Fréttablaðið - 05.12.2005, Page 84
40 5. desember 2005 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Edgar Davids og
Robbie Keane, leikmenn enska
úrvalsdeildarliðsins Tottenham,
lenti saman á æfingu sl. föstudag
og skiptust á nokkrum höggum
áður en að liðsfélagar þeirra
skildu þá að. Þessu heldur enska
götublaðið News of the World fram
í gær og segja nokkur vitni frá því
sem þau sáu.
„Þetta var mjög alvarlegt.
Þetta voru engar stimpingar
heldur raunverulega slagsmál þar
sem hnefarnir sáu um að tala. Það
var ekki fyrr en liðsfélagar þeirra
stukku á milli sem þeir hættu að
berja hvorn annan,“ sagði eitt
vitnið en ólætin byrjuðu eftir að
þeim lenti saman í tæklingu.
Keane og Davids hafa orð á
sér fyrir að vera skapstyggir með
eindæmum en báðir léku þeir þó
með Tottenaham í sigurleik gegn
Sunderland á laugardaginn og svo
virðist sem að Martin Jol, stjóri
Tottenham, hafi verið fljótur að
ná sáttum á milli þeirra félaga.
Talsmaður Tottenham, Donna
Cullen, staðfesti að upp hefði komið
mál á æfingasvæði félagsins sem
hún vildi ekki fara nánar út í. „Það
kom upp mál sem nú er gleymt og
grafið. Við lítum á það sem merki
þess að það er mikill metnaður til
staðar hjá leikmönnum félagsins,“
sagði Cullen. - vig
Vond uppákoma átti sér stað á æfingu hjá Tottenham á föstudag:
Davids og Keane slógust heiftarlega
EDGAR DAVDIS Hefur lent upp á kant
við liðsfélaga sína og stjóra í ófá skipti á
ferlinum.
FÓTBOLTI Chelsea er sagt
ætla að bjóða í argentínska
táninginn Sergio Aguero þegar
leikmannaglugginn í Evrópu
opnast á ný í janúar. Aguero
þessi er 17 ára gamall framherji
sem þegar hefur verið nefndur
hinn nýji Gabriel Batistuta, eftir
einum magnaðasta framherja
sem Argentína hefur alið af sér.
Aguero leikur með Independ-
iente í heimalandi sínu en hefur
vakið áhuga margra stórliða í
Evrópu, Inter, Juventus, Real
Madrid og að sjálfsögðu Chelsea.
Hann þykir svipa mjög til
Batistuta sem leikmaður vegna
hraða, styrks og frábærrar
skallatækni, en hann var, ásamt
Lionel Messi hjá Barcelona,
lykilmaður í liði Argentínu sem
varð heimsmeistari unglinga í
sumar.
Spænska dagblaðið Marca
greindi frá því fyrir helgi að
Villareal á Spáni hefði þegar
boðið Independiente rúmar 900
milljónir króna fyrir Aguero en
því boði hefði verið hafnað. Talið
er að forráðamenn argentínska
félagsins vilji fá 1,3 milljarða
fyrir stjörnuleikmanninn sinn og
ætti Roman Abramovich ekki að
eiga í miklum erfiðleikum með
að reiða fram slíkum peningum.
- vig
Chelsea vill alla bestu ungu leikmennina:
Chelsea er á höttunum á
eftir hinum nýja Batistuta
SERGIO AGUERO Lykilmaður hjá Argentínu sem varð heimsmeistari unglinga síðasta sumar.
FÓTBOLTI Sam Allardyce vonast til
þess að Roy Keane hafi verið að
fylgjast með Bolton upp á síðkastið
og tekið eftir mögnuðum 2-0 sigri
liðsins á Arsenal um helgina.
Bolton hefur verið á hörku-
siglingu og aðeins tapað einum
af síðustu fimm leikjum sínum.
Liðið er að gera góða hluti í úrvals-
deildinni, Evrópukeppni félagsliða
og enska deildarbikarnum en
Allardyce á sér þá ósk að fá Keane
í búning Bolton.
„Vonandi finnst honum Bolton
vera áhugavert félag. Hann veit
af okkar áhuga og við bíðum bara
eftir viðbrögðum frá honum en
það eru náttúrulega fjölmörg lið
á eftir honum. Við gætum haft
smá forskot þar sem við erum í
nágrenni við heimili hans, nema
hann vilji flytja burt með alla
fjölskyldu sína,“ sagði Allardyce
en Keane stendur meðal annars
til boða að fara til Real Madrid á
Spáni og Celtic í Skotlandi þar sem
honum verða væntanlega boðin
svimandi há laun sem Bolton
getur engan veginn keppt við.
-egm
Bolton hefur mikinn áhuga á að fá Roy Keane:
Allardyce þráir Keane
ROY KEANE Er hann tilbúinn til að flytja
burtu með fjölskylduna?
FÓTBOLTI Íslendingafélagið Stoke
City gæti átt yfir höfði sér
þunga refsingu eftir að tveir
stuðningsmenn liðsins hlupu
inn á völlinn í heimaleik liðsins
gegn QPR á laugardag og réðust
á markvörð gestanna, Simon
Royce.
Atvikið átti sér stað undir
lok leiksins en fljótlega komu
leikmenn beggja liða og rifu
stuðningsmennina frá Royce.
Það fór þó ekki betur en svo
að leikmenn liðanna fóru í
kjölfarið að kljást innbyrðis og
varð allt vitlaust á vellinum um
tíma. Stuðningsmennirnir sem
áttu í hlut voru að sjálfsögðu
handteknir en ljóst er að enska
knattspyrnusambandið lítur málið
mjög alvarlegum augum.
„Royce er stór og sterkur
strákur og getur séð um sig
sjálfur. Það er ekki skráma á
honum og við munum ekki láta
þetta á okkur fá. Það er ekki hægt
að kenna Stoke City um þetta, það
eru stuðningsmennirnir sem þarf
að refsa. Stoke gat ekkert gert,“
sagði Ian Holloway, stjóri QPR,
eftir leikinn.
Johan Boskamp, stjóri Stoke,
gat lítið annað gert en að biðjast
afsökunar. „Fyrir hönd félagsins
biðst ég afsökunar á framferði
stuðningsmannanna. Þetta var
hryllilegt og á ekki að sjást í
fótboltaleik,“ sagði Boskamp.
- vig
Stuðningsmenn Stoke City:
Réðust að
markverði QPR
Íslandsmótið í innanhússfótbolta fór
fram um helgina og voru það Keflavík og
Breiðablik sem eru meistarar þetta árið.
Árlega kemur upp umræða um það hvort
rétt sé að leggja þetta mót niður í núver-
andi mynd en flestir eru á þeirri skoðun
enda má segja að fótbolti innanhúss og
utanhúss séu gjörólíkar íþróttagreinar.
„Það eru miklar líkur á því að við breytum
yfir í öðruvísi gerð af innanhússfótbolta,
Futsal, sem tíðkast víða og er haldið Evr-
ópu- og heimsmeistaramót í þeirri grein.
Það er ekki mikið mál að koma upp þeirri
aðstöðu í íþróttahúsum hér á landi en þá
er spilað á handboltamörk,“ sagði Halldór
B. Jónsson, varaformaður KSÍ.
Áhuginn fyrir þessu innanhússmóti fer
dalandi og ljóst að breytinga er þörf. Lið
leggja mismikla áherslu á þetta mót en
Keflavík vann KR í úrslitaleik í karla-
flokki 1-0 með marki frá Herði Sveins-
syni. Keflavík tefldi fram sterku liði en lið
KR var mestmegnis skipað strákum
sem voru að koma upp úr 2. flokki
félagsins. „Ég mætti bara með þann
hóp sem ég hef núna, það eru ekki
mikið fleiri að æfa. Fyrst við komumst
í úrslitakeppnina þá var stefnan að
sjálfsögðu sett á sigur en til að
byrja með mættum við til að
vera með. Ég er ánægður
með að hugmyndir séu uppi
um að breyta fyrirkomu-
laginu á þessu móti.,“ sagði
Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflavíkur, eftir
sigur sinna manna á
mótinu.
Markvörðurinn
Þóra B. Helgadóttir var
hetja Breiðabliks sem
vann KR eftir víta-
spyrnukeppni
í úrslitaleik í
kvennaflokki.
„Við fáum
lítið út úr
þessu og
við æfðum
bara einu sinni
innanhúss fyrir mótið.
Markmiðið var að hafa bara
gaman og þetta var nokkurs
konar hópefli eiginlega. En
það er náttúrulega alltaf
gaman að vinna bikar,“
sagði Þóra.
ÍSLANDSMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU INNANHÚSS: KEFLAVÍK OG BREIÐABLIK BÁRU SIGUR ÚR BÝTUM
Líklegt að mótið muni breytast
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
og félagar hans í vörn Charlton
vilja örugglega gleyma viðureign
liðsins gegn Manchester City í
gær sem allra fyrst. Leikurinn fór
fram á heimavelli Charlton en liðið
sýndi fullmikla gestrisni og náði
City að sigra 5-2, þetta var fimmti
leikur Charlton í röð í ensku
úrvalsdeildinni sem liðið tapar.
Staðan í leiknum var jöfn, 2-
2, þegar rétt rúmlega tuttugu
mínútur voru eftir en varnarleikur
heimamanna var gjörsamlega
afleitur undir það síðasta og er
ljóst að Alan Curbishley bíður ærið
verkefni við að koma sjálfstrausti
í sína leikmenn á ný. - egm
Góður sigur Man. City í gær:
Vörn Charlton
í rugli
FÓTBOLTI Juventus hefur átta stiga
forskot á Ítalíu eftir leiki helgarinnar
en liðið var stálheppið að ná að sigra
Fiorentina á útivelli í gær. Mauro
Camoranesi skoraði sigurmarkið er
tvær mínútur voru til leiksloka en
áður höfðu heimamenn þrívegis átt
skot í tréverkið.
AC Milan er í öðru sætinu en
liðið tapaði á laugardag fyrir
Chievo 2-1 þar sem staðan var jöfn
þar til á 81. mínútu þegar Simone
Tiribocchi varð hetja Chievo og
skoraði sigurmarkið í óvæntum
sigri liðsins. - egm
Einvígi Juventus og AC Milan:
Átta stiga munur
Ágúst rekinn út
Ágúst Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs
Hauka, var rekinn út úr húsi vegna
harðra mótmæla í leik liðsins gegn
Grindavík í gær. Brotthvarf Ágústs átti
eftir að reynast hið besta mál fyrir
Hauka því eftir að hann var farinn fór
allt að ganga upp hjá Haukum og svo
fór að liðið vann öruggan sigur eftir
mjög jafnan leik framan af.
> Karakter hjá Einari
Handboltamaðurinn Einar Hólmgeirsson
spilaði stórkostlega þegar lið hans
Grosswallstadt lagði Wetzlar af velli
í þýsku úrvalsdeildinni á laugardag
og skoraði 10 mörk, langflest með
sannkölluðum sleggjum utan af velli.
Þjálfari Wetzlar hrósaði Einar í hástert
eftir leikinn og sagði hann muninn á
liðunum. Einar hafði verið frystur af
þjálfara sínum í síðustu leikjum en sýndi
og sannaði á laugardag að
það var röng ákvörðun hjá
honum. Alexander Petterson
skoraði tvö mörk fyrir
Grosswallstadt í leiknum og
þá skoraði Snorri Steinn
Guðjónsson 9 mörk
þegar Minden
tapaði fyrir
Wilhelmshaven.
Gylfi Gylfason
skoraði 5 mörk
fyrir sigurliðið.
HANDBOLTI „Það voru vissir aðilar
að bregðast í þessum leik og
voru of eigingjarnir. Í staðinn
fyrir að spila félagana uppi
voru menn að reyna of mikið
sjálfir og það varð okkur að falli
í síðari hálfleik,“ sagði Sigfús
Sigurðsson hjá Magdeburg í
samtali við Fréttablaðið skömmu
eftir leik liðsins gegn Barcelona
í meistaradeildinni í gær, en
Magdeburg mátti þola 26-24 tap
eftir að hafa leitt í hálfleik, 15-11.
Alfreð Gíslason og lærisveinar
hans komu vel stemmdir til leiks
í gær og höfðu frumkvæðið
stærstan hluta fyrri hálfleiks,
komust í 7-5 og síðan 11-9. Gregory
Tkaczyk var í miklum ham á
lokamínútum fyrri hálfleiks,
skoraði þrjú síðustu mörk hans
og kom Magdeburg í 15-11. Liðið
hélt áfram í upphafi þess síðari
og komst í 17-12 áður en allt
hrökk allt í baklás hjá liðinu.
Barcelona minnkaði muninn í
17-16 og í stöðunni 23-22 fyrir
Magdeburg fór David Barrufet í
marki gestanna í gang og skoruðu
leikmenn Magdeburg ekki í tæpar
10 mínútur. Svo fór að Barcelona
sigraði að lokum með tveimur
mörkum og mega þeir helst þakka
markmanninum sínum Barrufet
sigurinn en hann varði 21 skot.
Það er því ljóst að Magdeburg
bíður gríðarlega erfitt verkefni
við að vinna upp tveggja marka
tap á útivelli, enda Barcelona
ríkjandi Evrópumeistari og með
einn sterkasta heimavöll í Evrópu.
En Sigfús heldur þó enn í vonina.
„Í seinni hálfleik vorum við
einfaldlega lélegir en það sást
í fyrri hálfleik að við eigum
fullt erindi í þetta Barcelona-lið
og getum vel unnið það. Ef við
spilum með höfðinu og fyrir hvorn
annan í síðari hálfleik getum við
alveg komist áfram. Það þurfa
bara litlir hlutir að lagast til að
við höfum þá,“ segir Sigfús en
hann skoraði þrjú mörk eins og
Arnór Atlason, en sá síðarnefndi
spilaði nánast allan leikinn eftir
að Stefan Kretchmar hafði orðið
fyrir meiðslum strax á 5. mínútu
leiksins. vignir@frettabladid.is
Það er ennþá möguleiki
Sigfús Sigurðsson segir að það sé ennþá möguleiki fyrir Magdeburg að komast
áfram í meistaradeildinni í handbolta þrátt fyrir tap á heimavelli gegn Barcelona.
ALFREÐ GÍSLASON Hefur ábyggilega liðið betur en honum leið í síðari hálfleiknum í gær
þegar hann horfði upp á leikmenn Barcelona valta yfir sína menn.