Tíminn - 14.12.1976, Qupperneq 5
Þriðjudagur 14. desember 1976
5
Geiri hefur byrgt reykháfinn og bíöur
eftir aö mennirnir komi út!
Þaö er allt aö T Æ, ég
fullast af reyk J sé ekki
hér! Á neitt!
Hvaöþá’l \
Hvaöa reykur er'
þetta? Hóst, j
hóst.'
Hérna
koma
þeir!
IvVLl MkWm
AAunið
eftir
síma
happ-
Munið eftir simahappdrættinu,
er kjörorð samtaka sem eru að
safna krónum til þess að standa
straum af starfi sinu og rekstri
nokkurra hjálparstofnana. Þaö er
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra að Háaleitisbraut 13 í
Reykjavik. Félagið hefur viðtæka
starfsemi, bæði i Reykjavik og
nágrenni. Að Háaleitisbraut 13
eru aðalstöðvar félagsins. Þar
eru hjúkrunarklefar, æfingastof-
ur og skrifstofur félagsins. Þar er
einnig sundlaug. Þar er læknir i
fullu starfi. Sérhæfður sundkenn-
ari kennir og leiðbeinir i laúginni,
en þangað sækja tiðum 96 manns
tvisvar og þrisvar i viku hverri.
Aðallega ersent þangað sjúkt fólk
af Grensásdeild. Auk hins fasta
læknis félagsins, starfa 3 læknar
að hluta.
Daglega koma i æfingar 120— 130
sjúklingar eftir tilvisun lækna. En
við stofnunina eru 8 sjúkraþjálf-
arar, auk þess nokkrar aðstoðar-
stúlkur sjúkraþjálfara, en á
heimilinu er starfsfólk alls 32.
Til æfingastöðvarinnar er kom-
ið með sjúklinga frá mörgum
stöðum, svo sem öskjuhliðar-
skóla við Reykjanesbraut, úr
Hliðaskóla, Kjarvalshúsinu og frá
Grensásdeild. Félagið hefur bil til
þess að sækja fólk og skila þvi aft-
ur. Þá má geta þess, að félagið
hefur i 14 sumur haft barnaheim-
ili að Reykjadal i Mosfellssveit.
Aðalfé uppbyggingarstöðvarinn-
ar og heimilisins kemur frá sima-
happdrættinu. Fyrir þá peninga
hefur félagið byggt hinar nyt-
sömu stofnanir Qg rekið með
myndarbrag.
Nú býður félagið 5 Austin Mini
bila, en verð hvers miða er kr.
400.00. Dregið verður 23. desem-
ber.
Undirrituðum, sem um nokkurt
skeið hefur notið góðrar hjálpar á
þessari stofnun, er ljúft aö minna
á hið mikilsverða happdrætti fé-
lagsins —ogá bilana 5, sem iboði
eru.
G.M.M
Vegaframkvæmdir
á Snæfellsnesi
F.F.S.Í.:
Engar forsendur fyrir veiðiheimildum
handa útlendingum
E.H. Dal. — Miklar endurbætur
voru gerðar á Kerlingarskarðs-
vegi i haust og standa vonir til, að
þær leiði til mun færri snjómokst-
ursdaga næstu vetur. Kostuðu
þær framkvæmdir milli 8 og 9
millj. króna, og má fullyrða, að
með álika framlagi á næsta ári
yrði þessi mikilvægi tengivegur
milli byggðanna norðan — og
sunnanfjalls á Snæfellsnesi greið-
fær, nema i aftaka snjóaveðrum.
Þá hafa staðið yfir vegafram-
kvæmdir hér i Miklaholtshreppi
siðari hluta nóv. Hefur verið
gerður upphækkaður vegur, þar
sem áður voru aðeins ruddar
brautir á melum, milli Laxár og
Kleifár og aftur hjá Fáskrúðs-
bakka. Þessir vegakaflar voru
löngum ógreiðir yfirferðar, ef um
nokkurn snjó var að ræða, og
kröfðust mikils moksturs, en lágu
aftur á móti stöðugt undir vatni i
leysingum og rigningum.
Þessi framkvæmd kostaði rösk-
ar þrjár milljónir króna, en frá-
gangi er ekki að fullu lokið. Gegn-
ir furðu, að ekki skuli i þetta hafa
verið ráðizt fyrir áratugum, þar
sem segja má, að allt efni hafi
verið við höndina og ekki þörf á
öðru en að ýta þvi saman og upp.
Það er sameiginlegt með þessum
vegaframkvæmdum, að þær eru
að verulegu leyti unnar fyrir
lánsfé úr héraði. Ræktunarsam-
band Snæfells- og Hnappadals-
sýslu hefur lánað ýtuvinnu, og
aðrir eigendur þungavinnuvéla
og vörubifreiða hafa lánað til
framkvæmdanna. Þá lánaði
Miklaholtshreppur hálfa milljón
kr. til vegabótanna þar i sveit.
Er þó ekki svo að skilja, að
sveitarfélagið hafi i rauninni bol-
magn til slikra hluta, og þarf að
taka bráðabirgðalán á móti, en
þolinmæði hreppsbúa gagnvart
fyrrgreindum vegaköflum var
mjög á þrotum og þvi farið inn á
þessa braut.
Enn er þess að geta, að veitt
var einni milljón króna af rikisfé
til endurbóta og styrkingar á veg-
inum að Laugargerðisskóla, en
hann hefur illa staðizt aukna um-
ferð og þurfti auk þess ekki mikið
til að hann tepptist af snjóum.
Viðar hefur verið unnið að
vegabótum á Snæfellsnesi i haust.
Lagfærðir hafa verið snjóakaflar
i Breiðubik og Staðarsveit, og
kafli á Skógarstrandarvegi
styrktur. Fólk er ánægt með það,
sem áunnizt hefur i þessum efn-
um, og gerir sér vonir um, að
framhald verði á næstu árum, en
sannast sagna þá eru vegir á
Snæfellsnesi viða mjög veikburða
og illa uppbyggðir, til að þola þá
umferð, sem á þeim mæðir.
V12323 fBMg
40 sídur yg’;
sunnudaga
F.I. Reykjavik.— A ráðstefnu
Farmanna og fiskimannasam-
bands Islands, sem haldin var
dagana 4.-5. des. s.l. var fagnað
þeim áfanga, sem náðst hefur i
Landhelgismálinu, og hvatt til
einingar allra landsmanna gegn
áframhaldandi veiðisamning-
um við erlend riki.
Ráðstefnan varar ráðamenn
þjóðarinnar við, að skella
skollaeyrum við aðvörunum og
ályktunum Hafránnsóknastofn-
unarinnar, sem hafi á að skipa
færustu visindamönnum á sviði
fiskifræði, og hvetur beinlinis til
þess að eftir þeirra tillögum
verði farið að fremsta megni.
Ráðstefnan bendir á, að nú
þegar.verðiaðhefjasthanda um
úrbætur á sildarverksmiðjum
rikisins. Er þeim tilmælum
beint til rikisstjórnarinnar, að
hún beiti sér fyrir þvi að aukið
verði þróarrými sildarverk-
smiðjanna, þar sem vitað er aö
möguleikar eru á þvi að geyma
hráefni um lengri tima
óskemmt.
Einnig voru á ráðstefnunni
gerðar ályktanir um björg-
unartæki, lifeyrissjóð sjómanna
og skólamál.
ELDRAUN A UTHAFINU
Desmond Bagley lauk ekki það snemma við nýju
söguna sína að hún gæti komið út á íslensku í ár og því
kemur hún út næsta haust. En þess í stað gefur Suðri
nú út spennandi og ævintýralega sögu eftir amerískan
höfund, Charles Williams. Allar sögur hans gerast á
sjó og þetta er sú fyrsta sem út kemur á íslensku.
Charles Williams er tvímælalaust í fremstu röð
þeirra sem skrifa spennandi bækur og nýja bókin eftir
hann heitir ELDRAUN Á ÚTHAFINU.
Tryggið yður eintak í tíma.
CHARLES WILUAMS