Fréttablaðið - 15.12.2005, Síða 46
15. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Á öllum heimilum verða að
vera til góðir hnífar til hvers
kyns verkefna. Rétt meðhöndl-
un hnífanna er hins vegar
mikilvæg.
Jólahátíðinni fylgir yfirleitt fjöl-
breytt eldamennska. Þegar að
henni kemur eru hnífarnir nánast
jafnmikilvægir og steikin sjálf.
Margir vita hins vegar ekki
hvernig hnífa á að kaupa því hægt
er að fá fjölmarga mismunandi
hnífa í öllum stærðum og gerðum.
Hin venjulegi steikarhnífur, sem
einnig er kallaður kokkahnífur,
er mikilvægastur þar sem hann
nýtist við fjölbreyttustu og mikil-
vægustu verkin.
Stórir hnífar eru þægilegir
þegar skera á kjöt eða annað stórt
og til þess að saxa og hakka. Minni
hnífar eru meðfærilegri og nýt-
ast því ágætlega til minni verka.
Einnig er hægt að fá margar aðrar
gerðir hnífa eins og flökunarhníf,
fiskihníf, kjöthníf, brauðhníf og
fleiri. Nafnið á þeim gefur yfir-
leitt best til kynna til hvers á helst
að nota þá.
Á heimasíðu verslunarinnar
Kokku á Laugaveginum má finna
ýmsar hagnýtar upplýsingar um
bæði val og viðhald hnífa. Þegar
kaupa á inn nýja hnífa er miklvægt
að velja gæði umfram verð. Bitið á
ódýrum hnífum getur horfið mjög
fljótlega og þeir eiga það mjög
oft til að vera mjög endingarlitl-
ir. Slíka hnífa þarf að endurnýja
mjög reglulega og þess vegna er
ekki óvitlaust að fá sér gæðahníf
sem endist í mörg ár.
Hnífarnir eru hins vegar
einskis nýtir ef þeir eru ekki
rétt meðhöndlaðir. Passa þarf að
brýna þá reglulega, samt ekki of
oft. Þrífa þarf þá strax eftir hverja
notkun því matarleifar geta fest
við hnífinn og jafnvel haft skaðleg
áhrif á hnífinn. Best er að þrífa
hnífa einfaldlega með vatni strax
eftir notkun, þá er líka auðveldast
að ná matarleifunum af. Löng bið
í uppþvottavélum getur líka verið
skaðleg fyrir hnífa auk þess sem
mikil og sterk sápa getur tært upp
hnífinn.
Nú er því tíminn til þess að
huga vel að hnífunum sínum en
hafa ber í huga að velja þarf hníf-
ana og sinna þeim eftir notkun og
þörfum hvers og eins. ■
Jólasteikarhnífarnir
Týpískir steikarhnífar sem hægt er að fá í mörgum stærðum og má nota við fjölbreytt
verkefni í eldhúsinu.
Hér má sjá margar mismunandi tegundir hnífa.
Búáhöld í Kringlunni sel-
ur hið klassíska sænska
Ostindia-stell.
Ostindia-stellið hefur verið
framleitt af fyrirtækinu
Rörstrand frá 1931 og er
til bæði í höllum og kotum
Svíaríkis. Það á sér merka
sögu. Mynstrið er nefnilega
af kínversku postulínsbroti sem
fannst eftir að Austurindíafarið
Götheborg sökk við vesturströnd
Svíþjóðar árið 1745 með mjög
verðmætan farm. Mynstrið hefur
lifað af allar tískusveiflur og post-
ulínið staðist tímans tönn, þrátt
fyrir uppþvottavélar og hinar
ýmsu gerðir þvottaefna. Ostindia-
borðbúnaðurinn er ljósblár með
blómamynstri og handmálaðri
rönd. Hann fæst bæði fyrir mat
og kaffi. ■
Heimilis-
legt
stell í
háum
gæðaflokki.
Bollinn er af þægilegri stærð.
Könnur og bollar eru með
dökkblárri rönd.
STELLIÐ: OSTINDIA
Þegar annríki er á heimilinu er
oft erfitt að sinna bæði börnum
og heimilisverkunum á sama
tíma.
Þurfir þú frið til að skrifa jólakort-
in, baka skinkuhornin, skreyta eða
þrífa skaltu gefa þér tíma til að
börnin fái verkefni sem hafa ofan
af fyrir þeim. Afskipt börn geta
orðið vansæl og pirruð og einstaka
sinnum til vandræða. Einfalt er að
útvega sér þykkan pappa eða papp-
ír sem er límdur tryggilega á heilan
vegg í íbúðinni. Börnin fá svo liti og
frjálsar hendur til að mála jólalegar
myndir á pappann. Mikilvægt er að
brýna vel fyrir börnunum að halda
sig innan pappaveggjarins. Eftir
situr að börnin skemmta sér, þú
færð frið til að sinna verkum þínum
og heimilið eignast glæsilegt og risa-
stórt málverk að degi loknum.
Hafðu ofan af
fyrir börnunum
Glæsilegt úrval af
handklæðum
- gæði, ending
og góð þjónusta
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík