Fréttablaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Jar›eldur
er uppi
GRÍMSVÖTN 1922
SURTSEY 1963-67
GRÍMSVÖTN 1933
KVERKFJÖLL 1959
GRÍMSVÖTN 1934
HEKLA 1947-48
ASKJA 1922
KRAFLA 1975-84
HEKLA 1970
HEKLA 1980
GRÍMSVÖTN 2004
HEKLA 1991
ASKJA 1923
ASKJA 1926
ASKJA 1961
KATLA 1918
GRÍMSVÖTN 1986
HEIMAEY 1973
GRÍMSVÖTN 1998 HEKLA 2000
HEKLA 1981
ASKJA 1921
GJÁLP 1996
fiegar jör› rifnar og jar›eldar leysast úr læ›ingi ver›ur úr
stórkostlegt sjónarspil elds og lita. Í flessari glæsilegu bók er
a› finna ljósmyndir af öllum fleim eldgosum 20. aldar sem
íslenskir ljósmyndarar hafa gert skil. Líflegir myndatextar
Ara Trausta Gu›mundssonar ásamt fró›legu yfirliti yfir sögu
og e›li eldsumbrota á Íslandi setja myndirnar í skemmtilegt
samhengi vi› eldvirkni á Íslandi.
Hér er á fer›inni stórkostlegur prentgripur í stóru
og glæsilegu broti – sannköllu› gersemi.
E L D G O S 2 0 . A L D A R Í M Á L I O G M Y N D U M
HEKLA 1913
www.edda.is
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Hjá mannkyninu í árdaga virðist líkamlegur styrkur
karldýrsins umfram kvendýrið
vera grundvallarorsök þess að
karldýrið ber meira úr býtum en
kvendýrið enn þann dag í dag. Ekki
getur það verið andlegur styrkur.
Á karlaráðstefnu um jafnréttismál
voru flutt mörg snilldarleg erindi
með svo mörgum power-point-
glærum að dugað hefði til að
drepa mammút. En minnisstæðari
en glærurnar var ljósmynd sem
einn fyrirlesarinn brá upp og
sýndi tvo roskna karlmenn ganga
ábúðarmikla með hendur á baki. Í
humátt á eftir þeim trítlaði síðan
lítill drengur - með hendur á baki
og reyndi að líkja eftir sér eldri
mönnum.
SUMIR höfðu tröllatrú á að
jafnrétti mundi nást með góðri
lagasetningu. Trúlega er samt
gott fordæmi um jafnrétti inni
á heimilum brýnna en nokkur
lagasetning. Enda er það
þjóðfélagsins að móta lögin - ekki
öfugt. Það vill gleymast.
ENGINN veit hvernig stóð á
þeirri þróun að karlkynið varð
sterkara en kvenkynið, en það er
skiljanlegt að sterkara kynið tæki
að sér veiðar þar sem beita þurfti
líkamsburðum og veikara kynið
sæi um uppeldi afkvæmanna.
Það var líka eðlilegt að karldýrið
tæki til sín stærri bita af bráðinni;
karlarnir brenndu fleiri kaloríum
við að drepa mammúta með
ydduðum trjágreinum en konurnar
við að grilla mammútaketið og
passa börnin. En það er ekki
þar með sagt að karldýrið í
okkar þjóðfélagi þurfi Toyota
Landcruiser til að komast leiðar
sinnar en kvendýrið Toyota Yaris.
HVORT karldýr tegundarinnar
- önnur en þau sem voru á
ráðstefnunni - eru á þeim buxunum
að hætta að beita líkamsburðum
sínum til að kúga kvendýrin veit
enginn enn. En líklega gerist það
ekki í alvörunni fyrr en þeir tímar
renna upp að mannkynið áttar sig á
að hin raunverulegu verðmæti lífs
og mannlegrar tilveru eru fólgin
í hugmyndum eða hugsjónum
um frelsi og jöfnuð allra manna
og kvenna alltaf og alls staðar - í
stað þess að virða fyrst og fremst
dýrslegan líkamsburð og trúa því
einu að tilgangur jarðvistar okkar
sé að tryggja peningum verðgildi,
verðbætur, vexti og vaxtavexti,
upprisu og eilíft líf. Amen. ■
Að drepa mamm-
úta með glærum