Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 60
 4. desember 2005 SUNNUDAGUR32 Í lokabindi ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, sem út kemur í næstu viku, er meðal annars fjallað um frægan umræðuþátt í sjónvarpinu árið 1975 þar sem Halldór var meðal þátttakenda. Þetta mun vera eina sjónvarpsefnið með Laxness sem ekki hefur varðveist. Virðist sem upptökunni hafi verið eytt en engin svör hafa fengist um það af hverju. Hér er gripið niður í bók Hannesar þar sem um þetta er fjallað. Allir horfðu á „Nær allir landsmenn fylgdust með sjónvarpinu þessi árin. Laxness kom þar fram í frægum þætti um mannréttindi þriðjudagskvöldið 4. nóvember 1975. Tilefnið var, að Kremlverjar höfðu gengið hart fram gegn andófsmönnum í Ráðstjórnarríkjunum. Gunnar G. Schram stjórnaði þættinum, sem var tekinn upp síðdegis þennan dag, skömmu fyrir útsendingu. Með Laxness í sjónvarpssal voru Gunnar Gunnarsson skáld, Matthías Johannessen ritstjóri og Jónas Árnason alþingismaður. Þeir settust við skeifulaga borð, Matthías lengst til hægri frá áhorfendum séð, Laxness við hlið hans, stjórnandi þáttarins í miðjunni, Gunnar við hlið hans og Jónas yst til vinstri. Gunnar var orðinn hrumur mjög. Hann hafði það, sem hann vildi segja, með sér á blaði og las það upp. Stundum átti hann í erfiðleikum með að finna réttu línurnar. Í upphafi sögðu Laxness og Matthías eins og Gunnar nokkur vel valin orð um ofsóknir ráðstjórnarinnar gegn rithöfundum. Þegar röðin kom að Jónasi, mótmælti hann því, sem hann kallaði fyrirlestrahald í þættinum. Hann vék sér að Matthíasi og skammaði Morgunblaðið fyrir hræsni í mannréttindamálum. Matthías kvaðst efast um heilindi Þjóðviljans í þeim málum. Hófst kappræða milli Jónasar og Matthíasar, en Gunnar og Laxness hlustuðu þegjandi á.“ Reiðisvipur Laxness Þá kemur að atvikinu sem gerði þennan sjónvarpsþátt frægan. Hannes skrifar: „Smám saman færðist reiðisvipur yfir andlit Laxness, uns hann barði báðum hnefum nokkrum sinnum í borðið til þess að fá orðið, sló síðan höndunum út frá sér með lófana upp, eins og hans var vandi, og sagði: „Væri ekki hægt að lyfta umræðunni á hærra plan, ha?“ Þögnuðu þeir Jónas og Matthías snarlega, en Gunnar sagði ekki orð. Laxness flutti síðan innblásna tölu gegn hinu innantóma karpi, sem einkenndi umræður á Íslandi. „Þessi þvæla ríður húsum á hverjum degi.“ Gunnar las aftur upp af blöðum sínum, sem hann hélt á skjálfandi hendi. Hann taldi einsýnt, að mannkynið færist, yrði ekki hugarfarsbreyting; hverjum og einum væri hollt að láta gott af sér leiða. Þáttarstjórnandinn spurði Laxness, hvort hann væri bjartsýnn á framvinduna. Lax- ness sagðist ekki leggja sig niður við að velta vöngum yfir því. Þeir Jónas og Matthías töluðu síðan nokkuð um mannréttindabrot, en Laxness neytti ekki réttar síns til lokaorða, heldur hneigði sig og læsti munninum saman.“ Jónas vildi breytingar „Eftir upptökuna óskaði Jónas Árnason eftir því við upptökustjórann, Rúnar Gunnars- son, að þátturinn yrði styttur. Vildi hann taka út skammir nóbelsskáldsins um þá Matthías. Rúnar kvaðst ekki geta gert það, nema allir þátttakendur yrðu sammála um það. Hann bar þessa ósk undir Laxness, sem setti upp undrunarsvip og svaraði: „Vilja þessir menn klippa þátt með Gunnari Gunnarssyni, fremsta rithöfundi þjóðarinnar? Hvaða menn eru það sem vilja klippa Gunnar Gunnarsson? Ég þekki ekki þannig menn og þykist vita að þeir séu hvergi til.“ Var ákveðið að senda þáttinn út óbreyttan. Eftir upptökuna skiptust Laxness og Gunnar á nokkrum vingjarnlegum orðum. Laxness spurði, hvort hann færi enn að vinna klukkan sex á morgnana, eins og forðum í Hillerød, þegar þeir unnu saman að þýðingu Sölku Völku á dönsku. Gunnar svaraði játandi og hló við. Hann sagðist þó ekki vera eins handfljótur að hita sér morgunkaffi og áður. Hann yrði að taka sér hvíld, þegar hann hefði skrifað hálfan annan tíma í einu. Síðan var Gunnar leiddur út úr húsinu og honum ekið heim til sín.“ Yfir kaffibolla „Þeir Laxness, Matthías og Jónas settust niður yfir kaffibolla frammi í setustofu við upptökusalinn. Laxness kveikti sér í stórum vindli. Matthías sagðist taka nærri sér að hafa verið í þessum þætti. Öðru máli gegndi sennilega um Jónas, sem væri þingmaður og vanur hörðum átökum. „Þingmaður,“ sagði þá Laxness. „Þingmaður! Skyldi vera til nokkuð ómerkilegra en það að vera þingmaður?“ Þátturinn vakti mikla athygli. Halldór Pétursson teiknaði skopmynd af honum í Morgunblaðið, sem birtist 6. nóvember. Sjónvarpsgagnrýnandi blaðsins, Jóhannes Helgi, sagði að Jónas Árnason hefði lítt notið sín. „Hinu má samt ekki gleyma, að karp þeirra Matthíasar og Jónasar, sem síðarnefndur átti upptökin að, varð þá altént til þess, að við urðum þeirrar skemmtunar aðnjótandi að sjá Halldór Laxness næstum rifna af heilagri bræði. Þar með er sú hlið Halldórs varðveitt á filmu handa framtíðinni.“ Það gekk að vísu ekki eftir. Af einhverjum ástæðum var myndbandinu með þættinum eytt, og hafa engin svör fengist um það, hver þar hafi verið að verki. Gunnar Gunnarsson lést tveimur vikum seinna.“ Væri ekki hægt að lyfta umræðunni á hærra plan, ha? Upptöku af frægum sjónvarpsþætti þar sem Halldór Laxness reiddist þingmanni Alþýðubandalagsins og ritstjóra Morgunblaðsins var eytt. Jónas Árnason. Halldór Laxness. Gunnar Shcram prófessor. Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri. Gunnar Gunnarsson skáld. Skopteikning Halldórs Péturssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.