Fréttablaðið - 04.12.2005, Síða 28

Fréttablaðið - 04.12.2005, Síða 28
[ ] Ungt fólk í atvinnuleit getur fengið margs konar aðstoð hjá Vinnumiðlun ungs fólks. Vinnumiðlun ungs fólks hefur haft það að meginmarkmiði að úthluta ungu fólki sumarstarf. Á síðasta ári var hins vegar ákveðið að miðlunin skyldi starfa allt árið. Henni er ætlað að styrkja stöðu ungs fólks í Reykjavík á atvinnumarkaði, efla rannsóknir á atvinnuþátttöku ungs fólks og koma á samstarfi við fyrirtæki og stofnanir. „Vinnumiðlun ungs fólks leitast við að hjálpa ungu fólki í atvinnuleit,“ segir Gerður Dýrfjörð verkefnisstjóri. „Við aðstoðum fólk frá 17 ára aldri og upp úr á marga vegu. Í könnun sem við gerðum í sumar kom fram að þátttakendur vildu sjálfsstyrking arnámskeið, áhugasviðsgreiningu og þjálfun í viðtalstækni. Við gefum leiðbeiningar um hvar þessa þjónustu er að fá og gefum ákveðnar grunnleiðbeiningar,“ segir Gerður. „Á heimasíðu okkar er líka að finna upplýsingar og leiðbeiningar sem gott er að líta yfir.“ Eitt af því sem Vinnumiðlun ungs fólks býður upp á er aðstoð við gerð atvinnuumsókna og ferilskráa. „Fólk veit ekki alltaf hvernig er best að fylla út umsókn. Stundum er beðið um upptalningu á námi og fyrri störfum. Þeir sem hafa ekki margt að setja í þessa reiti geta þess í stað dregið fram það sem fer þeim vel úr hendi, hverjir helstu styrkleikar þeirra eru og hæfni, og sagt aðeins frá sjálfum sér. Þetta getur skipt miklu máli til að komast í viðtal,“ segir Gerður og bætir við að hægt sé að fá aðstoð við gerð ferilskrár sem geti nýst til margra ára með því að bæta inn í hana eftir því sem við á. Vinnumiðlun ungs fólks hefur séð um ráðningar í sumarstörf á vegum Reykjavíkurborgar. „Þetta eru um 1.700 til 2.000 störf á hverju ári. Mest í gatnamála- og garðyrkjudeild en líka mikið í íþrótta- og tómstundastarfi. Það eru líka mörg önnur störf í boði en í minna mæli. Ungt fólk þekkir þá þjónustu sem við bjóðum upp á á sumrin. Nú getur það komið á veturna líka og fengið aðstoð,“ segir Gerður að lokum. einareli@frettabladid.is Aðstoð við gerð umsókna og ferilsskráa Hófleg streita getur virkað afkastahvetjandi en verði streitan of mikil er voðinn vís og geta afleiðingarnar verið allt frá kulnun í starfi upp í alvarleg atvinnumistök og sjúkdóma. Sextíu prósent læknaheimsókna í Bandaríkjunum eru vegna sjúkdóma og veikinda sem rekja má til streitu. Fjörutíu prósent starfsmanna telja sig vinna of mikið og vera undir of miklu álagi, samkvæmt tölum frá bandaríska vinnueftirlitinu, og bandarískt efnahagslíf tapar árlega 300 milljörðum dollara vegna veikinda og annarra þátta sem rekja má til streitu. Þetta kemur fram í nýlegri umfjöllun í viðskiptatíma- ritinu Harvard Business Review. Streita er lífeðlis- fræðileg viðbrögð við bæði góðum og slæmum breytingum. Hún getur örvað afköst okkar, skerpt einbeitinguna og gefið okkur aukinn kraft en hún getur einnig haft skaðleg áhrif á heilsu fólks, segir Herbert Benson læknir sem lengi hefur rannsakað áhrif streitu. Benson segir að finni maður streituna hlaðast upp innra með sér, sé nauðsynlegt að leggja vandamálin til hliðar og einbeita sér að öðru. Flestir hafa upplifað hvernig lausninni á vandamálunum getur allt í einu skotið upp í hugann hafi maður hætt að velta sér upp úr þeim og sé farinn að einbeita sér að öðru. Benson leggur til að fólk noti þessa aðferð reglulega, og haldi síðan í vellíðanina og sjálfstraustið sem kemur í kjölfarið þegar vandamálin eru leyst. ■ Hafðu stjórn á streitunni eru tilvalin á þessum árstíma. Það getur verið gaman að bjóða vinnufélögunum heim og kynnast þeim betur. Fólk kynnist alltaf betur þegar það gerir eitthvað saman utan vinnu. Vinnustaðapartý Hópur eftirlaunaþega verður æ fjölmennari á Vesturlöndum á meðan þeim sem greiða í eftirlaunasjóði fer fækkandi. Í iðnríkjunum verður sú staða æ meira áberandi að eldri borgur- um á eftirlaunum fjölgar á meðan fólki á vinnumarkaði sem greiðir í lífeyrissjóðina fækkar. Samkvæmt samantekt OECD er opinber eftirlaunaaldur í kringum 65 ára í flestum þessara landa en flestir hætta reyndar að vinna mun fyrr og fæstir seinna en þessi aldur segir til um. Karlmenn á Íslandi, í Sviss og Japan eru reyndar undantekning en þeir vinna yfirleitt lengur en lögbundinn eftirlaunaaldur segir til um, þeir japönsku jafnvel 10 árum lengur. Þetta kemur fram í The Economist. Þær kynslóðir sem komast á eftirlaun á næstu árum eru afar fjölmennar vegna mannfjöldasprengju sem átti sér stað á Vesturlöndum upp úr síðari heimstyrjöldinni en það sama er ekki hægt að segja um næstu kynslóðir á eftir. Í sumum löndum hefur komið upp sú hugmynd að hækka eftirlaunaaldurinn, til dæmis í Bretlandi og Þýskalandi þar sem hægt og sígandi á að hækka eftirlaunaaldurinn úr 65 árum að meðaltali upp í 67 ára eftir 15- 30 ár. En fleira verður að koma til ef þessi tilraun á að takast, að mati Economist, einkum þarf viðhorf vinnuveitenda til eldra starfsfólks að breytast. ■ Eftirlaunavandi iðnríkjanna Í mörgum löndum heims er litið á verkalýðsfélög sem ógn og stöðugt brotið á réttindum meðlima þeirra. Árið 2004 voru 145 manneskjur myrtar vegna þess að þær tóku þátt í starfi verkalýðsfélaga. Þetta kemur fram á vef BSRB, bsrb.is, og er meðal þess sem kemur fram árlegri skýrslu Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga um brot gegn réttindum verkalýðsfélaga. Eru þar rakin viðvarandi brot gegn rétti fólks til að mynda og vera í verkalýðsfélögum og eru þessi brot af öllum toga. Meðal þeirra glæpa sem framdir eru gegn verkalýðsforkólfum eru morð, ofbeldi, fangelsisvist og bann við tilvist verkalýðsfélaga og þá eru ótalinn sá fjöldi sem er rekinn úr starfi fyrir það eitt að krefjast sanngjarnra réttinda og í löndum án velferðarkerfis, þýðir það ávísun á fátækt og örbirgð. ■ 145 verkalýðsleiðtogar myrtir á síðasta ári Gerður Dýrfjörð, verkefnisstjóri hjá Vinnumiðlun ungs fólks, segir fólk í atvinnuleit ekki alltaf kunna að fylla út atvinnuumsóknir og ferilskrár. Hjá vinnumiðluninni er boðið upp á aðstoð við hvort tveggja. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Streita getur valdið alvarlegum veikindum. Allt er öldruðum fært og engin ástæða til að láta fullfrískt fólk hætta að vinna þó það nái 67 ára aldri. Lech Walesa. Íslenskar bækur eru í æ ríkara mæli prentaðar hérlendis. Íslenskar bækur eru í meira mæli prentaðar hérlendis í ár en í fyrra. Bókasamband Íslands gerði könnun á þessu efni sem birtist í Bókatíðindum og hún sýnir að hlutfall prentunar innanlands hefur aukist um 1,5% frá síðasta ári. Þetta er vel af sér vikið hjá íslenskum prentfyrirtækjum, ekki síst þegar tekið er tillit til hás gengis íslensku krónunnar sem gerir samkeppni við erlendar prentsmiðjur enn erfiðari. 33% barnabóka eru prentaðar hérlendis og 62,3% skáldverka. Fræðibækur eru flestar prentaðar hér á landi eða 78,6%. Það er því ljóst að íslenskur prentiðnaður er í sókn og er það vel. Íslenskir prentarar prenta íslenskar bækur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.