Fréttablaðið - 04.12.2005, Síða 64
4. desember 2005 SUNNUDAGUR36
■ Sudoku dagsins
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver dálk-
ur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á bilinu
1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
sinnum í sömu línu, sama dálki eða sama 3x3
kassa. Engin stærðfræðikunnátta er nauðsynleg
þó leikið sé með tölum. Þrautin er leyst með
rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blaðinu
á morgun.
Lausn á gátu gærdagsins
MEDIUM # 20
9 7
2 3 6
8 3 4 9
9 1 4
7 8 1
4 7 5
9 8 6 5
2 6 3
6 5
19 1 6 5 8 4 3 9 2 7
2 4 7 5 9 1 3 6 8
3 9 8 7 2 6 4 1 5
4 8 1 6 3 7 2 5 9
7 3 9 4 5 2 6 8 1
5 2 6 9 1 8 7 3 4
6 5 3 1 7 4 8 9 2
8 1 4 2 6 9 5 7 3
9 7 2 3 8 5 1 4 6
�������� ������������������
���������� ���������
�������������������������� ���
�����������������
���������������������������������
�����������
����
����������
���������
����
����������
�������������
���������
��������
������
������������
������
�������
TAPAÐU ÞÉR Í SUDOKU Á PSP!
Í næstu
verslun
Í gær varð ég
þrítugur. Ég hef
kviðið þessum degi í
nokkur ár enda þjáist
ég af alvarlegum
aldurskomplexum.
Síðustu ár hef ég
fengið útrás vegna
þessara Péturs
Pan –einkenna á
vinum mínum og
ættingjum sem eru nokkrum árum
eldri en ég. Það hefur þó ekki skilað
mér öðru en meiri kvíða þegar ég
sé áhyggjusvipinn sem myndast í
hrukkóttum andlitum þeirra.
Síðustu ár hefur konan mín,
sem er nokkrum árum yngri en
ég, hughreyst mig á ýmsa vegu
og reynt að telja mér trú um að
aldurinn sé nú bara afstæður.
Fyrir nokkrum vikum breyttist
þó tónninn. Það rann allt í einu upp
fyrir henni að hún á mann sem er
að skríða inn á fertugsaldurinn.
Ég hef reynt að sannfæra hana
um að hvatningarorð hennar
væru nú ekki úr lausu lofti gripin.
Ég hef bent henni stoltur á að
ég sé ekki kominn með bumbu
og að ég líti lífið nú ekki sérlega
alvarlegum augum eins og ungu
fólki sæmir.
Ég hef jafnvel reynt að sannfæra
hana um að ég sé enn ungur í anda
með endalausum bröndurum og
skemmtiatriðum á borð við að
standa á höndum og dansa hálf
nakinn á stofugólfinu. Ég hef
jafnvel sýnt henni sirkusatriði
með því að troða mér inn í lítinn
skáp á heimili okkar. En allt án
árangurs. Henni stekkur ekki
bros á vör. Einu viðbrögðin sem
ég fæ eru: „Ertu nú ekki orðinn of
gamall fyrir svona lagað?“
Eftir að hafa velt þessu
fyrir mér í dágóða stund, með
tilheyrandi kvíðaköstum,
langsóttum útskýringum og
endalausu spjalli við sjálfan
mig hef ég komist að því að
þetta snýst bara alls ekkert um
aldurskomplexa, hvorki hjá mér
né eiginkonu minni.
Út frá þeim staðreyndum sem
fyrir liggja hef ég komist að þeirri
vitrænu niðurstöðu að þegar
karlar eldast, missa eiginkonur
þeirra húmorinn. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA Að missa húmorinn
KRISTJÁN HJÁLMARSSON KVEIÐ ÞVÍ AÐ ELDAST
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI