Fréttablaðið - 05.12.2005, Side 70

Fréttablaðið - 05.12.2005, Side 70
 5. desember 2005 MÁNUDAGUR44 SELDAR EIGNIR Á AKUREYRI *þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 30 25 20 15 10 5 0 FJÖLDI 11/11- 17/11 22 21/10- 27/10 14 28/10- 3/11 16 4/11- 10/11 20 SPURNING VIKUNNAR á fasteignavef Visis 33,3% SPURNING SÍÐUSTU VIKU: Þarf að taka til í geymslunni þinni? Ætlarðu í stór- framkvæmdir fyrir jólin? 66,7%Já ? Nei „Ég held að draumahúsið mitt sé bara húsið sem ég bý í,“ segir Kol- brún Anna Björnsdóttir leikkona. „Það er í Kópavogi og við erum í miðju kafi að gera það upp og smátt og smátt að gera það eins og við viljum hafa það. Mér finnst alveg frábært að stússa í því að gera upp hús og sjá svo draum- inn verða að veruleika.“ Kolbrún segir að þau hjónin hafi fallið fyrir húsinu vegna þess hversu bjart var þar inni. „Við höfum verið að breyta því smátt og smátt eftir okkar höfði, gera hluti eins og að skipta út teppi fyrir parket og gera upp litla garðstofu sem var alveg að hrynja. Næst á dagskrá er að skipta um eldhús.“ Húsið hennar Kolbrúnar á sér sína sögu. „Árið 1942 var það sumarbú- staður og svo hefur verið byggt við það síðan þar til 1989 þegar síðasta viðbygggingin var gerð. Húsið hefur því farið stækkandi eftir þörfum fjölskyldanna sem hafa búið í því og nú hentar það okkur ákaflega vel.“ En þetta er ekki eina draumahúsið hennar Kolbrúnar. „Mig dreymir líka um annað hús þar sem mig langar til að stofna skóla sem væri grunnskóli með áherslu á allar listgreinar. Mig dreymir um að finna húsnæði fyrir þann skóla og drífa í að stofna hann.“ DRAUMAHÚSIÐ MITT KOLBRÚN ANNA BJÖRNSDÓTTIR Í miðju kafi að búa það til Öskjuhlíðarskóli var stofnaður 1961 og hét þá Höfðaskóli. Hann hlaut núver- andi nafn sitt 1975 er starfsemin var flutt í Suðurhlíð í fyrsta hluta nýrrar skólabyggingar. 1987 var annar hluti skólans opnaður en í bígerð er þriðji og síðasti hlutinn og á hann meðal annars að hýsa íþróttasal, aðstöðu til sjúkraþjálfunar og læknaaðstöðu. Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall eiga heiðurinn að teikningu Öskjuhlíðarskóla. ÖSKJUHLÍÐARSKÓLI Hólmavík, Hellissandur, Þórs- höfn og Djúpivogur eru þorp með nánast sama fólksfjölda. Milli 380 og 390 íbúar voru skráð- ir á Hólmavík, Hellissandi, Þórs- höfn og á Djúpavogi þegar síðasta manntal var gert. Þetta bendir hinn ágæti netmiðill www.strandir. is á. Hann vekur líka athygli á því að veruleg líkindi séu með þremur þessara þorpa, það er Hólmavík, Djúpavogi og Þórshöfn. Þar hafi fólki fækkað talsvert á síðustu átta árum, sveitarfélögin saman- standi af þorpi og dreifbýli í kring og allnokkur spotti sé í næsta þétt- býlisstað. Reyndar gengur hann svo langt að stinga upp á að þessir þrír staðir taki upp stjórnmála- samband og reyni að læra hver af öðrum, bæði því sem vel gengur og miður hefur farið. Þorp og dreifbýli 18/11 - 24/11 18 Frá Djúpavogi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.