Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 80

Fréttablaðið - 05.12.2005, Síða 80
 5. desember 2005 MÁNUDAGUR R a u n v e r u l e i k a þ á t t u r i n n Ástarfleyið, sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Sirkus, hefur varla farið fram hjá neinum. Einn þátttakendanna er hinn tvítugi Denis Grbic. Denis kom til Íslands sem flóttamaður árið 1996, þá ellefu ára gamall. ,,Eins og fólk kannski man eftir þá var stríð í Júgóslavíu á þessum tíma. Ég bjó í Króatíu, þegar stríðið byrjaði, með móður minni sem er Króati og serbneskum föður mínum. Eftir að húsið okkar hafði verið eyðilagt vegna bardaga allt í kring, urðum við að flýja til Serbíu. Við komum þangað og vorum bókstaflega allslaus. Móðir mín og faðir þurftu að vinna mjög langan vinnudag til þess að við gætum verið í lítilli 40 fermetra íbúð. Sóttu óvart um Ísland Að sögn Denis var þetta ástand ekki viðunandi og því ákváðu þau að sækja um réttindi flóttamanna. ,,Við höfðum heyrt af því að hjálparstofnanir væru að bjóða fólki að flytjast brott af átakasvæðunum til þess að eygja von um betra líf. Móðir mín fór því til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, og í höfuðstöðvar Rauða krossins þar í borg til þess að sækja um flóttamannaréttindi fyrir okkur fjölskylduna. Við komum síðan til Íslands í júlí 1996.“ Denis man vel þegar fjölskyldan kom fyrst til landsins. ,,Til að byrja með fluttum við á Ísafjörð og bjuggum þar í um fjögur ár. Pabbi, er lærður þjónn en hefur aldrei unnið við það hér á landi. Hann fékk vinnu sem netagerðarmaður á Ísafirði og mamma vann á hótelinu og sjúkrahúsinu á Ísafirði. Ég var tiltölulega fljótur að aðlagast. Það tók mig bara einhverja þrjá til fjóra mánuði að byrja að tala málið. Reyndar fékk ég smá sérkennslu í íslensku yfir sumartímann áður en skólinn byrjaði um haustið þannig að ég var kominn með smá grunn þegar skólastarfið hófst. Síðan byrjaði ég í skólanum, fór að æfa fótbolta og að komast meira inn í umhverfið,“ segir Denis á algjörlega lýtalausri íslensku. ,,Það segja mér líka margir að þeir trúi ekki að ég komi frá Króatíu þegar ég segi þeim að ég sé ekki fæddur á Íslandi, þar sem þeir taka ekki eftir neinum hreim eða einhverju slíku.“ Ísafjörður - Keflavík Næsti stoppistaður fjölskyldunnar var Keflavík en þá höfðu þau dvalið fjögur ár á Ísafirði. „Foreldrar mínir búa ennþá í Keflavík. Mamma vinnur á Flughótelinu í Keflavík og pabbi í járnabindingum. Ég flutti mig um set fyrir um tveimur árum og bý nú í Reykjavík þar sem ég leigi íbúð.“ Spurður um hvernig hann kunni við sig á Íslandi segir hann að honum líki vistin afskaplega vel. ,,Ég kann bara mjög vel við mig, það er alveg frábært að búa hérna. Ég kom svo ungur hingað til lands og ég lít svo á að Ísland sé mitt heimaland í dag. Mér líður langbest hérna. Auðvitað sakna ég afa og ömmu úti í Króatíu og vil heimsækja þau af og til en ég sé mig ekki fyrir mér flytja þangað út, að minnsta kosti ekki í nánustu framtíð. Sú verður kannski einhvern tímann raunin þegar ég er orðinn töluvert eldri en ég er í dag.” Langaði að freista gæfunnar Þegar Denis er spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að sækja um í Ástarfleyinu segir hann það vera langa sögu. ,,Þegar ég bjó í Keflavík kynntist ég stelpu og flutti hennar vegna til Reykjavíkur. Við leigðum saman í tvö ár og hættum síðan saman. Þegar liðnir voru um sex mánuðir frá sambandslitunum var mig farið að langa til þess að kynnast einhverri góðri stelpu. Það er eitthvað svo erfitt að kynnast góðum stelpum úti á lífinu þannig að ég ákvað að prófa þetta. Þetta var eitthvað alveg nýtt og ég greip bara tækifærið og skráði mig um leið og ég heyrði af auglýsingunni um þættina. Það má einnig segja að ástæðan fyrir því að ég skráði mig sé hálfgerð ævintýramennska af minni hálfu“ segir Denis að lokum. tomas@frettabladid.is Finnst Ísland frábært land DENIS GRBIC þátttakandi í Ástarfleyinu. – stærsti fjölmiðillinn Hvort sem þú ert einstaklingur í atvinnuleit eða stjórnandi að leita að góðum starfskrafti er allt – atvinna lausnin fyrir þig. allt – atvinna er dreift með Fréttablaðinu inn á 95 þúsund heimili alla sunnudaga . ATVINNULEITIN HEFST HÉR! F í t o n / S Í A F I 0 1 4 6 2 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.