Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 16

Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 16
 5. desember 2005 MÁNUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Félagarnir Haraldur og Ólafur Ólafssynir sem róa á Þyt EA 96 frá Árskógssandi fengu sannkall- aða risalúðu í þorsknetið á dögun- um. Vó hún heil 217 kíló og er með stærstu lúðum sem dregnar hafa verið á land. „Hún var næstum dauð þegar hún kom upp og spriklaði því ekk- ert sem betur fer. Annars hefðum við sennilega ekki náð henni,“ segir Haraldur Ólafsson skip- stjóri. Lúðan kom í eitt fimmtíu þorskneta Þyts og var það lagt undan Hvanndalabjörgum vestan Ólafsfjarðar. „Við vorum að draga á spilinu þegar hún kom upp og settum í hana haka og svo spotta svo hún slyppi nú örugglega ekki. Það voru engin vandræði að ná henni um borð.“ Þótt Haraldur sé aðeins 25 ára hefur hann stundað sjóinn í rúm tíu ár, byrjaði fjórtán ára á hálf- um hlut á rækjubát með pabba sínum. Aldrei fyrr hefur hann veitt jafn stóran fisk en einstaka smáhveli hefur slæðst í netin hjá honum í gegnum árin. „Þetta ger- ist einu sinni á ævinni, menn eru virkilega heppnir ef þeir fá svona feng,“ segir Haraldur ánægður með lúðuna stóru. Hann segir annars að rólegt hafi verið á miðunum að undan- förnu, þeir félagar hafi fengið um tonn á dag í netin fimmtíu sem sé ágætt þegar tveir eru á. - bþs HARALDUR ÓLAFSSON OG RISALÚÐAN Hún var seld á Fiskmarkaði Dalvíkur á tæpar 86 þúsund krónur eða 395 krónur kílóið. Skipverjarnir á Þyt EA 96 frá Árskógssandi fengu risalúðu í þorsknetið: Gerist einu sinni á ævinni Íslenska er lifandi tungumál og sífellt bætist í hóp orða hennar, rétt eins og íslensku þjóðinni bætast þegnar hvaðanæva að, en breytingar á málinu eru alltaf umdeildar. Sem dæmi má nefna orð eins og graffiti, sem oft hefur verið kallað veggjakrot á íslensku. Síðarnefnda orðið hefur ekki yfir sér nákvæmlega sama blæ eða endilega sömu merkingu í öllum tilfellum, en leysir þann vanda að graffiti fellur engan veginn að íslensku máli. Vegglistamennirnir, krotararnir, tala gjarnan um að spreyja, sem fellur ágætlega að málinu þó að sumum finnist kauðslegt að nota ekki frekar orðið úði yfir spray. Þannig er hin eilífa togstreita breytinganna, sumum finnst máltilfinningu sífellt fara hrakandi en aðrir kvarta sáran yfir umvöndunum sem þeim finnst forneskjulegar. Það er sjálfsagt að leyfa málinu að þróast, enda verður hver kynslóð að fá að móta það eftir sínum eigin þörfum. Þannig helst íslenskan lifandi og við getum verið stolt af tungumálinu okkar. magnus@frettabladid.is Ástkæra ylhýra Hvenær verða orðin íslensk? „Það skiptast á skin og skúrir, bæði gleði og sorg. Maður reynir að horfa á aðventuljósin á þessum tíma þar sem við fáum að minnast þess að ljós er borið í heiminn til að lýsa okkur leiðina heim,“ segir Sigurbjörn Þorkelsson, rithöfundur, bænaskáld og framkvæmdastjóri Laugarneskirkju. Sigurbjörn reynir að sinna ritstörfum daglega og þykir honum gott að sameina þau starfi sínu í kirkjunni. Mikið líf er í kirkjum landsins á þessum árstíma. „Það er afskaplega góð mæting en þetta er þó ekki bara dans á rósum þegar koma jól og margir eiga um sárt að binda,“ segir Sigurbjörn sem glímir þessa dagana við ljóðatexta en síðast gaf hann út bænabókina, Í skugga vængja þinna, sem kom út í lok janúar á þessu ári. Bænir eru Sigurbirni mjög hugleiknar og biður hann á hverjum degi. „Þessar bænir mínar eru samtal við guð en ljóðin mín eru frekar samtal við fólk,“ útskýrir Sigurbjörn sem hefur hafið jólaundirbúning eins og margir aðrir. „Það lendir nú reyndar frekar á konunni minni Laufeyju en ég fæ að fylgjast með,“ segir Sigurbjörn kíminn en honum finnst eiginkonu sinni farast skreytingarnar betur úr hendi þó hann hafi töluverðan áhuga á þeim sjálfur. „Við erum búin að kveikja bæði á spádómskertinu og Betlehemskertinu á aðventukransinum og syngjum með,“ segir Sigurbjörn að lokum. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGURBJÖRN ÞORKELSSON RITHÖFUNDUR Ljóðin eru samtal við fólk Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Þar geta ungir og aldnir rölt milli húsa og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofuloftinu er spunnið, prjónað og saumaðir roðskór. Við hlið kvennanna stendur jólatré vafið lyngi. Það var sannkölluð jólastemning í Árbæjarsafni í gær þegar gestum og gangandi gafst kostur á að líta gamaldags jólaundirbúning í Árbæjarsafni. Þetta var fyrri af tveimur sunnudögum þar sem boðið er upp á sérstaka jólasýningu í safninu en það verður einnig opið næstkomandi sunnudag milli klukkan 13.00 og 17.00. Þá geta börn og fullorðnir föndrað í Kornhúsinu auk þess sem sýnt verður hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Gestir geta einnig fengið keim af sönnu bragði jólanna með því að gæða sér á nýsoðnu hangiketi.  Jólin koma í Árbæjarsafn FALLEGT SKÓTAU Saumaðir voru roðskór á Baðstofuloftinu. SKORIÐ Í LAUFABRAUÐ Í Árbænum var skorið í laufabrauð með vasahnífum. LAGIN Í HÖNDUNUM Eldri kona saumar fallega roðskó fyrir jólin SPUNNIÐ ÚR ULL Eitt af því sem þarf að gera fyrir jólin er að spinna ull til að unnt verði að prjóna sokkaplögg sem hægt verður að klæðast í kuldanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR JÓLATRÉ Á baðstofuloftinu mátti líta gamaldags jólatré vafið lyngi. Kæruleysi „Það hafa allir svo mikið að gera og unga fólkið er kærulaust. Fólk hafði meiri tíma áður og það voru meiri samskipti milli fólks.“ RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR Á 100 ÁRA AFMÆLI SÍNU, MORGUNBLAÐINU. Skólaband „Hljómsveitin var í byrjun hugsuð sem hálfgildings skólaband og okkar helstu áhangendur voru þeir sem voru samskóla okkur.“ EGILL ÓLAFSSON UM UPPHAF STUÐMANNA, MORGUNBLAÐINU. Skólastjórar skutu á fundi Helmingur barna í Fellunum nýbúi Fjölmenningarsamfélagið staðreynd í Breiðholti DV2x15 4.12.2005 19:48 Page 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.