Fréttablaðið - 05.12.2005, Qupperneq 94
5. desember 2005 MÁNUDAGUR50
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Ofurtala
12 19 30 32 38
12 16 19 22 25 36
11 32 1
6 5 6 6 3
9 3 6 5 9
3. 12. 2005
30. 11. 2005
Einfaldur 1. vinningur
næsta laugardag
Einfaldur
1. vinningur næsta
miðvikudag
Fyrsti vinningur gekk ekki út.
Fyrsti vinningur gekk ekki út.
24
LÁRÉTT 2 sjúkleg fýsn 6 samanburð-
artenging 8 rá 9 bók 11 verkfæri 12
rót 14 blossaljós 16 í röð 17 nár 18
angan 20 íþróttafélag 21 krafs.
LÓÐRÉTT 1 klöpp 3 klaki 4 sígild list
5 til sauma 7 nískupúki 10 mál 13
mas 15 listi 16 töf 19 eldsneyti.
Þorgbjörg Erna Mímisdóttir er
nafn sem fæstir kannast við. Þrátt
fyrir það kannast flestir ef ekki
allir landsmenn við hana í sjón,
þar sem hún er litla stelpan sem
lék svo eftirminnilega í auglýsing-
unum margfrægu um Egils malt
og appelsín fyrir nokkrum árum.
Það má eiginlega segja að manni
finnist jólin ekki vera byrjuð fyrr
en Þorbjörg er byrjuð að syngja í
sjónvarpinu.
Spurð um það hvort hún sé mikið
jólabarn svarar Þorbjörg því ját-
andi. ,,Mér finnst mjög gaman
þegar jólin koma. Skemmtileg-
ast finnst mér að fara til frænku
minnar og opna pakkana“ segir
hún og hlær. Þegar hún er spurð
hvort hún trúi á jólasveininn
stendur ekki á svari. ,,Já, auðvitað
trúi ég á jólasveininn. En ég trúi
ekki á rauðu jólasveinana, ég trúi
bara á gömlu íslensku jólasvein-
ana í sauðskinnsskónum. Ég hef
meira að segja reynt að nota víd-
eóupptökuvél til þess að komast að
því hver þeirra gefi mér í skóinn.
Það sást nú samt ekki mikið á þeim
myndum, það var bara einhver grá
klessa að gefa mér í skóinn.“
Þorbjörg er harðákveðin þegar
kemur að því að velja framtíðar-
starfið. ,,Ég ætla að verða bæði
leikkona og söngkona, mig hefur
alltaf langað til þess. Ég hef alltaf
haft mjög gaman af leiklist og líka
sönglist.“ Þorbjörg segist syngja
mjög mikið hvert sem hún fer. ,,Ég
er eiginlega alltaf syngjandi. Ég
syng í skólanum og líka heima hjá
mér. Ég er núna í námskeiði sem
nefnist leik- og sönglist. Þá fer
maður fyrst og æfir sig að syngja
lög og svo fer maður í leiklist og
býr til stutt leikrit. Svo sýnir
maður það að lokum. Ég hef líka
leikið í fleiri auglýsingum heldur
en bara appelsínauglýsingunni“
segir hún ákveðin. ,,Ég hef leikið í
skóauglýsingu og umferðarauglýs-
ingu. Svo lék ég í einu leikriti, það
hét Híbýli vindanna. Svo hef ég
líka leikið í tveimur stuttmyndum.
Önnur þeirra heitir Gamla konan
og hin heitir Munaðarleysinginn
og þar lék ég munaðarleysingj-
ann“ segir Þorgbjörg stolt.
Þegar hún er spurð að því hvort
henni finnist Egils malt og appelsín
raunverulega gott svarar hún því
játandi. ,,Mér finnst það rosalega
gott. Ég er alltaf að drekka það“
segir hún að lokum og hlær. Gaman
verður að fylgjast með þessari ungu
og efnilegu leik-og söngkonu í fram-
tíðinni. tomas@frettabladid.is
ÞORBJÖRG ERNA MÍMISDÓTTIR: MALT- OG APPELSÍNSTÚLKAN:
ÞORBJÖRG MÍMISDÓTTIR er bráðefnileg leik og söngkona.
HRÓSIÐ
...Fær Jón Gnarr fyrir að vera
loksins búin að finna sína réttu
leið.
Eigendur tískubúðanna Dead og
Nakta apans tóku saman höndum
fyrir gott málefni fyrir stuttu og
hönnuðu boli og hettupeysur til
styrktar öryrkjum í Palestínu. „Ég
stakk upp á því við Eldar Ástþórs-
son sem skipulagði Palestínutón-
leikana sem haldnir voru nýver-
ið á Grand Rokki að taka að mér
þetta verkefni, „ segir Sara María
Eyþórsdóttir í Nakta apanum. „Ég
hafði svo samband við vin minn
Jón Sæmund hjá Dead sem hefur
mikið unnið með hefðbundin Pal-
estínumynstur í flíkum sínum og
hann sló til, enda gott málefni sem
við styðjum bæði heilshugar.“ Bol-
irnir og peysurnar, sem voru gerð-
ar sérstaklega fyrir tónleikana og
bera bæði merki Dead og Naked
Ape í hálsmálinu, innihalda meðal
annars teikningar af aðskilnað-
armúrnum illræmda sem verið
er að reisa þvert á alþjóðalög á
herteknu landi Palestínumanna,
slagorðið „Frjáls Palestína!“ yfir
hefðbundin keffiyeh-klúts munst-
ur og sérstök útfærsla á ljósmynd
Örnu Aspar Magnúsardóttur sem
var sem sjálboðaliði á vesturbakk-
anum um þriggja mánaða skeið
síðasta sumar, af palestínskri
stúlku. Húsfyllir var einmitt á vel
heppnuðum tónleikum og bolirnir
ruku út eins og heitar lummur, en
allur ágóði af þeim rennur óskert-
ur til Öryrkjabandalags Palestínu.
Enn er hægt að fá þessar sérstöku
flíkur í Nakta Apanum í Banka-
stræti, en hettupeysurnar kosta
átta þúsund krónur og bolirnir
fjögur þúsund. -amb
Tískubolir til
styrktar Palestínu
SÉRHANNAÐIR BOLIR dead/nakta apans
til styrktar öryrkjabandalaginu í palestínu
vekja athygli.
OPIÐ ALLA LAUGARDAGA 10-14
STÓR HUMAR
RISARÆKJUR
HÖRPUSKEL
TUNFISKUR
SALTSÍLD
KRYDDSÍLD
LÁRÉTT: 2 fíkn, 6 en, 8 slá, 9 rit, 11 al,
12 grams, 14 flass, 16 hi, 17 lík, 18 ilm,
20 kr, 21 klór.
LÓÐRÉTT: 1 berg, 3 ís, 4 klassík, 5 nál,
7 nirfill, 10 tal, 13 mal, 15 skrá, 16 hik,
19 mó.
LAUSN
Ómissandi hluti af jólaskapi æ fleiri Íslendinga er að
fara í rómantískan desemberbíltúr með bitgóða sög
og dýrindis nesti í þeim tilgangi að velja og höggva sín
eigin jólatré.
Að sögn Brynjólfs Jónssonar, skógfræðings og fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags Íslands, hafa mörg
aðildarfélög Skógræktarfélagsins boðið upp á þennan
möguleika um árabil, en um land allt eru sérstakir jóla-
skógar ræktaðir með forkunnar fögrum grenitrjám og
stafafuru sem prýða mega stofur landsmanna.
„Með hverju árinu sem líður verður ferð í jólaskógana
veigameiri og útbreiddari þáttur í jólahaldi þjóðarinnar.
Barnafjölskyldur eru mest áberandi í hópi skógarhögg-
smanna og fara þá mikið í skógana í kringum Reykjavík
og nágrannasveitarfélögin, en einnig er tekið sérstaklega
á móti stærri hópum í Brynjudalsskógi í Hvalfirði. Þá
myndast oft mikil jólastemming meðal manna, kveiktur
er varðeldur, góðgæti lagt á borð og oftar en ekki teknir
með jólasveinar til að gera sem mest úr deginum fyrir
börnin, sem skemmta sér vitanlega best við leitina að
rétta jólatrénu,“ segir Brynjólfur, en starfsmenn skógrækt-
arfélaganna taka á móti gestum jólaskóganna á ákveðn-
um tímum allar helgar í desember.
„Það er allur gangur á því hvaða stærð jólatrés verð-
ur fyrir valinu og fer eftir smekk hvers og eins; en getur
verið frá einum metra og upp í þrjá, fjóra. Jólatrén eru nú
geysilega falleg og barrmikil eftir liðið sumar og öruggt að
enginn verður svikinn af skógarhöggsferð í jólaskóginn til
að finna hið fullkomna jólatré fjölskyldunnar. Á staðnum
pakka starfsmenn skógræktarfélaganna inn trjánum í net
og ganga frá til flutnings, en fyrir hvert tré borga gestir
viðráðanlegt verð sem fer eftir stærð trjánna,“ segir Brynj-
ólfur og bætir við að óhætt sé að höggva sér tré strax í
byrjun desember.
„Jólatréð er lifandi og fara þarf vel með það svo það
standi sem lengst. Mikilvægast er að geyma það utan-
dyra, standandi í vatni. Þá gildir einu hvort frjósi eða ekki,
en trén halda barri sínu og fegurð áfram þótt enn séu
nokkuð margir dagar til jóla.“
Um opnunartíma og staðsetningu jólaskóganna má
lesa á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands: skog.is.
SÉRFRÆÐINGURINN BRYNJÓLFUR JÓNSSON BÝÐUR LANDSMÖNNUM Í JÓLASKÓGARHÖGG:
Barrmikil og fögur jólatré í skógum lands
Ætlar að verða leik- og söngkona
BRYNJÓLFUR JÓNSSONFRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000