Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 71

Fréttablaðið - 04.12.2005, Side 71
SUNNUDAGUR 4. desember 2005 43 Opið lau.: 11:00 - 16:00 // sun.: 13:00 - 16:00 FÓTBOLTI Talið er að næstum hálf milljón manns hafi verið á götum Belfast um hádegisbilið í gær þegar útför knattspyrnugoðsagna rinnar George Best fór fram. Fjöldi þekktra einstaklinga úr knattspyrnuheiminum heiðr- aði Best og fjölskyldu hans með nærveru sinni, þar á meðal fyrrum liðsfélagar hans hjá Manchester United, Denis Law og Harry Gregg, ásamt þjálfara landsliðsins Sven-Göran Eriksson og fyrrum þjálfara Celtic, Martin O´Neill. Alex Ferguson var að sjálfsögðu viðstaddur og mætti ásamt Norðamanninum Ole Gunnar Solskjær. Um leið og jarðarförinni lauk steig Ferguson upp í flugvél til að stjórna sínum mönnum í leiknum gegn Portsmouth sem fram fór í gær. Yfir tíu þúsund manns klöppuðu fyrir Best þegar bifreiðin sem hann hvíldi í lagði að kirkjunni þar sem sjálf útförin fór fram og mátti sjá tár á vöngum ófárra sem viðstaddir voru. Calum, sonur Best, sagði eftir athöfninna að dagurinn væri vissulega erfiður en jafnframt ótrúlegur. „Allur stuðningur ykkar er ómetanlegur,“ sagði hann við allt fólkið á götum Belfast sem syrgði Best. Mikinn mannmergð myndaðist á þeim götum sem farnar voru til að komast frá kirkjunni að Roselawn-kirkjugarðinum. Þar var Best að lokum grafinn við hlið móður sinnar. George Best fylgt til hinstu hvílu í gær: Fjölmenni fylgdist með útför Best MANNMERGÐ Ótrúlegur fjöldi fólks fylgdist með útför George Best í Belfast í gær og er talið að um hálf milljón manna hafi verið á götum borgarinnar þegar mest var. FÓTBOLTI Harry Redknapp, sem sagði starfi sínu sem knattspyrnustjóri Southampton lausu í gær, segir að hann hefði ekki átt annara kosta völ en að fara þá leið. Redknapp er sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Portsmouth og segir hann að um leið og hann hafði óskað eftir því við forráðamenn Southampton að fá að ræða við Porstmouth hefði komið í ljós að þeir væru ekki sáttir með hann. „Um leið og ég hafði beðið þá um að fá að ræða við Portsmouth varð ég var við óánægju frá þeim. Hefði ég rætt við Portsmouth og ekki fengið starfið hefði ég aldrei getað snúið aftur til Southampton. Því átti ég ekki annara kosta völ en að segja upp,“ sagði Redknapp sem þarf þó varla að hafa miklar áhyggjur því hann þykir nánast öruggur um að hreppa starfið hjá þeim bláklæddu, það er ef forráðamenn Southampton samþykkja að sleppa honum. „Ég hef átt stórkostlegan tíma hjá Southampton en okkur lenti saman og við því er ekkert að gera,“ sagði Redknapp að lokum. - vig Harry Redknapp: Gat ekki annað en sagt upp HARRY REDKNAPP Fer úr ensku 1. deildinni og líklega í úrvalsdeildina.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.