Fréttablaðið - 16.01.2006, Qupperneq 4
4 16. janúar 2006 MÁNUDAGUR
Skeifan 4
S. 588 1818
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 13.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 61,08 61,38
Sterlingspund 107,91 108,43
Evra 73,64 74,06
Dönsk króna 9,872 9,93
Norsk króna 9,12 9,174
Sænsk króna 7,916 7,962
Japanskt jen 0,5331 0,5363
SDR 88,49 89,01
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
103,3046
KÁRAHNJÚKAR Sigurður Arnalds,
kynningarstjóri Kárahnjúkavirkj-
unar, segir vinnu við samsetningu
á þrýstipípum í tveimur samsíða
aðfallsgöngum virkjunarinnar
töluvert á eftir áætlun. Starfs-
menn Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri hófu verkið en aðalverktaki
þess, DSD Noell, tók við verkinu
eftir gjaldþrot Slippstöðvarinnar.
„Ég veit ekki
n á k v æ m l e g a
hversu mikið
verkið er á eftir
áætlun en DSD
ætlar að vinna
upp tafirnar á
árinu með fjölgun
starfsmanna og
meiri vaktavinnu
en áður var áform-
að. Sú ákvörðun
DSD mun ekki
þýða aukinn
kostnað fyrir
Landsvirkjun og
tafirnar munu
ekki hafa áhrif á
framkvæmdirnar
í heild,“ segir Sig-
urður.
Þýska fyrir-
tækið Pro Works
H & E kom að
sama verki sem
undirverktaki hjá
Slippstöðinni. Pro
Works tapaði um
20 milljónum króna á gjaldþroti
Slippstöðvarinnar en Thomas C.
Kenny, einn framkvæmdastjóra
Pro Works, fullyrðir að gjald-
þrot Slippstöðvarinnar eigi eftir
að kosta Landsvirkjun ófyrirséð
fjárútlát. „DSD mun á einhverjum
tímapunkti kúga Landsvirkjun til
að fallast á aukagreiðslur í tengsl-
um við verkið. Á hvaða grunni
þær kröfur verða byggðar get ég
ekki sagt til um nákvæmlega en
ég er ekki í nokkrum vafa um að
þær munu líta dagsins ljós, fyrr
eða síðar,“ segir Kenny.
Sigurður Arnalds segir að
sér vitanlega hafi DSD enn sem
komið er ekki farið fram á neinar
aukagreiðslur. „Þeir hafa engar
forsendur til að leggja fram slík-
ar kröfur enda hafa engin ytri
skilyrði breyst sem kalla á slíkar
greiðslur. Þótt DSD lendi í hremm-
ingum með sína undirverktaka
þá er það þeirra mál og á ekki að
koma niður á Landsvirkjun sem
verkkaupa“ segir Sigurður.
Samsetning þrýstipípanna í
aðfallsgöngum Kárahnjúkavirkj-
unar er gríðarlega umfangsmikið
verk. Í upphafi var gert ráð fyrir
að framkvæmdin tæki eitt og hálft
ár en göngin verða þau lengstu
sinnar tegundar í veröldinni; 420
metrar að lengd hvor göng.
kristjan@frettabladid.is
Kárahnjúkaverkefni Slipp-
stöðvarinnar á eftir áætlun
Gjaldþrot Slippstöðvarinnar á Akureyri hefur raskað tímaáætlun við umfangsmikið verk við Kárahnjúka-
virkjun. Einn kröfuhafa í þrotabú Slippstöðvarinnar segir að Landsvirkjun muni neyðast til að fallast á
aukagreiðslur vegna verksins.
TRÖLLVAXIN STÁLRÖR Starfsmenn Slippstöðvarinnar unnu að samsetningu á röraeiningum í aðfallsgöngum Kárahnjúkavirkjunar áður en
félagið varð gjaldþrota. Hver eining vegur um 45 tonn.
LÖGREGLA Gæsluvarðhaldsúr-
skurður yfir átján ára pilti hefur
verið framlengdur til 10. mars.
Hann er grunaður um árás á jafn-
aldra sinn með sveðju í samkvæmi
í Garðabæ í byrjun október.
Lögmaður piltsins, Jóhannes
Rúnar Jóhannsson, segir rann-
sóknina taka of langan tíma sem
sé unga manninum ekki boðlegt.
Hann segir lögreglu nánast ekk-
ert hafa unnið að rannsókninni
því hún hafi beðið eftir niðurstöð-
um úr DNA-rannsókn í Noregi á
sýnum á sveðjunni.
„Þetta er búið að taka allt of
langan tíma og með eindæmum
hvað DNA-rannsóknin hefur tekið
langan tíma. Það er mjög alvarleg-
ur hlutur því hann er aðeins átján
ára gamall, bara unglingur.“
Jóhannes segir óljóst fyrir
hvaða verknað pilturinn verði
ákærður og því liggi ekki fyrir
hvort hann fái þungan dóm. „Ég
hef í tvígang kært gæsluvarð-
haldsúrskurðina til Hæstaréttar.
Rétturinn hefur hins vegar stað-
fest þá í bæði skiptin.“ Hann gerir
fastlega ráð fyrir að kæra þriðja
gæsluvarðhaldsúrskurðinn í dag.
Staðfesti Hæstiréttur úrskurð
Héraðsdóms Reykjaness frá því á
föstudag verður pilturinn í gæslu-
varðhaldi í rúma fimm mánuði.
Sá sem ráðist var á höfuðkúpu-
brotnaði og fékk slæma skurði á
höfuð, handleggi og hendur. Fjöldi
vitna var að atvikinu.
Lögreglan í Hafnarfirði fer
með rannsókn málsins og neitar
að gefa upplýsingar um það nema
á virkum degi. - gag
Á KVÍABRYGGJU Pilturinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í byrjun október.
Gæsluvarðhald framlengt til 10. mars vegna sveðjuárásar:
Átján ára í haldi án ákæru
THOMAS C. KENNY
Einn af fram-
kvæmdastjórum
Pro Works.
SIGURÐUR ARN-
ALDS Kynningar-
stjóri Kárahnjúka-
virkjunar.
TYRKLAND,AP Muhammet Ozcan,
fimm ára drengur í Tyrklandi
hefur smitast af fuglaflensu. Þetta
staðfestu tyrknesk yfirvöld í gær.
Alls hafa því nítján manns smitast
af þessari banvænu veiru í land-
inu, þar á meðal tólf ára systir
drengins, Fatma, sem lést í gær.
Börnin voru frá bænum Dogu-
bayzit skammt frá Van í austur-
hluta Tyrklands. Voru þau flutt á
sjúkrahús fyrir sex dögum. -fb
Fuglaflensa í Tyrklandi:
Fimm ára
drengur sýktur
KISTAN BORIN Fjölskylda og aðstandendur
hinnar 12 ára Fatma sem lést úr fuglaflensu
bera kistu hennar.
DANMÖRK Dönskum hermönnum í
Afganistan mun fjölga úr hundrað
og sextíu í þrjúhundruð og sextíu
á næstu misserum.
Samkvæmt frétt Politiken í
gær mun stærsti hluti mannafl-
ans vera við störf í suðurhluta
landsins eftir fjölgunina, en þar
er meiri hætta á átökum. Varnar-
málaráðherra Dana fullyrti í nóv-
ember þegar fjölgunin var fyrst
kynnt að meirihluti heraflans yrði
áfram við höfuðborgina Kabúl
en ekki á þeim svæðum þar sem
meiri órói ríkir. - ks
Herafli í Afganistan:
Danir fjölga
hermönnum
LÖGREGLUFRÉTTIR
Blaðamaður frelsaður úr
gíslingu Breskur blaðamaður var
frelsaður úr gíslingu fyrir slysni eftir
áhlaup bandarískra hermanna á sveita-
býli í útjaðri Bagdad. Blaðamanninum,
sem vinnur fyrir dagblað í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum, hafði verið
rænt þann 26. desember en ekki hafði
verið tilkynnt um hvarf hans. Bandarísku
hermennirnir fundu manninn þar sem
hann var keflaður og bundinn og voru
mannræningjarnir handteknir.
ÍRAK
Líkamsárásir í Keflavík
Fimm manns þurftu að leita sér
læknisaðstoðar eftir slagsmál og
líkamsárásir í Keflavík í fyrrinótt.
Einn rotaðist og annar nefbrotnaði.
Mestu átökin urðu um klukkan
sex í gærmorgun fyrir utan einn
skemmtistaðinn en þá þurfti sjö
lögreglumenn til að skakka leikinn.