Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 4
4 5. desember 2005 MÁNUDAGUR
Frakki myrtur Franskur ferðamaður
var skotinn til bana í Afríkuríkinu Níger
á föstudag. Frönsk yfirvöld staðfestu
þetta á laugardag. Ekki er vitað hvort
ræningjahópar sem sitja um ferða-
langa til sveita víða í Níger beri ábyrgð
á ódæðinu, og frönsk stjórnvöld gáfu
engar frekari skýringar.
NÍGER
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 2.12.2005
Gengisvísitala krónunnar
63,51 63,81
109,76 110,3
74,33 74,75
9,973 10,031
9,38 9,436
7,883 7,929
0,5258 0,5288
90,12 90,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,105
IÐNAÐUR Borverk Kárahnjúk-
avirkjunar er nú rúmum tveim-
ur mánuðum á eftir áætlun, að
mati Sigurðar Arnalds, upplýs-
ingafulltrúa virkjunarinnar hjá
Landsvirkjun. Hann segir tvær
leiðir helstar í stöðunni til að
vinna upp glataðan tíma.
„Staðan er þannig að bor eitt
hægði á sér tímabundið, hann er
að fara í gegnum misgengi sem er
nú ekkert mjög alvarlegt, en ligg-
ur skáhallt á göngin,“ segir hann
en bætir við að framundan sé
hagstæðara berg. „Í sjálfu sér er
ekkert erfitt að bora, en það þarf
að styrkja jafnóðum fyrir aftan
borinn og það tefur. En þetta er nú
bara eðlileg töf.“ Sigurður segir
mjög erfitt að kortleggja misgengi
sem þessi. „Borarnir eru þarna á
150 til 250 metra dýpi.“
Sigurður bendir á að bor
númer tvö sé kominn í ágætis-
berg og herði skriðið, en á þriðju-
dag fór hann
40 metra á
einum degi.
„Sem er
mikið meira
en meðalaf-
köst sem eru
25 metrar og
er í ágætis-
bergi. Bor
þrjú er svo í
samsetningu
inni í fjall-
inu, búið að
snúa honum
við og reiknað með að hann fari í
gang eftir svona tvær vikur.“
Sigurður segir ýmsar leiðir
færar til að vinna upp töfina, en
helst sé horft til tveggja. „Einfald-
ast er bara að bora hraðar, en hin
er að vinna að fráganginum sam-
hliða borun. Það er verið að skoða
leiðir til þess og er í rauninni að
einhverju leyti byrjað.“ Hann
segir að Landsvirkjun hafi ekki
viljað spá nákæmlega fyrir um
lok verksins, fyrr en málin skýr-
ist að áliðnum vetri. „En þetta
snýst fyrst og fremst um gang-
setningu á virkjuninni, fyrstu vél,
í apríl 2007, en svo er náttúrlega
hin merkilega dagsetningin þegar
öll virkjunin er komin í gagnið, en
þar er stefnt á október 2007.“
Sigurður segir viðræður Lands-
virkjunar við Impregilo vegna
mögulegra viðbótargreiðslna
til verktakans enn á byrjunar-
stigi, en fyrirtækið kann að eiga
á þeim rétt vegna tafa sem orðið
hafa af vatnsaga í göngum og mis-
gengjanna. Viðbótargreiðsla gæti
numið milljörðum.
Þá óskaði Landsvirkjun nú
um mánaðamótin eftir tilboðum
í fjóra verkþætti Hraunaveitu og
Ufsarstíflu Kárahnjúkavirkjunar,
sem öllum á að ljúka á árinu 2008.
Þar er um að ræða lokubúnað og
stálfóðringu fyrir Hraunaveitu
og Ufsarstíflu og svo vegna gerð-
ar Ufsarstíflu og stíflu, ganga og
skurða vegna Hraunaveitu.
olikr@frettabladid.is
Tveir af þremur
borum óstarfhæfir
Misgengi í jarðlögum hefur tafið borun jarðganga Kárahnjúkavirkjunar. Verkið
er rúmum tveimur mánuðum á eftir áætlun. Landsvirkjun segir hægt að vinna
upp tafirnar, en gangsetja á fyrstu vél virkjunarinnar í apríl 2007.
EKIÐ INN Í GÖNG Í FLJÓTSDAL Borverk Kárahnjúkavirkjunar hefur tafist nokkuð vegna mis-
gengja í jarðlögum, en ofanjarðar ræður árstími og tíðarfar för. Á vef virkjunarinnar kemur
fram að í síðustu viku hafi náðst að bæta ögn við fyllingarefni í Kárahnjúkastíflu og steypa
auk þess tæplega 1.500 fermetra af vatnskápu stíflunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGURÐUR ARNALDS
Upplýsingafulltrúi
Kárahnjúkavirkjunar hjá
Landsvirkjun.
Ölvunarakstur á Akureyri Tveir
voru teknir í miðbæ Akureyrar grun-
aðir um ölvunarakstur á aðfaranótt
laugardags. Reyndust báðir lítillega
yfir áfengismörkunum. Aðrir tveir voru
teknir réttindalausir á bíl. Annar hafði
gleymt að endurnýja skírteinið en hinn
hafði hvorki réttindi né aldur til þess að
aka bíl.
EINGREIÐSLA „Þetta er skattlagt
eftir þeim reglum sem gilda um
alla,“ segir Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra um frétt
Fréttablaðsins í gær þar sem
fram kemur að fjöldi aldraðra og
öryrkja fái lítið sem ekkert til ráð-
stöfunar af þeim 26 þúsund krón-
um sem stjórnvöld höfðu heitið í
samræmi við samninga á almenna
vinnumarkaðnum. Ástæðan er sú
að greiðslan er bæði skattlögð
og skert vegna tekna og annarra
skerðingarákvæða.
Jón segir sömu reglur gilda um
alla sem fái þessa eingreiðslu og
breyta hefði þurft skattalögum ef
útkoman ætti að vera önnur. Hann
vildi ekki tjá sig um þann útreikn-
ing Péturs Guðmundssonar, verk-
fræðings og fulltrúa í starfshópi
sem fjallað hefur um kjör aldr-
aðra, að ríkið fái 650 milljónir í
skatta af eingreiðslunni.
„Ég hef ekki fengið þess-
ar tölur upp á borðið og þarf að
láta athuga það betur,“ segir Jón.
Hann segir að það heyri ekki
undir hans ráðuneyti að breyta
lögum um skatta. Hann segir
samt sem áður nauðsynlegt að
skoða málið betur enda sé fram-
undan fundur samráðsnefndar
ríkisstjórnarinnar og aldraðra
þar sem þessi mál verði meðal
annars rædd. - sgi
Heilbrigðisráðherra um 26 þúsund eingreiðslu til aldrara og öryrkja:
Sama reglan gildir um alla
EITT GENGUR YFIR ALLA Heilbrigðisráðherra
segir að breyta hefði þurft skattalögum til
að uppbót til aldraðra og öryrkja skilaði sér
betur. Hins vegar heyri það ekki undir hans
ráðuneyti að breyta lögum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LEITAÐ AÐ LÆGSTA FARGJALDINU Vef Dohop
er að finna á slóðinni www.dohop.is.
UPPLÝSINGATÆKNI Á fréttavef CNN
er að finna umfjöllun um íslenska
fyrirtækið Dohop, sem rekur leit-
arvél yfir lággjaldaflugfélög á
netinu.
Á vef Dohop er hægt að leita
að ferðum hjá fjölda flugfélaga í
einu, en stofnandi fyrirtækisins,
Frosti Sigurjónsson, hóf að þróa
leitarvélina þegar hann komst að
því að fara þyrfti inn á vef hvers
flugfélags í leit að fargjöldum.
„Og áður en maður veit af eru
liðnir klukkutímar við skjáinn og
kannski engin lausn fundin,“ segir
Frosti á vef Dohop.
Í umfjöllun CNN kemur fram
að lággjaldaflugfélög starfi síður
með stærri endurseljendum
flugferða og því séu áætlanir
þeirra síður að finna í stærri
farmiðavefjum.
Á vef Dohop eru nú upplýsing-
ar frá 80 lággjaldaflugfélögum í
Evrópu, auk upplýsinga um hótel
og bílaleigubíla. Notkun er ókeyp-
is en fyrirtækið hefur tekjur af
auglýsingasölu. - óká
CNN fjallar um Dohop:
Íslenskur vefur
vekur athygli
SVÍÞJÓÐ Embættismaðurinn, sem
var á vakt í sænska utanríkisráðu-
neytinu þegar fréttirnar um flóð-
bylgjuna í Indlandshafi bárust á
annan dag jóla í fyrra, hefur fengið
uppreisn æru.
Á fréttavef Expressen kom
fram í gær að Kerstin Melén var
sú fyrsta til að fá fréttirnar. Hún
lét yfirmann sinn strax vita og
fékk þau svör að hún ætti ekki að
vera svona móðursjúk.
Í úttekt sem gerð var á slælegum
viðbrögðum sænsku ríkisstjórnar-
innar og stjórnsýslunnar fær Ker-
stin mikið hrós en ríkisstjórnin er
gagnrýnd harðlega fyrir sofanda-
hátt og sein viðbrögð. - ghs
Hetja í sænsku ráðuneyti:
Vænd um
móðursýki
BAGDAD, AP Pat Kember, eiginkona
Normans Kember, 74 ára, sem
haldið er í gíslingu í Írak ásamt
þremur félögum sínum, biðlaði
til mannræningjanna á arabísku
sjónvarpsstöðinni al-Jazeera í
gær. Hún sagði að maður sinn
hefði einungis verið í Írak til að
aðstoða bágstadda og því yrðu
þeir að þyrma lífi hans.
Fjórmenningunum var rænt
í síðustu viku í Bagdad þar sem
þeir voru við störf á vegum
kristinna hjálparsamtaka. Mann-
ræningjarnir segjast taka gíslana
af lífi verði íraskir fangar ekki
látnir lausir úr haldi fyrir 8.
desember.
Eiginkona bresks gísls:
Bað eigimanni
sínum griða
BIÐLAÐ TIL MANNRÆNINGJANNA Kember
talaði á ensku en lesið var yfir mál hennar
á arabísku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þrír í gæsluvarðhaldi Tvö nokkuð
stór en aðskilin fíknefnamál komu upp
á Akureyri fyrir helgi. Í öðru málinu
náði lögreglan einu kílói af marjúana.
Tveir voru handteknir og úrskurðaðir
í gæsluvarðhald fram á miðvikudag.
Öðrum var þó sleppt um miðjan
dag í gær. Þriðji maðurinn var síðan
úrskurðaður í gæsluvarðhald fram
á föstudag. Rannsókn málsins er á
frumstigi.