Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 20

Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 20
[ ] ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir ���������������� ���������� ����������� ������������ �������������� ����� ������ ����������������� ���������� ������������� ������������������������ ����� ����� � � � �� �� �� ��� � ��������������������������������� 534 1300 w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s Hafðu samband og við komum heim til þín Vandað, einfalt og ódýrt Nú stendur yfir sýning á verk- um feðginanna Óskars Lárusar Ágústssonar og Erlu Sólveigar Óskarsdóttur í Hönnunarsafni Íslands. Óskar er húsgagna- smíðameistari en Erla er húsgagnahönnuður og því á orðatiltækið sjaldan fellur eplið langt frá eikinni vel við. Óskar hefur haft hamar við hönd- ina í rúm 70 ár eða allt frá því að hann fékk hefilbekk að gjöf 13 ára gamall. Hann lærði húsgagnasmíði á verkstæði Hjálmars Þorsteins- sonar við Klapparstíg. „Pabbi vildi alltaf að ég færi til Danmerkur að læra. Það vildi ég ekki þó að ég viti nú að þar hefði ég lært miklu meira,“ segir Óskar. Óskar lauk námi 1942 en sveinsstykki hans var forláta skrifborð smíðað úr viði er féll til við innrétt- ingu hátíðasals Háskóla Íslands. Skrifborðið seldi hann síðar fyrir 5.000 kr. sem þóttu miklir peningar þá. Til viðmiðunar festu Óskar og kona hans, Elín Kjartansdóttir, kaup á íbúð í Mávahlíð nokkrum árum síðar fyrir 110.000 kr. Erla útskrifaðist frá Danmarks Design Skole í Kaupmannahöfn 1993. Dan- merkurför hennar reyndist heilla- spor því hún hefur hlotið fjölmörg hönnunarverðlaun bæði hérlendis og erlendis fyrir verk sín. Flagg- skip hennar eru stólarnir Dreki, Jaki og Bessi, en fyrir Jaka hlaut hún meðal annars viðurkenning- una Hönnun ársins 1999. Þó að feðginin vinni á svipuð- um sviðum segist Erla ekki hafa haft það að leiðarljósi er hún valdi sér starfssvið. „Það er ekki fyrr en síðustu ár,“ segir Erla, „sem ég er farin að sjá samhengið milli þess sem ég geri og þess sem pabbi gerði.“ Þessa dagana er Erla að leggja lokahöndina á stól sem á að fara í nýja sendiherrabústaðinn í Róm. „Stóllinn heitir ekki neitt opinber- lega en hingað til hef ég kallað hann Berlínarstólinn og ætli það festist ekki við hann,“ segir Erla. Óskar er langt frá því að leggja hamarinn á hilluna. Í gegnum tíð- ina hefur hann smíðað flest allar frumgerðir að verkum Erlu og gerir það enn. „Ég er svo hæstánægð- ur með að hafa verið smiður. Það er svo skapandi og verk manns endast von úr viti,“ segir Óskar. Sýningin Eplið og eikin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18 í Hönnunar- safni Íslands, Garða- torgi 7 í Garðabæ. Eplið og eikin í Garðabæ Á nýju ári huga margir að breytingum á heimilinu. Hægt er að nálgast teikniforrit á net- inu sem hjálpa til við að hanna þitt eigið eldhús. Ikea, HTH innréttingar og Orms- son bjóða upp á teikniforrit fyrir eldhús á heimasíðum sínu. Það eina sem þarf að gera er að hala niður forritinu. Svo er stærð og lengd rýmisins og gert ráð fyrir gluggum og hurðum. Svo er hægt að raða inn í forritið þeim innrétt- ingum og einingum sem í boði eru hjá verslununum. Einfalt að prenta út teikninguna að draumaeldhús- inu og fara með í búðina sem aftur hjálpar sölumönnum við að fá betri hugmynd um hverju þú leitar að. Í verslunum Ikea má einn- ig finna eins konar púsluspil úr kubbum þar sem hægt að raða upp hugmyndum að skipulagi í eldhúsi á einfaldan hátt. Teikniforritin má sjá á www. gds-hth.dk, www.ikea.is og www. oemsson.is. Teiknaðu eigið eldhús Snjómokstur við hús borgar sig þegar snjór er mikill. Það er betra að gefa sér tíma til þess að moka frá dyrunum heldur en að vaða snjó upp að hnjám í hvert skipti sem farið er út. FEÐGININ ÓSKAR LÁRUSAR ÁGÚSTSSON OG ERLA SÓLVEIG ÓSKARSDÓTTIR Á BEKK SEM ÓSKAR SMÍÐAÐI 1962. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Stóllinn Bessi er hannaður af Erlu en fyrir hann hlaut hún meðal annars verðlaun á World‘s Trade Fair í Chicago 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/FRIÐRIK ÖRN HJALTESTED Auðvelt er að teikna sitt eigið eldhús með teikniforriti og fá þannig betri sýn á það hverju er óskað eftir. Sófi eftir Erlu Sólveigu Óskarsdóttur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.