Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Jar›eldur er uppi GRÍMSVÖTN 1922 SURTSEY 1963-67 GRÍMSVÖTN 1933 KVERKFJÖLL 1959 GRÍMSVÖTN 1934 HEKLA 1947-48 ASKJA 1922 KRAFLA 1975-84 HEKLA 1970 HEKLA 1980 GRÍMSVÖTN 2004 HEKLA 1991 ASKJA 1923 ASKJA 1926 ASKJA 1961 KATLA 1918 GRÍMSVÖTN 1986 HEIMAEY 1973 GRÍMSVÖTN 1998 HEKLA 2000 HEKLA 1981 ASKJA 1921 GJÁLP 1996 fiegar jör› rifnar og jar›eldar leysast úr læ›ingi ver›ur úr stórkostlegt sjónarspil elds og lita. Í flessari glæsilegu bók er a› finna ljósmyndir af öllum fleim eldgosum 20. aldar sem íslenskir ljósmyndarar hafa gert skil. Líflegir myndatextar Ara Trausta Gu›mundssonar ásamt fró›legu yfirliti yfir sögu og e›li eldsumbrota á Íslandi setja myndirnar í skemmtilegt samhengi vi› eldvirkni á Íslandi. Hér er á fer›inni stórkostlegur prentgripur í stóru og glæsilegu broti – sannköllu› gersemi. E L D G O S 2 0 . A L D A R Í M Á L I O G M Y N D U M HEKLA 1913 www.edda.is AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR Hjá mannkyninu í árdaga virðist líkamlegur styrkur karldýrsins umfram kvendýrið vera grundvallarorsök þess að karldýrið ber meira úr býtum en kvendýrið enn þann dag í dag. Ekki getur það verið andlegur styrkur. Á karlaráðstefnu um jafnréttismál voru flutt mörg snilldarleg erindi með svo mörgum power-point- glærum að dugað hefði til að drepa mammút. En minnisstæðari en glærurnar var ljósmynd sem einn fyrirlesarinn brá upp og sýndi tvo roskna karlmenn ganga ábúðarmikla með hendur á baki. Í humátt á eftir þeim trítlaði síðan lítill drengur - með hendur á baki og reyndi að líkja eftir sér eldri mönnum. SUMIR höfðu tröllatrú á að jafnrétti mundi nást með góðri lagasetningu. Trúlega er samt gott fordæmi um jafnrétti inni á heimilum brýnna en nokkur lagasetning. Enda er það þjóðfélagsins að móta lögin - ekki öfugt. Það vill gleymast. ENGINN veit hvernig stóð á þeirri þróun að karlkynið varð sterkara en kvenkynið, en það er skiljanlegt að sterkara kynið tæki að sér veiðar þar sem beita þurfti líkamsburðum og veikara kynið sæi um uppeldi afkvæmanna. Það var líka eðlilegt að karldýrið tæki til sín stærri bita af bráðinni; karlarnir brenndu fleiri kaloríum við að drepa mammúta með ydduðum trjágreinum en konurnar við að grilla mammútaketið og passa börnin. En það er ekki þar með sagt að karldýrið í okkar þjóðfélagi þurfi Toyota Landcruiser til að komast leiðar sinnar en kvendýrið Toyota Yaris. HVORT karldýr tegundarinnar - önnur en þau sem voru á ráðstefnunni - eru á þeim buxunum að hætta að beita líkamsburðum sínum til að kúga kvendýrin veit enginn enn. En líklega gerist það ekki í alvörunni fyrr en þeir tímar renna upp að mannkynið áttar sig á að hin raunverulegu verðmæti lífs og mannlegrar tilveru eru fólgin í hugmyndum eða hugsjónum um frelsi og jöfnuð allra manna og kvenna alltaf og alls staðar - í stað þess að virða fyrst og fremst dýrslegan líkamsburð og trúa því einu að tilgangur jarðvistar okkar sé að tryggja peningum verðgildi, verðbætur, vexti og vaxtavexti, upprisu og eilíft líf. Amen. ■ Að drepa mamm- úta með glærum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.