Fréttablaðið - 05.12.2005, Side 90
5. desember 2005 MÁNUDAGUR46
FÓTBOLTI CSKA Moskva náði
frábærum árangri á síðustu
leiktíð eftir að hafa gengið í
gegnum mikla uppstokkun á
leikmannahópnum árið áður.
Liðið fékk meðal annars til sín
þrjá brasilíska leikmenn - Dudu,
Vagner Love og síðast en ekki síst
Daniel Carvalho. Sá síðastnefndi
átti að öðrum ólöstuðum stærstan
þátt í að liðið vann þrefaldan
sigur á síðasta tímabili, rússnesku
deildar- og bikarkeppnina og
Evrópukeppni félagsliða.
„Carvalho átti stórkostlegt
tímabil og ég tel það hneyksli
að hann skuli ekki hafa verið á
listanum yfir þá fimmtíu sem komu
til greina sem knattspyrnumaður
Evrópu. Hann var besti leikmaður
Evrópukeppni félagsliða og spilaði
vel í öllum leikjunum í Rússlandi,“
segir Valeri Gazzaev, þjálfari
CSKA.
Hinn 22 ára gamli Carvalho
kom til CSKA í febrúar árið 2004
en var meira og minna meiddur
fyrstu tíu mánuðina sem hann
var hjá félaginu. Rússnesk
knattspyrna hefur verið á mikilli
uppleið síðustu ár og hefur
fjárstreymið aukist til muna eftir
að þarlendir auðkýfingar fengu
skyndilega mikinn áhuga á því að
setja peninga í félögin.
Carvalho var einn af fyrstu
erlendu leikmönnunum sem komu
til Rússlands, enda var honum tjáð
að CSKA ætlaði sér að ná langt í
Evrópu á næstu árum. Það gekk
eftir um leið og hann náði sér
af meiðslunum og héldu honum
engin bönd á síðasta ári. „Hann
er einn af fáum leikmönnum í
heiminum sem geta búið til hluti
úr engu. Einstaklega skynsamur
leikmaður,“ segir Vladimir
Fedorov, fyrrverandi leikmaður
CSKA og núverandi goðsögn
hjá félaginu. Carvalho er hinn
týpíski brasilíski leikstjórnandi,
með stórkostlegt vald á boltanum,
mikla yfirsýn og magnaða skot-
og sendingatækni.
Frammistaða hans með CSKA
í fyrra vakti að sjálfsögðu áhuga
„stærri“ liða í Evrópu en Gassaev
segir ekki koma til greina að selja
hann, sama hvaða upphæð sé í
boði. „Okkar markmið er að njóta
velgengni í meistaradeildinni um
ókomin ár svo að það væri fráleitt
af okkur að selja bestu leikmenn
liðsins,“ segir hann.
- vig
Sá langbesti í Rússlandi
Daniel Carvalho er brasilískur leikmaður sem er allt í öllu í liði CSKA Moskvu,
yfirburðaliði rússnesku knattspyrnunnar. Þrátt fyrir að stærri lið í Evrópu hafi
sýnt Carvalho mikinn áhuga ætla forráðamenn CSKA ekki að sleppa honum.
DANIEL CARVALHO Hefur spilað nokkra landsleiki fyrir Brasilíu en er sem stendur á eftir
ofurstjörnum liðsins í goggunarröðinni.
KÖRFUBOLTI Það var sigurviljinn
sem skilaði Keflvíkingum
góðum 93-97 útisigri á Fjölni
í Grafarvoginum í Iceland
Express-deild karla í gær. Sá
sigurvilji gerði fyrst vart við
sig í síðasta leikhluta leiksins en
fram að þeim tíma höfðu gestirnir
átt á brattann að sækja lengst af.
Sigurinn hefði getað fallið hvorum
megin sem var á lokamínútunum
en á endanum var það munurinn
á reynslu liðanna sem vó þyngst
og svo fór að gestirnir höfðu að
lokum nauman sigur.
Það var mikið jafnræði með
liðunum í fyrri hálfleik en
Keflavík var ávallt skrefinu á
undan í 1. leikhluta. Heimamenn
í Fjölni náðu þó að saxa á forystu
gestanna í lok fyrsta leikhluta
og í 2. leikhluta náðu þeir
undirtökunum þar sem Magnús
Pálsson fór hamförum og skoraði
alls 12 stig eftir að hafa verið
stigalaus í 1. leikhluta. Svo fór að
Fjölnir hafði fimm stiga forystu,
46-41, þegar liðin gengu til
búningsklefa í hálfleik.
Svo virtist sem að Sigurður
Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur, hefði lesið rækilega
yfir hausamottunum á
lærisveinum sínum í hálfleik því
gestirnir komu mjög grimmir til
leiks í 3. leikhluta, skoruðu fyrstu
sjö stigin og náðu forystu, 46-48.
En sá sprettur fjaraði fljótt út og
sveiflurnar héldu áfram. Hörður
A. Vilhjálmsson fann leiðina að
körfunni fyrir Fjölni og skoraði
þrjár þriggja-stiga körfur í
fjórðungnum. Fjölnir náði mest
10 stiga forystu en góður leikkafli
Keflavíkur undir lok fjórðungsins
hélt þeim áfram inni í leiknum og
staðan fyrir síðasta fjórðunginn
var 69-64, Fjölni í vil.
En Keflvíkingar voru ekki á
þeim buxunum að leggja árar í bát
því þeir komu mjög grimmir til
leiks í 4. leikhluta og náðu fljótlega
fimm stiga forskoti. Heimamenn
náðu reyndar að vinna það upp og
komast yfir, 90-89, þegar skammt
var eftir. En taugar Keflavíkinga
reyndust sterkari á endanum, þeir
náðu forystu á ný og 93-97 því
staðreynd.
Fred Hooks var stigahæstur
hjá Fjölni með 26 stig en næstur
kom Nemjana Sovic með 23. Þá
var Hörður A. Vilhjálmsson mjög
öflugur og skoraði 17 stig. Hjá
Keflavík dreifðist stigaskorunin
mun meira en stigahæstir voru
þeir AJ Moey með 18 stig og
Gunnar Einarsson með 16.
- egm, - vig
Heil umferð fór fram í Iceland Express-deild karla í gærkvöldi:
Meiri sigurvilji hjá Keflavík
HEITUR Hörður A. Vilhjálmsson hjá Fjölni
átti fínan leik í gær en hann dugði þó ekki
til sigurs á Keflavík.
Iceland Express-deild kvk:
GRINDAVÍK-HAUKAR 72-83
Iceland Express-deild kk:
FJÖLNIR-KEFLAVÍK 93-97
HAUKAR-ÍR 75-77
ÞÓR AK.-HAMAR/SELFOSS 88-89
KR-SNÆFELL 74-70
NJARÐVÍK-GRINDAVÍK 105-106
SKALLAGRÍMUR-HÖTTUR 110-77
Evrópukeppnin í handbolta:
Meistaradeildin, 16-liða úrslit - fyrri leikir:
KOLDING-CELJE LASKO. 33-34
MAGDEBURG-BARCELONA 24-26
RK ZAGREB-FLENSBURG 25-23
PARIS-KIEL. 21-28
Ev. bikarhafa, 16-liða úrslit - fyrri leikir:
WISLA PLOCK-SKJERN 30-32
Vignir Svavarsson skoraði 6 mörk fyrir Skjern
en þeir Vilhjálmur Halldórsson og Jón Þorbjörn
Jóhannsson komust ekki á blað.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS