Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 34
ATVINNA
8 4. desember 2005 SUNNUDAGUR
Águst Bent Sigbertsson
eða bara Bent eins og
flestir þekkja hann,
hóf nú í vikunni störf í
Skífunni í Smáralind.
,,Ég er einn af þeim sem er í
skóla og fékk því jólafrí eins
og margir aðrir. Þannig að
sem nemi á barmi gjaldþrots
ákvað ég að reyna að fá mér
einhverja vinnu í jólafríinu.
Þar sem ég hef nú líka verið
að bæði gefa út plötur og
spila plötur í útvarpinu þá
var alveg kjörið að ég færi
bara að selja plötur líka,“
segir Bent galvaskur en
hann sagir samt að hann
væri strax orðinn valtur í
starfi því það hefði verið
að hótað að reka hann strax
eftir tvo eða þrjá tíma.
Sjálfur ætlar Bent frekar
að reyna selja plötur vina
sinni í bransanum en sínar
eiginn. ,,Ég hef reyndar
ekki gefið út plötu í tvo eða
þrjú ár þannig að ég fer
varla að pranga þeim út
núna. Ég reyni náttúrulega
að koma mínum út enda eru
þessar plötur flestar sígild
meistaraverk.“
Bent segist ekki segist
ekki hafa unnið í mjög
mörgum störfum yfir
ævina enda hafi hann verið
í skóla frá því að hann
man eftir sér. ,,Uppáhalds
vinnan mín til þessa hefur
samt verið í útvarpinu
þar sem ég hef getið sinnt
mínu helsta áhugamáli.
Ég hef heldur aldrei unnið
sem afgreiðsludama áður
og núna um helgina er ég
að fara að vinna í fyrsta
skipti síðan ég man eftir
mér á laugardegi.“ Verstu
vinnuna sína til þessa
telur Bent að hafi verið
bæjarvinnan enda eru mjög
sérstakt fólk sem hangir í
slíkri unglingavinnu fram
á fullorðinsár.
Í sumar vann Bent sem
ruslakall og ber hann þvi
starfi vel söguna. Það muna
kannski margir eftir því
að Bent var fyrir nokkrum
árum atvinnurappari og
því má segja að hann hafi
farið úr öskunni og í eldinn.
,,Maður er að reyna að
komast aftur í bransann
enda hefur maður verið
pínu þunglyndur yfir þessu
öllu saman. Kannski eru
mínar 15 mínútur af frægð
bara búnar. Maður sér bara
til en samt er maður ennþá
nógu þekktur til þess að
koma fram í Fréttablaðinu
af því að ég var að fá nýja
vinnu,“ segir Bent að lokum
með vonarneista í röddinni.
Er orðinn
afgreiðsludama
Bent með einu af sínu sígildu meistaraverkum. VILHELM
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Áhugaverð störf í boði
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla
og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leik-
skólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og
eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir
menntaráð og starfshópa á vegum ráðsins.
MENNTASVIÐ – GRUNNSKÓLAR
Grunnskólakennarar
Háteigsskóli, í síma 530-4300
• Tónmenntakennari óskast í 50% stöðu frá og með
1. mars 2006.
Hlíðaskóli, í síma 552-5080
• Sérkennari óskast í 70% stöðu frá áramótum.
• Kennari með táknmálskunnáttu óskast til að kenna 6 tíma
á viku.
Hvassaleitisskóli, í síma 570-8800
• Heimilisfræðikennari óskast til að kenna 6 tíma á viku, á
miðviku- og föstudögum, frá áramótum.
Langholtsskóli, í síma 553-3188
• Sérkennari óskast í 100% stöðu.
Hæfniskröfur:
• Kennarapróf
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Faglegur metnaður
• Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
Bókasafnsfræðingur
Ingunnarskóli, í síma 411-7828
• Bókasafns-og upplýsingafræðingur óskast í 75-100% stöðu
frá 1. jan. 2006. Um er að ræða nýtt skólabókasafn í örum
vexti sem býður upp á mikla möguleika og mótunarstarf.
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón með daglegri starfsemi bókasafnsins
• Tilbúinn að vinna náið með nemendum, kennurum og
öðru starfsfólki skólans að þróun skólastarfsins.
• Önnur verkefni sem stjórnendur kunna að fela
viðkomandi og fellur innan eðlilegs starfssviðs
Hæfniskröfur:
• Bókasafns- og upplýsingafræði
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Tilbúin að vinna á opnum svæðum
Stuðningsfulltrúi
Grandaskóli, í síma 561-1400
• Stuðningsfulltrúi óskast í 50-100% stöðu frá 3. janúar
2006.
Háteigsskóli, í síma 530-4300
• Stuðningsfulltrúar óskast í 50% stöður.
Langholtsskóli, í síma 553-3188
• Stuðningsfulltrúi óskast í 75% stöðu.
Öskjuhlíðaskóli, í síma 568-9740
• Stuðningsfulltrúi óskast í 50-70% stöðu.
Helstu verkefni:
• Að vera kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri
nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð
• Að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega,
námslega og í daglegum athöfnum
Hæfniskröfur:
• Nám stuðningsfulltrúa æskilegt
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla og áhugi á að vinna með börnum
• Frumkvæði í starfi
Skólaliðar
Grandaskóli, í síma 561-1400
• Skólaliði óskast í 50-100% stöðu frá 3. janúar 2006.
Háteigsskóli, í síma 530-4300
• Skólaliði óskast í 50% stöðu. Vinnutími frá kl 9-13.
Korpuskóli, í síma 411-7880
• Skólaliði óskast í 50-100% stöðu.
Langholtsskóli, í síma 553-3188
• Skólaliði óskast í 100% stöðu.
Helstu verkefni:
• Að sinna nemendum í leik og starfi
• Að sjá um daglegar ræstingar
• Að sinna tilfallandi verkefnum
Hæfniskröfur:
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
• Vandvirkni og snyrtimennska
Ræstingarstarf
Hamraskóli í síma 567-6300
• Óskað er eftir starfmanni í hlutastöðu vegna daglegra
ræstingar sem eru unnar síðdegis.
Hæfniskröfur:
• Snyrtimennska
• Vandvirkni í starfi
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar í við-
komandi grunnskólum. Umsóknir ber að senda til viðkom-
andi skóla. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavík-
urborgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um
laus störf er að finna á www.grunnskolar.is
Störfin eru laus til umsóknar nema annað sé tilgreint.
Laust er starf leikskólastjóra við leikskólann
Hólabæ á Reykhólum í Austur-Barðastrandar-
sýslu. Á Hólabæ eru 14 börn.
Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Reykhólahrepps,
sími 434 7880. Netfang: sveitarstjori@reykholar.is
Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð og einungis tæplega 3
tíma akstur til Reykjavíkur. Þar er öll almenn þjónusta fyrir
hendi s.s. leikskóli, grunnskóli, mjög góð sundlaug,
bókasafn, heilsugæsla, verslun og kirkja. Verið er taka í
notkun nýtt og glæsilegt íþróttahús.
LEIKSKÓLASTJÓRI ÓSKAST
REYKHÓLAHREPPUR
www.reykholar.is
Smiðir
Vegna aukinna verkefna óskar JB Byggingafélag
eftir að ráða smiði og mótamenn í uppslátt,
góður mælingaflokkur. Næg verkefti næstu árin.
Geta byrjað strax eða eftir áramót.
Upplýsingar gefa Kristján Yngvason í síma
693-7005. Einnig er hægt að sækja um á
heimasíðu félagsins www.jbb.is
Hjá JB Byggingafélagi er boðið er uppá góða
starfsaðstöðu og líflegt starfsmannafélag.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s: 544-5333
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða arkitekt til
starfa á umhverfis- og tæknisviði.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Helstu verkefni eru deiliskipulagsgerð, umsjón með
aðkeyptri skipulagsvinnu og yfirferð byggingar-
nefndarteikninga m.t.t. skipulagsskilmála. Skilyrði
er háskólapróf í arkitektúr. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi reynslu af deiliskipulagsgerð, ásamt þekk-
ingu á skipulags- og byggingarlögum og -reglu-
gerðum. Lipurð í mannlegum samskiptum er mik-
ilsverður eiginleiki. Æskilegt er að umsækjandi geti
hafið störf fljótlega eftir áramótin.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og Launanefndar
sveitarfélaga eða viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið veitir Bjarki Jóhannesson,
sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs í síma 585
5500.
Umsóknum skal skila til umhverfis- og tæknisviðs
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, eigi síðar en
17.desember n.k.
LAUST STARF
ARKITEKTS HJÁ
HAFNARFJARÐARBÆ