Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 74
5. desember 2005 MÁNUDAGUR30
menning@frettabladid.is
!
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Hljómsveitin Ampop hefur hingað
til verið þekkt fyrir raftónlistar-
pælingar sínar en á þessari þriðju
plötu sveitarinnar kveður við
nýjan og poppaðri tón.
Sveitin hefur vakið sífellt meiri
athygli í Bretlandi að undanförnu
og við hlustun á nýju plötunni
heyrist alveg af hverju. Hún er
full af vönduðu og grípandi poppi,
með örlitlu rafkryddi, og yfir öllu
hljómar nokkuð sérstæð rödd
Birgis Hilmarssonar. Þetta er
heilsteypt plata og svo virðist sem
Ampop sé loksins búin að skapa
sér sinn eigin hljóm, með rödd
Birgis í fyrirrúmi.
Áhrifum frá Bítlunum og
Radiohead er blandað saman
á smekklegan hátt og þannig
hljómar sveitin aldrei eins og
eftirhermusveit. Samt sem áður
er Ampop ekki að finna hér upp
hjólið en þetta er allt saman mjög
fagmannlega gert.
Fyrsta smáskífulag plötunn-
ar, My Delusions, situr ferskast í
minninu en flest önnur lögin eru
mjög frambærileg. Nokkur depurð
hvílir yfir lagasmíðunum og þetta
er ekki beint plata sem þú setur
á fóninn til að komast í gott skap
eða áður en þú ferð á djammið.
Þetta er meira plata fyrir þá sem
vilja heyra eitthvað þægilegt og
gott til að ná sér niður, jafnvel í
eftirpartíinu.
Falleg depurð
AMPOP: MY DELUSIONS
NIÐURSTAÐA:
Þriðja plata Ampop er full af vönduðu poppi.
Þetta er engin stuðplata en þeir sem vilja eitt-
hvað þægilegt og gott skulu leggja við hlustir.
Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósópran syngur
ljóð eftir Johannes Brahms á hádegistónleikum
í Listasafni Íslands í dag. Með henni leikur Gerrit
Schuil á píanó.
„Brahms er svolítið krefjandi og maður þarf að
koma með djúpa túlkun til að syngja hann,“ segir
Hólmfríður, sem ætlar að syngja bæði Sígaunaljóðin
og fleiri ljóð eftir Brahms. „Hann er hárómantískur og
ofsalega gaman að syngja hann.“
Hólmfríður er einsöngvari og söngkennari að
mennt, var sex ár við nám í Vínarborg, hélt síðan til
Mílanó þar sem hún hélt áfram námi en fluttist heim
til Íslands fyrir nokkrum árum.
Fyrir tveimur árum eignaðist hún lítinn dreng og
hefur því ekki komið mikið fram, en er að fara á kreik
aftur um þessar mundir.
„Ég var ekkert endilega að hugsa um að koma
heim, en gerði það samt og hef verið að syngja mikið
við brúðkaup og jarðarfarir,“ segir Hólmfríður, sem
einnig hefur komið fram á tónleikum í Berlín, Finn-
landi og víðar.
„Ég hef ekkert verið í óperum, einbeiti mér alveg
að ljóðum og óratóríum.“
Tónleikar þeirra Hólmfríðar og Gerrits Schuil í
Listasafninu hefjast klukkan 12.15.
Syngur Brahms í hádeginu
Kl. 21.00
Bjarni Arason syngur á Nasa ásamt
stórhljómsveit undir stjórn Þóris Úlf-
arssonar. Sérstakir gestir á tónleik-
unum verða Raggi Bjarna og Björn
Jörundur.
> Ekki missa af ...
... ljóðatónleikum þeirra Kristins Sig-
mundssonar og Jónasar Ingimund-
arsonar í Salnum annað kvöld. Einnig
verður hægt að fylgjast með þeim
leiðbeina söngvurum á ljóðasöngs-
námskeiði í Salnum á miðvikudag og
fimmtudag.
... jólaseríu Tilraunaeldhússins,
fjölskrúðugum uppákomum á sýningu
eldhússins í Nýlistasafninu.
... jólasýningu Lóu og Hulla, sem þau
Lóa Hjálmtýsdóttir og Hugleikur
Dagsson opnuðu um helgina í Galleríi
Humar eða frægð! á Laugavegi 59.
„Í þessari bók koma við sögu
meðal annarra læknir sem sér-
hæfir sig í að rannsaka og lina
sársauka, ungur drengur sem
finnur engan sársauka og fær
fyrir þær sakir vinnu sem lík-
amslistamaður í hryllingsleik-
húsi sem hefur aðsetur í gömlu
Álafossverksmiðjunni, og lítil
stúlka sem finnur til án þess það
liggi ljóst fyrir hvað amar að
henni.
Lækninum í sögunni rennur
auðvitað blóðið til skyldunnar að
forða stúlkunni úr hremming-
unum ef honum á ekki að finn-
ast hann hafa lifað og starfað til
einskis. En þó hlýtur maður að
vona að sú björgun verði ekki á
kostnað unga drengsins sem finn-
ur ekki til sársauka. Það er ekk-
ert vit í að ljóstra því upp í þessu
viðtali hvernig sú glíma fer að
lokum.“ Þannig lýsir Guðrún Eva
Mínervudóttir söguþræðinum
í nýútkominni skáldsögu sinni
Yosoy.
Hún segir þetta vera nútíma-
sögu sem hvorki sé flókin né
erfið aflestrar þótt framvindan
sé stundum margbrotin. „Þetta
getur alveg talist saga fyrir við-
kvæma, þótt hún sé kannski ekki
endilega fyrir ofurviðkvæma,
nokkurs konar fágaður hrylling-
ur.“ Hvernig myndi hún að öðru
leyti lýsa sögunni: „Það má segja
að hún fjalli líka um hugann og
vitundina. Hugurinn er enn að
mestu leyti ókannað svæði. Hver
veit, kannski mun næsta vísinda-
byltingin snúast um hugann.“ Og
þegar að þeirri byltingu kemur
mun Guðrún vafalaust sjást á
götuvirkjunum. ■
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR
tvinnar saman margbrotinn
raunveruleikann í nýjustu
skáldsögu sinni Yosoy.
Nútímasaga sem
er auðveld aflestrar