Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 12
12 5. desember 2005 MÁNUDAGUR
HEILSA Stefnt er að því að Súðavík
verði fyrsta reyklausa sveitarfélagið
á landinu. Fjöldi Súðvíkinga hætti
að reykja síðastliðið sumar, í kjölfar
námskeiðs sem haldið var fyrir
reykingarfólk.
Að sögn Önnu Lindar Ragnars-
dóttur, sem hætti að reykja eftir
námskeiðið, var óskað eftir öðru
námskeiði vegna góðrar aðsóknar á
það fyrra. Talið er að eingöngu tólf
Súðvíkingar reyki enn þá.
Anna Lind segir það raunhæfan
möguleika að Súðavík geti orðið
alveg reyklaus bær, eingöngu þurfi
vilja íbúa bæjarins til að svo geti
orðið. Fréttavefurinn bb.is greinir
frá þessu. ■
Súðavík reyklaus bær:
Fáir reykja í
bænum
VINNUMARKAÐUR Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, var á fundi
félagsmálanefndar alþingis
í síðustu viku og gaf þar
álit sitt á frumvarpi um
starfsmannaleigur. Hann skilaði
í kjölfarið inn tillögum um
breytingar á frumvarpinu fyrir
hönd verkalýðsfélagsins.
„Þær breytingar sem við
viljum sjá eru þrjár,“ segir
Vilhjálmur. „Í fyrsta lagi viljum
við að með frumvarpinu verði
tryggt að kjarasamningar á
íslenskum vinnumarkaði gildi
fyrir starfsmenn sem starfa
tímabundið á Íslandi á vegum
erlendra fyrirtækja. Í annan stað
viljum við að stéttarfélögin fái
hlutdeild í nauðsynlegu eftirliti
með þessum málum og geti þá
jafnvel kallað eftir launaseðlum
og öðrum gögnum. Þannig
geta stéttarfélögin undirbúið
málið fyrir Vinnumálastofnun
í stað þess að eftirlitið sé
alfarið hjá henni.“ Hann segir
að í þriðja lagi sé nauðsynlegt
að þau fyrirtæki sem njóti
starfskrafta starfsmanna, þótt
þeir séu leigðir, ábyrgist að
kjör þeirra séu í samræmi við
íslenska löggjöf og íslenska
kjarasamninga.
- jse
Formaður Verkalýðsfélags Akraness um frumvarp um starfsmannaleigur:
Tryggt að samningum sé fylgt
VILHJÁLMUR BIRGISSON, FORMAÐUR
VERKALÝÐSFÉLAGS AKRANESS Vilhjálmur
lagði inn tillögur um breytingar á
frumvarpi um starfsmannaleigur fyrir
félagsmálanefnd Alþingis.
MENNTAMÁL Bæjarstjórnin í
Borgarbyggð hefur sótt formlega
um það til menntamálaráðherra
að hann staðfesti stofnun
Menntaskóla Borgarfjarðar í
Borgarnesi.
„Þetta mál hefur fengið
mjög jákvæð viðbrögð hjá
menntamálaráðherra og starfs-
mönnum ráðuneytisins og ekki
síður hérna heima í héraði,“ segir
Helga Halldórsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Borgarbyggðar,
sem á sæti í öðrum af tveimur
vinnuhópum sem sjá um stofnun
skólans.
Málið á sér langan aðdraganda.
Fyrir um tuttugu árum voru
margir framhaldsskólar starfandi
í Borgarfirði. Meðal annars var þar
skóli í Reykholti, húsmæðraskóli
á Varmalandi og iðnskóli í
Borgarnesi. „Það var fjölbreytt
flóra framhaldsmenntunar í
Borgarbyggð en hún er öll horfin
núna,“ segir Helga.
Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi er eini framhaldsskólinn
á svæðinu og telja Borgfirðingar
að þörf sé á öðrum framhaldsskóla
á svæðið.
„Á síðasta ári var gerð könnun
meðal íbúa um hvað þeir teldu
helst skorta í Borgarbyggð
og þar kom fram að fólk taldi
skorta möguleika á að sækja
framhaldsmenntun á svæðinu.
Of stór hluti barna hérna fer ekki
í framhaldsnám og við viljum
breyta því,“ segir Helga.
Reiknað er með að skólinn
fari af stað í bráðabirgðahúsnæði
haustið 2006. Bæjarstjórnin í
Borgarbyggð á von á svari frá
menntamálaráðuneytinu fyrir
árslok og segir Helga að ef
bæjarstjórnin fái grænt ljós frá
ráðuneytinu verði strax eftir
áramót farið í það verkefni að
ráða skólameistara. - sk
Bæjarstjórnin í Borgarbyggð vill færa út kvíarnar í skólamálum:
Vilja menntaskóla í Borgarfjörð
HELGA HALLDÓRSDÓTTIR Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar, vill að menntaskóli rísi
í Borgarnesi.