sála um
borð.
Þann 7. nóvember hafði Mary Celeste lagt af stað
frá New York en stefnan var sett á Ítalíu. Um borð
voru skipstjórinn Benjamin Briggs, kona hans og
tveggja ára dóttir ásamt átta manna áhöfn.
Þegar Morehouse og menn hans fóru um borð
í skipið fundu þeir dagbók skipstjórans en síðasta
færslan hafði verið rituð níu dögum áður. Þá var
skipið statt um 500 sjómílum frá þeim stað sem það
síðar fannst mannlaust. Briggs skipstjóri, fjölskyda
hans og áhöfn fundust aldrei og ráðgátan um af
hverju þau yfirgáfu Mary Celeste er fram á þennan
dag óleyst.
ÞETTA GERÐIST > 4. DESEMBER 1872
Leyndardómur Mary CelesteHANNES HAFSTEIN (1861-1922) FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Strikum yfir stóru orðin,
standa við þau minni
reynum.“
HANNES HAFSTEIN VAR SKÁLD
OG FYRSTI RÁÐHERRA ÍSLANDS.
AFMÆLI
Chloe Ophelía
Corbulew fyrirsæta
er 24 ára.
Ingibjörg
Reynisdóttir
leikkona er 35
ára.
Arnar Jensson
aðstoðaryfirlög-
regluþjónn er
fimmtugur.
Sólborg
Guðmundsdóttir,
Flatahrauni 16b,
Hafnarfirði, varð
áttræð 9. ágúst
síðastliðinn. Af því
tilefni viljum við
bjóða vinum og
vandamönnum til kaffisamsætis að
Garðaholti í dag milli klukkan 15.00
og 18.00.
Ásgerður
Búadóttir
myndlistarkona
er 85 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1902 Samuel
Butler skáld.
1795 Thomas
Carlyle
rithöfundur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi
Óli J. Blöndal
frá Siglufirði
Unnarbraut 1, Seltjarnarnesi
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju, mánudaginn
5. desember kl. 13:00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög
Margrét B. Blöndal
Ólöf Birna Blöndal Sveinn Þórarinsson
Jósep Ó. Blöndal Erla Harðardóttir
Ásbjörn Ó. Blöndal Jóhanna Guðmundsdóttir
Sigurður Ó. Blöndal Linda Björk Guðmundsdóttir
Bryndís J. Blöndal
Guðrún Ó Blöndal Friðrik Jón Arngrímsson
afa og langafabörn
Dánar_Óli J 3.12.2005 16:34 Page 1
60 ára
Mánudaginn 5. desember verður
Örn H. Tyrfingsson, vélfræðingur
í Elliðaárstöð, 60 ára.
Af því tilefni ætla hann og konan
hans Lena M. Hreinsdóttir að
hafa „Opið hús“ í Félagsheimili
starfsmanna Orkuveitunnar í
Elliðaárdal, milli kl. 17.00 og
19.00 þann dag.
Afmæli_Orn H 3.12.2005 16:35 Page 1
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkærrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Jóhönnu I. Þorbjörnsdóttur
Einigrund 5, Akranesi
Sérstakar þakkir til heimilishjálpar og strafsfólks lyfja-
deildar sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka alúð og góða
umönnun.
Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir, Björn Mikalesson
Inga Þorbjörg Steindórsdóttir, Sigurður Mikaelsson
Sigurður Heiðar Steindórsson, Sigríður Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Dánar_Jóhanna 3.12.2005 16:35 Page 1