Fréttablaðið - 05.12.2005, Qupperneq 24
5. desember 2005 MÁNUDAGUR24
Á meðan Íslendingar velta sér upp úr
fullkomlega innihaldslausri umræðu
kynjakvóta, tónlistarhúsa, byggða-
styrkja, kjördæmapots og mataræðis
þykir undirrituðum ljóst að önnur og
veigameiri umræðuefni þurfi að taka
upp þegar til lengri tíma er litið.
Á meðan ríkir Vesturlandabú-
ar telja sjálfum sér trú um að eigin
gróði þýði annars tap og brennsla
jarðefnaeldsneytis eigi að einskorð-
ast við þá sem nú þegar hafa efnast
þá banka fátæk lönd upp á og krefj-
ast viðskiptafrelsis og tækifæris til
að keppa óhindrað við franska bænd-
ur og íslenska gúrkuframleiðendur.
Áherslupunktar hinnar alþjóðlegu
stjórnmálaumræðu eru ekki á því
sem skiptir máli. Þeir eru á tilbúnum
vandamálum verkefnalausra stjórn-
málamanna, til dæmis loftslags-
breytingum og nauð evrópskra og
bandarískra bænda á ríkisstyrkjum.
Líkfylgd velferðarkerfisins
Eitt af málefnunum sem, að mati
undirritaðs, með réttu eiga heima
í kjarna umræðunnar er líkfylgd
velferðarkerfisins. Hið evrópska
velferðarkerfi er nú að hruni komið
eftir áratugi af gríðarlegum fjár-
þorsta samhliða hrörnandi þjónustu-
getu og versnandi gæðum. Velferðar-
kerfið hefur sýnt að það ræður ekki
við sífellt hækkandi meðalaldur og
auknar kröfur skattgreiðenda sem
koma í kjölfar örrar tækniþróunar
og vaxandi framboðs á hinum frjálsa
markaði. Í mörgum löndum á meg-
inlandi Evrópu og í Skandínavíu eru
einstakir þættir velferðarkerfisins
byrjaðir að skila sér aftur á mark-
aðinn og sú þróun mun halda áfram.
Mikilvægt er að tryggja að velferð-
arkerfinu sé fylgt alla leið í gröfina
og það takist að flýta þessari líkfylgd
hratt og örugglega á áfangastað.
Alþjóðavæðing hafta og reglugerða
Annað málefni sem er sífellt að vaxa
að mikilvægi er vörnin gegn alþjóða-
væðingu reglugerða og hafta á frjáls
millilandasamskipti og viðskipti.
Kyoto-samkomulagið er áþreifan-
legasta dæmið um þessa skelfilegu
þróun. Hagvexti og lífsgæðum á að
fórna á bál vafasamra heimsendas-
pádóma og óraunsærra markmiða.
Áætlaður kostnaður Kyoto-sam-
komulagsins til ársins 2012 liggur á
bilinu 500 til 1000 milljarðar evra, og
bjartsýnustu áætlanir gera ráð fyrir
að afleiðingarnar, ef einhverjar,
verði heildarkólnun upp á um 0,02°
C árið 2050, eða eitthvað sem mælist
ekki einu sinni með nákvæmustu
mælitækjum. Í leiðinni hverfa hundr-
uð þúsundir starfa, eldsneytisverð
rýkur upp þrátt fyrir nægt framboð
þess og hagvöxtur á heimsvísu leitar
niður á við. Allt þetta á víst að vera
þess virði því annars gæti eitthvað
gerst sem ekki hefur tekist að sýna
fram á að muni gerast.
Útbreiðsla kapítalismans
Þriðja mikilvæga málefnið sem
fær alltof lítið vægi í umræðunni
er útbreiðsla kapítalisma til fátæk-
ustu svæða heims. Evrópa og Norð-
ur-Ameríka urðu rík með því að
tileinka sér kapítalisma. Hundruð
milljóna manna í Asíu hafa brotist
út úr frumstæðum bændabýlum og
stuttu lífshlaupi með því að taka
upp kapítalisma og frjálsa versl-
un. Chile stendur sem kapítalísk
vin í annars sósíalískri eyðimörk
Suður-Ameríku. Vestur-Þýska-
land blómstraði á meðan Austur-
Evrópa hrörnaði. Suður-Kórea er
velmegandi samfélag kapítalisma
á meðan Norður-Kórea er kúgað
land fátæktar og hjarðhyggju.
Tollamúrar og styrkir til iðngreina
á Vesturlöndum þurfa að hverfa
og franskir bændur þurfa að fara
á hausinn og skipta um störf ef
ætlunin er að útrýma fátækt og
sultardauða þeirra fátækustu í
heiminum.
Árið 1985 tilnefndu Sameinuðu
þjóðirnar 5. desember alþjóðleg-
an dag sjálfboðaliða. Tilgangurinn
var sá að vekja athygli á framlagi
sjálfboðaliða í samfélaginu.
Það er mismunandi eftir lönd-
um og tíma hvernig sjálfboðin
störf eru skilgreind. Nokkuð víð-
tæk sátt er þó um þá skilgrein-
ingu að sjálfboðin störf séu „störf
í þágu annarra en sjálfra sín og
nánustu ættingja“. Samkvæmt
þeirri skilgreiningu flokkast
t.a.m. blóðgjöf, starf með íþrótta-
félögum, foreldrafélögum og
starf með stjórnmálasamtökum
undir sjálfboðin störf.
Rauði krossinn er stærsta
sjálfboðahreyfing í heimi. Rauði
krossinn starfar í 183 löndum
og starfa um það bil 100 milljón
sjálfboðaliðar í hans nafni, enda
er sjálfboðastarf eitt af grund-
vallarmarkmiðum Rauða kross
hreyfingarinnar. Án sjálfboðaliða
væri enginn Rauði kross.
Rauði kross Íslands var stofn-
aður árið 1924 og hefur á þeim
tíma sem liðinn er sífellt vaxið
fiskur um hrygg og starfa nú
margar deildir Rauða krossins
vítt og breitt um landið. Af þeim
er Reykjavíkurdeild eðlilega lang-
samlega stærst og starfa um þess-
ar mundir um 600 sjálfboðaliðar
fyrir deildina. Hver þeirra vinnur
að jafnaði 4 til 12 klukkustundir á
mánuði.
Ef við gefum okkur að hver
og einn vinni 4 klukkustundir -
sem er lægsti samnefnarinn - þá
skila sjálfboðaliðar deildarinnar
um 30 þúsund vinnustundum á
ári. Meðal ársverk er talið vera
um 1800 vinnustundir og því má
segja að sjálfboðaliðar Reykja-
víkurdeildar skili á bilinu 17 til 50
ársverkum í sjálfboðnu starfi.
Skipulagning svo viðamikils
starfs kallar á töluvert skrifstofu-
og námskeiðahald og slíkt kostar
eðlilega nokkra fjármuni. Í nið-
urstöðum vandaðrar rannsóknar
sem Steinunn Hrafnsdóttir, lektor
í HÍ, vann árið 2002 fyrir Rauða
kross Íslands, um mikilvægi sjálf-
boðins starfs fyrir íslenskt sam-
félag, kom meðal annars fram, að
hver króna sem Rauði krossinn
ver í sjálfboðið starf þrefald-
ar gildi sitt, - og eru þá einungis
efnahagsleg áhrif tekin með í
reikninginn.
Hjá Reykjavíkurdeild Rauða
Krossins eru fjölmörg verkefni
sem sjálfboðaliðar sinna. Má þar
nefna: Símsvörun í Hjálparsíma
Rauða Krossins 1717, heimsókna-
þjónustu, starf með geðfötluðum,
heimilislausum og í sölubúðum
Rauða krossins. Sjálfboðaliðar
deildarinnar starfa einnig að
neyðarvörnum, sinna félags-
starfi með ungum hreyfihömluð-
um, fara í heimsóknir til fanga,
starfa með flóttafólki og þannig
mætti lengi telja.
Stundum heyrast þær raddir
að uppgangur sjálfboðahreyf-
inga geti á vissan hátt verið ógn
við velferðarkerfið. Sjálfboðin
störf séu ekki eins markviss og
skipuleg og opinber þjónusta og
uppgangur sjálfboðahreyfinga
geti orðið til þess að hið opinbera
ætli sjálfboðasamtökum um of að
sjá um faglega þjónustu og dragi
sjálft úr þjónustunni.
Því er til að svara að sjálfboð-
in störf eru liðsauki en koma ekki
í staðinn fyrir opinbera þjónustu.
Reykjavíkurdeild aðstoðar t.d.
útlensk börn við heimanám. Þessi
börn hafa ekki sömu forsendur til
þess að fá þessa aðstoð heima hjá
sér og íslensk börn. Þarna er því
er verið að veita þjónustu sem er
utan við skyldur skólanna
Sjálfboðahreyfingar geta
einnig verið þrýstihópar á stjórn-
völd. Það voru t.d. sjálfboðafélög
sem stóðu að uppbyggingu fyrstu
barnaheimila og elliheimila hér
á landi. Verkefni sem opinber-
ir aðilar tóku seinna við. Sjálf-
boðahreyfingar eru kvikari og
bregðast oft hraðar við en hið
opinbera.
Eitt af hlutverkum Rauða
krossins er að sýna fram á þjón-
ustuþörf og draga sig svo til baka
og eftirláta hinu opinbera verk-
efnið. Konukot, sem er athvarf
fyrir heimilislausar konur, er
nýjasta dæmið um það. Reykja-
víkurdeild Rauða krossins kom
því verkefni á laggirnar. Engin
áform voru á þeim tíma innan
Velferðarsviðs Reykjavíkur-
borgar um að koma á fót slíku
verkefni enda ekki talin þörf
fyrir það. Þörfin reyndist þó svo
sannarlega vera til staðar eins
og gestakomur í húsið hafa sýnt
fram á. Það hefur orðið til þess
að Velferðarsvið Reykjavíkur-
borgar hefur nú nýverið tekið þá
ákvörðun að koma til móts við
Reykjavíkurdeild um að auka
þjónustu við þennan hóp.
Undanfarin ár hefur Reykja-
víkurdeild Rauða Krossins staðið
fyrir uppákomum þann 5. desem-
ber til að minna á alþjóðlegan
dag sjálfboðaliða. Laugarásbíó
býður öllum börnum í bíó sem
staðið hafa fyrir tombólu á árinu
til styrktar Rauða krossinum.
Opið hús er í húsnæði Reykjavík-
urdeildar kl. 17 til 19. Þar gefst
sjálfboðaliðum tækifæri til hitta
sjálfboðaliða úr öðrum verkefn-
um og eiga saman góða stund.
Er það von okkar að sem flest-
ir sjálfboðaliðar Reykjavíkur-
deildar sjái sér fært að koma og
minnast þess að án þeirra væri
ekki hægt að halda svo mörgum
verkefnum gangandi og raun ber
vitni.
Höfundar eru forstöðumaður
Ungmennadeildar Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands
og verkefnastjóri sjálfboðaliða
HRAFNKELL TUMI
KOLBEINSSON
UMRÆÐAN
ALÞJÓÐA-
STJÓRNMÁL
GEIR ÁGÚSTSSON
VERKFRÆÐINGUR
Síðumúla 13 • Sími 568-2870
Dæmi um verð. Áður. Núna.
ÚTSALA ÚTSALA
40 – 60 % AFSLÁTTUR
Opið í dag 10:00 – 16:00
Opið laugardag 10:00 – 16:00.
Rúllukragapeysa 6.000.- 2.900.-
Loðin jakkapeysa 6.900.- 4.200.-
Marglit peysa 7.200.- 2.900.-
Peysa m/tölum 6.200.- 3.800.-
Jakkapeysa flís 5.300.- 2.900.-
Bolur m/pallíettum 4.300.- 2.600.-
Bolur m/nælu 4.000.- 2.400.-
Blúndutoppur m/rós 4.000.- 2.400.-
Dömuskyrta 4.900.- 2.600.-
Úpa m/hettuog skinni 5.800.- 3.500.-
Mokkajakki 10.800.- 5.900.-
Pelsjakki 7.900.- 4.800.-
Kápa m/pels 7.800.- 4.700.-
Kjóll m/perlum 7.300.- 3.900.-
Sítt pils hneppt 5.000.- 2.900.-
Svartar buxur 4.400.- 2.700.-
Kvartbuxur 5.400.- 2.900.-
Gallabuxur 6.400.- 3.900.-
Leðurstígvél 15.200.- 5.900.-
Svartir dömuskór 4.500.- 2.700.-
Silfur skór 5.400.- 2.900.-
Líkfylgd sósíalismans
Dagur sjálfboðaliðans
ELFA DÖGG S.
LEIFSDÓTTIR
Sjálfboðahreyfingar geta
einnig verið þrýstihópar á
stjórnvöld. Það voru t.d.
sjálfboðafélög sem stóðu
að uppbyggingu fyrstu
barnaheimila og elliheimila
hér á landi. Verkefni sem
opinberir aðilar tóku seinna
við.