Fréttablaðið - 16.01.2006, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
16. janúar 2006 — 15. tölublað — 6. árgangur
ERLA SÓLVEIG OG ÓSKAR
Sjaldan fellur eplið
langt frá eikinni
fasteignir hús
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR
Kemst ágætlega frá
hlutverkinu í Carmen
Sýningin er veisla fyrir augað
MENNING 26
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Byrjar með sjónvarpsþátt á
Skjá einum
Þátturinn fjallar um meðgöngu, fæðingu og fyrstu skrefin
FÓLK 34
16%
31%
F
ré
tt
a
b
la
›
i›
F
ré
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005.
Fasteignablað
Morgunblaðsins
Allt-fasteignir.
á mánudegi
LESTUR MEÐAL 25-45 ÁRA
Húsnæðisleitin
hefst í
Fréttablaðinu
LÍTILSHÁTTAR ÉL Á vesturhluta
landsins og snjókoma framan af degi
fyrir austan en svo úrkomulítið og léttir
smám saman til suðaustan til. Frost 1-9
stig, kaldast inn til landsins fyrir norðan.
VEÐUR 4
Gerir upp hinn
fornfræga stað 22
Gunnar Már Þráins-
son ætlar að bjóða
upp á klúbb að
hætti evrópskra
stórborga.
FÓLK 34
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hafði
afskipti af byssumanni sem skaut
18 skotum úr litboltabyssu á hús
nágranna síns um klukkan ellefu
á laugardagsmorgun. Skaut hann
af svölum sínum í fjölbýlishúsi í
Njarðvík að öðru fjölbýlishúsi sem
er í um 50 metra fjarlægð.
Að sögn lögreglunnar eru þess-
ar byssur nokkuð kraftmiklar og
geta því verið hættulegar. Tók
lögreglan byssuna í sína vörslu og
má maðurinn eiga von á að verða
ákærður fyrir brot á vopnalaögum.
Að sögn lögreglu fékk hann einnig
föðurlegt tiltal, en nokkuð er um
að afskipti séu höfð af unglingum
við svona iðju en þessi byssumað-
ur var á fullorðinsaldri. Gaf hann
þá skýringu á athæfinu að hann
vildi hrella nágranna sinn. - jse
Litboltabyssumaður:
Skaut ítrekað á
nágrannann
Viggó bætti met Þorbjörns
Viggó Sigurðsson
bætti met Þorbjörns
Jenssonar í gær þegar
handboltalandsliðið
lék sinn sextánda leik í
röð undir hans stjórn
án taps. Ísland gerði
í gær jafntefli við
Noreg, 32-32.
ÍÞRÓTTIR 30
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs
Í dag eru liðin 30 ár
síðan Ólafur Jóhann
Sigurðsson hlaut
verðlaunin, fyrst-
ur Íslendinga.
TÍMAMÓT 20
PRÓFKJÖR Sjálfstæðiskonur eru
undrandi og ósáttar við hlut
kvenna í prófkjörinu í Garðabæ
á laugardag. Karlar skipa fjögur
efstu sætin. Sjö konur og fimm
karlar buðu sig fram. Konur náðu
fimmta, sjötta og sjöunda sæti.
„Niðurstaðan er áfall fyrir
konur og áfellisdómur. Konum er
hafnað í prófkjörinu í Garðbæ,“
segir Laufey Jóhannsdóttir, núver-
andi bæjarfulltrúi sem lenti í sjö-
unda sæti. Sjálf er hún ekki sár
yfir slæmu gengi sínu.
Ásta Möller, formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna,
segir niðurstöðuna slys sem hvorki
eigi né megi gerast. „Þarna voru
frambærilegir karlar, það vantar
ekki, en líka mjög frambærilegar
og góðar konur með mikla reynslu
sem og nýjar og öflugar,“ segir
Ásta. „Ég held að Garðbæingar
þurfi að skoða hvaða kostir eru í
stöðunni, hvort og þá til hvaða ráða
hægt sé að grípa.“
Erling Ásgeirsson bæjarfulltrúi
hreppti fyrsta sætið. Hann segir
að vinna þurfi í góðri sátt við alla
eigi að hrófla við úrslitum próf-
kjörsins. „Vegna mikillar þátttöku
í prófkjörinu eru niðurstöðurnar í
fyrstu sjö sætin bindandi,“ segir
Erling: „En það er jú fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ
sem hefur síðasta orðið um það
hvernig framboðslistinn verður
settur saman.“
Jón Guðmundsson, formaður
fulltrúaráðsins, segir ráðið funda
á næstu dögum. Þar verði niður-
staða prófkjörsins rædd. Ekki sé
útilokað, þó ólíklegt sé, að breyt-
ingar verði gerðar. Fordæmi séu
fyrir því að karl víki úr sæti fyrir
konu.
Laufey segir greinilegt að
konur sýni ekki sama liðstyrk og
karlar sýni hvor öðrum. „Það er
alveg ljóst að framboðslisti sem er
eingöngu skipaður körlum í bæjar-
stjórnarkosningunum í vor fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins er ekki
sigurstranglegur.“ Ragnheiður
Inga Guðbjartsdóttir, er sammála
því þótt hún sé ánægð með þann
mikla stuðning sem hún fékk í
prófkjörinu, hún stefndi á þriðja til
fjórða sæti en hlaut það fimmta.
Flokksmönnum í félagi
sjálfstæðismanna í Garðabæ fjölg-
aði um ríflega helming í aðdrag-
anda kjörsins. Kosningaþátttakan
var nær 81 prósent. Laufey segir
að smalað hafi verið í prófkjörið
til síðustu stundu: „Þetta er ekki
lengur prófkjör sjálfstæðismanna
í Garðabæ heldur er þetta prófkjör
sjálfstæðismanna í karlabæ.“ - gag
Konunum hafnað í
prófkjöri í Garðabæ
Konur eru undrandi á því að engin kona náði kosningu í fjögur efstu sætin í
prófkjöri sjálfstæðismanna í Garðabæ. Ásta Möller segir prófkjörsniðurstöðuna
slys. Laufey Jóhannsdóttir segir konum hafnað. Það sé áfall og áfellisdómur.
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
náði í tvo slasaða í gærdag. Fyrst
barst tilkynning um að vélsleða-
maður hefði slasast þegar hann
blindaðist og keyrði í skafl við
Halldórsfell skammt hjá Land-
mannalaugum. Skall hann með
brjóstið á stýrið. Að sögn vakthaf-
andi læknis á Landsspítalanum er
hann með brjóstholsáverka en er
ekki í lífshættu.
Á leiðinni til Reykjavíkur sótti
þyrlan stúlku sem slasaðist á
skíðum í Bláfjöllum. Hún fór heim
eftir læknisskoðun. - jse
Landhelgisgæslan:
Tveir slasaðir
af fjöllum
SJÚKRAFLUTNINGAR Komið með hina
slösuðu úr Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar,
á Landspítala - háskólasjúkrahús í gær.
FINNLAND, AP Tarja Halonen, forseti
Finnlands, náði rúmum 46 prósent-
um atkvæða í forkosningum þar í
landi fyrir næstu forsetakosningar.
Þar af leiðandi þarf hún að
heyja kosningaeinvígi við fram-
bjóðanda íhaldsmanna, Sauli
Niinisto sem náði rúmum 24%
atkvæða, ætli hún að ná endur-
kjöri. Halonen, sem er fyrsti kven-
forseti Finnlands, þurfti meira en
50% atkvæða til þess að komast
hjá kosningaeinvíginu.
Í þriðja sæti í kosningunum
var Matti Vanhanen, forsætis-
ráðherra, með tæp 19% atkvæða.
„Þetta er synd en það þýðir ekk-
ert að kvarta. Ég er ennþá í góðri
stöðu,“ sagði Halonen nokkuð
vonsvikin þegar úrslitin voru
orðin ljós. Fimm frambjóðendur
úr smærri stjórnmálaflokkum,
tóku þátt í kosningunum. Fengu
þeir á bilinu 0,4 til 3,5% atkvæða.
Kosningaþátttaka var rétt undir
74%, sem er þremur prósentum
minna en í síðustu forsetakosn-
ingum.
Önnur umferð forsetakosning-
anna verður haldin 29. janúar. Þá
kemur í ljós hvort Halonen muni
sitja í forsetastólnum í sex ár til
viðbótar. - fb
Kosið verður milli tveggja efstu í forsetakosningunum í Finnlandi:
Halonen náði ekki meirihluta
SLYS Tvær konur féllu niður um
vök á Rauðavatni þegar þær voru
á gangi þar um 50 metra frá landi
rétt fyrir klukkan eitt í gærdag.
Sjúkraliðsmenn, slökkviliðs-
menn og lögreglumenn voru fljót-
lega komnir á svæðið og náðu þeim
upp úr vatninu en lögreglan telur
að þær hafi verið í um tíu mínútur
ofan í. Önnur var send á slysadeild
en fór fljótlega heim. Þær voru á
göngu ásamt gönguhópi þegar ís
brotnaði undan þeim með fyrr-
greindum afleiðingum. - jse
Slys á Rauðavatni:
Féllu ofan í vök
BJÖRGUNARMENN MEÐ FLEKANN Björg-
unarmenn notuðu fleka til að ná konunum
upp úr vökinni.
SIGURSTEINN MÁSSON Í PREDIKUNARSTÓL Fulltrúar samkynhneigðra stigu í predikunarstól í Fríkirkjunni í gær en guðsþjónustan var tileink-
uð baráttu þeirra. Landsþekktir tónlistarmenn léku fyrir safnaðargesti sem fylltu kirkjuna. Hér sést Sigursteinn Másson hins vegar predika
og hið sama gerði Ragnhildur Sverrisdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gríðarlegt tap bregðist
loðnan
Óvissa er um loðnuveiðar á Íslands-
miðum og kenningar uppi um að
loðnan sé að færa sig í kaldari sjó.
Aðrir telja að árgangurinn 2004 hafi
misfarist. Það hefur gerst á árum áður.
BAKSVIÐ 12