Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 29

Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 29
MÁNUDAGUR 5. desember 2005 RÁÐ frá Rakel RAKEL ÁRNADÓTTIR FÓÐRAR VEGGI Það er hægt að fóðra hjá sér veggina á ýmsan hátt og margar veggfóðurs- gerðir í boði. Flestir halda eflaust að nóg sé að ákveða liti og munstur þegar velja á veggfóður. Málið er ekki svona einfalt því fjölmargar gerðir eru á markaðnum, en hér verða nefndar þær helstu. Umhverfisvænt veggfóður er unnið úr óbleiktum pappa og ofnæmispróf- uðum litum og lími, sem hentar fólki með ofnæmi eða astma. Gallarnir eru að veggfóðrið er dýrt og ekki er alltaf yfirborð til hlífðar, þannig að það drekkur í sig óhreinindi og slitnar. Sumt veggfóður er úr trefjum. Í stað þess að vera ofið eru þræðirnir press- aðir saman undir miklum þrýstingi. Úr verður efni með tauáferð sem líkist flaueli. Auðvelt er að setja það upp og það hrindir frá sér óhreinindum. Venjulegt pappírsveggfóður er vin- sælast og ræður mikið úrval lita og munstra líklega mestu. Verðið er breyti- legt og er auðvelt að láta freistast af því ódýrasta, en gætið að ykkur. Gæði geta borgað sig. Pappírinn er misjafn- lega slitsterkur og göt myndast á sumar tegundir við minnsta hnjask. Pappírinn þolir ekki alltaf að þurrk- að sé af með rökum klúti og getur því verið erfitt að halda veggfóðrinu hreinu. Ofið veggfóður er helst úr líni eða viskós. Það hefur fallega og sterka sjónræna áferð með flóknum og fáguðum ofnum munstrum, sem geta gert kröfur til þess að húsgögn séu í stíl. Það er dýrt, safnar auðveldlega í sig ryki og þarf að ryksuga. Ofangreint veggfóður, þ.e. trefja-, pappírs- og tauveggfóður, er stund- um húðað með þunnri vínylfilmu eða unnið með fljótandi akrýlefnum sem gerir það sterkara þannig að það hrindir frá sér raka og fitu jafnframt því að „anda“. Ekki má gleyma vínylveggfóðri. Það er slétt, þétt og slitsterkt. Það er því fínt í ganga og eldhús, en þó einkum fyrir barnafjölskyldur. Úrval munsturs og lita er mikið. Auðvelt er að leggja það á óslétta veggi vegna þess hve þykkt það er, sem getur líka verið galli vegna þess að þá ná vegg- irnir ekki að „anda“. Auðvelt er þrífa það og það hentar vel í baðherbergi þar sem raki er mikill. Veggfóður og veggfóður 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8 Alla þriðjudaga til fimmtudaga PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.