Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 78
5. desember 2005 MÁNUDAGUR34
Sjávarskart Herdísar
GLÆSILEGT Skartið er afar hentugt til að
hressa upp á einlitar og venjulegar flíkur.
HERDÍS EGILSDÓTTIR
Hefur hannað dásamlega
skartgripi sem hún kallar
Sjávarskart.
Nýi diskurinn með SPARK
er kominn í verslanir!
Frábærir söngvarar
Allt sungið á íslensku
Diskurinn inniheldur meðal annars lögin:
Sweet Child of Mine - Guns N’Roses
We Are The Champions - Queen
It’s My Life - Bon Jovi
More Than Words - Extreme
Allt er á tjá og tundri - Sálin hans Jóns míns
Fjöllin hafa vakað - Bubbi Morthens
SPARK mun árita geisladiskinn í Kringlunni og Smáralind um helgina. – Dreifing: Sími 897 7922 aria@islandia.is
Gestasöngvari:
Jónsi í Svörtum fötum
Matthildur Lind Matthíasdóttir
16 ára nemi við Menntaskólann í
Reykjavík var um helgina kosin
Ford stúlka ársins 2005. Stelpurn-
ar sem unnið hafa keppnina hafa
hingað til fengið nóg af verkefn-
um í módelbransanum og margar
komist nokkuð langt. „Mér finnst
þetta ótrúlega gaman allt saman.
Þetta opnar margar leiðir fyrir
mann og er gott tækifæri,“ segir
Matthildur. Hún er ekki ókunn
fyrirsætustörfunum og hefur
tvisvar farið út til að starfa við
fyrirsætubransann og eflaust fer
hún aftur.
„Ég fer í Ford keppnina í New
York í janúar og svo sé ég bara
til hvað kemur út úr henni,“ segir
hún feimnislega og viðurkennir
að hún hafi gaman af tískuheim-
inum. „Já, hérna heima versla ég
yfirleitt í Spútnik, Rokki og rósum,
Gyllta kettinum og líka Sautján og
þeim búðum. Ég blanda þessu öllu
saman.“
Hún er á fyrsta ári á málabraut
og segist hafa virkilega gaman
af því að læra tungumál en hver
eru önnur áhugamál hennar? „Að
vera með vinum mínum, ferðalög,
að dansa og fleira, þetta venjulega
bara.“ segir hún.
Hefur gaman af
tískuheiminum
MATTHILDUR LIND MATTHÍASDÓTTIR
Hún er nýkjörin Ford fyrirsæta ársins 2005.
Hollywood-parið Jennifer Garner
og Ben Affleck eignuðust heil-
brigða dóttur síðastliðinn fimmtu-
dag.
Þetta er fyrsta barn þeirra
Garner og Affleck, sem giftu sig
í júní. Þau eru bæði 33 ára. Að
sögn blaðsins E! News ætla þau að
skíra barnið Violet.
Þau Affleck og Garner léku
saman í myndinni Daredevil árið
2003, sem var jafnframt fyrsta
stóra kvikmyndahlutverk Garner.
Þau byrjuðu þó ekki saman fyrir
en á síðasta ári.
Garner var áður gift leikaran-
um Scott Foley. Þau skildu í mars
í fyrra eftir þriggja og hálfs árs
hjónaband. Affleck og Jennifer
Lopez hættu við brúðkaup sitt í
september árið 2003 og slitu síðan
trúlofun sinni í janúar árið eftir.
Affleck leikur næst í sjón-
varpsmyndinni Superman og í
kvikmyndunum Truth Justice og
The American Way. Þátturinn
Alias, með Garner í aðalhlutverki,
lýkur fimm ára göngu sinni í maí
á næsta ári.
Heilbrigð
dóttir
GARNER OG AFFLECK Hollywood-parið
hefur eignast heilbrigða litla dóttur.
ARMBÖND Herdís
notar laxaroð, hlýra- og
nílarkarfaroð í skartgripina
sem eru sérlega glæsilegir.
SJÁVARSKART Fallegt sett
með armbandi, hálsmeni
og belti í gulum lit.
Herdís Egilsdóttir er sennilega
þekktust fyrir skrif sín um ýmsar
persónur eins og litla Pappírs-
Pésa og Skessuna í fjallinu. Hún
á þó nóg annað í pokahorninu og
hefur til dæmis verið að dunda
sér við að hanna dásamlega flotta
skartgripi sem hressa upp á hvaða
flík sem er. „Alla mína ævi hef ég
verið viðkvæm fyrir efni til að
hanna úr. Mátti aldrei sjá spýtu
eða spotta án þess að langa til að
búa eitthvað til úr því,“ segir Her-
dís kát.
Hún hannar armbönd, hálsmen
og belti úr roði og myndu munirn-
ir sóma sér vel í flottri hönnunar-
búð en Herdís selur þó vörurnar
ekki í búðum. „Mörg síðustu ár
hef ég verið hrifin af leðri en nú
er ég komin í roðið. Ég kalla
þetta Sjávarskart og hanna
hvern skartgrip fyrir
sig svo það eru engir
tveir eins. Ég sel þá
bara sjálf og vil
ekkert setja
þetta í búðir,
þetta er
svo persónulegt. Fólk getur bara
sett sig í samband við mig ef það
hefur áhuga á vörunum, ég á allt-
af svolítinn lager og er líka alltaf
til í að búa til nýtt.“
Herdís vinnur með roð af laxi,
hlýra og nílarkarfa og segir stóra
kostinn við roðið vera að það sé svo
létt. „Þetta mega vel vera stórir
gripir því maður finnur ekki fyrir
þessu. Auk þess er það kostur við
svona náttúruleg efni að maður
svitnar ekki undan þeim, eins og
plastinu til dæmis. Skartið sjálft
er unnið úr laxi því hann er svo
sterkur og svo fóðra ég með hlýr-
anum sem er mýkri.“
Hún hefur þó ekki gefið skrift-
irnar upp á bátinn og gaf nýlega út
barnabókina Draumar marglytt-
unnar. „Í stuttu máli sagt er
þetta ævintýri
fyrir börn á
öllum aldri. Þarna fer fram barátta góðs og ills
í hafinu og er bókin myndskreytt
af Erlu Sigurðardóttir
sem gerði fyrir mig ynd-
islegar myndir. Ég virð-
ist vera öll í sjónum.
Það er líka gaman að
segja frá því að
ég er alin upp við
sjóinn. Ég bjó á Húsa-
vík á yngri árum og lék
mér í fjörunni svo ég hef
ekki langt að sækja þennan sjáv-
aráhuga.“
Þeir sem hafa áhuga á að vita
meira um hönnun Herdísar geta
sent póst á netfangið lifsleikn-
i@lifsleikni.is.