Fréttablaðið - 16.01.2006, Qupperneq 8
16. janúar 2006 MÁNUDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
09
76
1
/2
00
6
www.urvalutsyn.is
Ferðir í eina og tvær vikur í janúar og
febrúar á hreint ótrúlegu verði.
39.900* kr.
Verð óháð fjölda, þó lágmark 2 í íbúð.
*Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Verð m.v. að bókað sé á netinu.
Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu
bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Skelltu þér í sólina á frábæru verði!
Brottfarir Gistingar í boði
25. jan. og 1. feb. Montemar og Las Camelias.
Fleiri gistingar í boði.
Hafið samband við skrifstofu.
Fáðu ferðatilhögun, nánari upplýsingar um gisti-
staðina og reiknaðu út ferðakostnaðinn á netinu!
Úrval-Útsýn, Lágmúla 4, sími 585 4000
Verð frá:
S U N N U D A G U R
5 D A G A V E Ð U R S P Á F Y R I R G R A N C A N A R I A
18ºC
17ºC
Heiðskírt
M Á N U D A G U R
18ºC
17ºC
Heiðskírt
Þ R I Ð J U D A G U R
18ºC
17ºC
Heiðskírt
M I Ð V I K U D A G U R
19ºC
18ºC
Heiðskírt
F I M M T U D A G U R
19ºC
17ºC
Heiðskírt
ÁSTRALÍA Sex ríki, sem til samans
skila helmingi allra gróðurhúsa-
lofttegunda sem losað er í heim-
inum út í andrúmsloftið, hafa
bundið það fastmælum sín í milli
að fylgja áætlun sem ráðamenn
ríkjanna segja að muni draga úr
útblæstrinum um 30 prósent fram
til ársins 2050. Talsmenn náttúru-
verndarsamtaka halda því aftur á
móti fram að þetta samkomulag
sé innantóm loforð sem einvörð-
ungu komi stórfyrirtækjum til
góða.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum
og Ástralíu hafa heitið samtals
127 milljónum bandaríkjadala,
andvirði um átta milljarða króna,
til stuðnings áætluninni „Asíu-
Kyrrahafs-samstarf um hreina
þróun og loftslag“ (Asia Pacific
Partnership on Clean Develop-
ment and Climate). Auk Banda-
ríkjanna og Ástralíu eiga aðild að
henni tvö fjölmennustu ríki heims,
Kína og Indland, auk Suður-Kóreu
og Japans. Til styttingar kallast
hópurinn AP6.
Samkvæmt áætluninni er gert
ráð fyrir að hvetja til samdráttar í
losun gróðurhúsalofttegunda með
því að ýta undir þróun endurnýj-
anlegra orkugjafa og umhverf-
isvænni leiðir til að nýta kol sem
eldsneyti. Í henni er hins vegar
ekki kveðið á um nein tiltekin
markmið um minni losun þessara
efna.
Því er spáð að Kína og Indland,
þar sem efnahagsþróun er hröð
um þessar mundir, muni marg-
falda orkunotkun á næstu árum
og áratugum.
Orkumálaráðherra Bandaríkj-
anna, Samuel Bodman, segir að
ríkjahópurinn hyggist grípa til
aðgerða gegn hlýnun loftslags á
jörðinni án þess að hamla hagþró-
un. Ástralski utanríkisráðherr-
ann Alexander Downer fullyrðir
að orkusparnaðaraðgerðir og
fjárfestingar í umhverfisvænni
tæknilausnum kunni að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda í
löndunum sex um 30 prósent fram
til miðrar aldarinnar. Hefur ráð-
herrann niðurstöður rannsókna-
skýrslu Landbúnaðar- og auð-
lindahagfræðistofnunar Ástralíu
(ABARE) fyrir sér í þessu, en
skýrslan var birt fyrir helgina.
Talsmenn náttúruverndarsam-
taka andmæla þessum fullyrðing-
um. Greg Bourne, forseti Ástral-
íudeildar Heimsnáttúrusjóðsins,
WWF, segir nær að ætla að áætlun
AP6-hópsins muni leiða til þess að
losun gróðurhúsalofttegunda frá
löndunum sex muni vaxa um 100
prósent á umræddu tímabili. Að
hans mati ber áætlunin vott um
algert ábyrgðarleysi þeirra sem
að henni standa gagnvart hinum
hnattræna vanda sem hlýnun
loftslags af mannavöldum er.
audunn@frettabladid.is
Sameinast
gegn útblæstri
Lönd sem losa helming allra gróðurhúsalofttegunda í
heiminum hafa sameinast um áætlun til að draga úr
losuninni. Innantómt plagg segja umhverfissinnar.
ÁÆTLUN KYNNT John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, kynnir áætlun AP6-ríkjahópsins í
Sydney fyrir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UPPLÝSINGATÆKNI Tæknifyrirtæk-
ið Hive vill meina að fyrirhuguð
einhliða hækkun Símans á samtengi-
gjöldum brjóti í bága við fjarskipta-
lög. Síminn hefur mótmælt ákvörð-
un Póst- og fjarskiptastofnunar um
að hafna hækkun.
„Samtengigjöld sem Síminn
hugðist hækka auka kostnað ann-
arra fjarskiptafyrirtækja við að
senda símaumferð sín á milli,“
segir Hive og telur að Síminn
vilji gera öðrum erfiðara að hefja
símaþjónustu. „Hive telur mjög
brýnt að Póst- og fjarskiptastofnun
standi vörð um hagsmuni almenn-
ings og frjálsa samkeppni,“ segir
Arnþór Halldórsson, hjá Hive. - óká
Hive telur hækkun Símans brjóta í bága við lög:
Gagnrýna Símann
ARNÞÓR HALLDÓRSSON Framkvæmdastjóri
tæknifyrirtækisins Hive.