Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 22

Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 22
 16. janúar 2006 MÁNUDAGUR4 PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is Þegar farið er að huga að viðgerðum á fjölbýlishúsinu, margborgar sig að láta fyrst gera úttekt á nauðsynlegum viðgerðum. Best er að nota veturna í þessar úttektir og eru mörg húsfélög farin að huga að þeim nú þegar. „Núna er rétti tíminn til að láta gera úttekt á fjölbýlishúsum og þó það kosti nú eitthvað, þá má tryggja það að sá kostnaður kemur til baka í betri og ódýrari útboð- um,“ segir Ragnar Gunnarsson. framkvæmdastjóri Verkvangs, verkfræðistofu sem í tvo áratugi hefur sérhæft sig á sviði við- halds eldri fjölbýlishúsa og er einn þeirra aðila sem gera þessar úttektir. Í úttekt skoða sérfræðingar húsið, en skoðun á fjölbýlishúsi með fleiri en 12 íbúðir getur tekið á milli 30 og 40 klukkustundir. Svo fær húsfélagið skýrslu í hendurn- ar sem segir því hvað er a ð húsinu, hvað þarf að gera og hvernig, og hvað það kostar. „ Pen i ng ur - inn sem fer í úttektina er bara s m á p e n i n g u r miðað við þann sem fer í viðgerð- ina. Þetta er grunn- urinn að því að hægt sé að framkvæma viðgerðina eins ódýrt og hægt er og með þeim gæðum sem þurfa að vera, því það er nú alveg nógu slæmt að þurfa að fara út í 30 milljón króna framkvæmdir, en það er agalegt ef þær heppnast ekki,“ segir Ragnar. Flest húsfélög reyna að hafa skýrsluna til- búna fyrir aðal- fundi sem oft eru haldnir á þessum tíma árs. Síðan er skýrsl- an sett í útboðsgögn- in, svo allir verktakarn- ir hafi sömu upplýsingarnar á milli hand- anna þegar þeir bjóða í verkið á vormánuðunum. Þannig full- nýtist sá stutti framkvæmda- tími sem íslenska sumarið gefur verktökum, ef hægt er að komast hjá tímafrekum fundahöldum og samningsviðræðum á vorin og sumrin. „Þú getur fengið fimm verk- taka til að koma og bjóða í við- gerðir á húsinu, og allir gera það af einlægni. Sá sem býður 30 milljónir, hann er kannski með sannvirði, en það yrði aldrei tekið ef einhver annar býður 20 milljón- ir,“ segir Ragnar. Rannsóknir á ástandi mann- virkja og viðhaldsþörf sýna að gera má ráð fyrir því að árlega þurfi að verja einu til tveimur prósentum af byggingarkostnaði húseignar í viðhald. smk@frettabladid.is Undirbúningur viðhalds Það margborgar sig að láta gera úttekt á húsinu áður en viðgerðin á því er boðin út. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Verkvangs. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Vatnsleki, vatnssöfnun og mikill raki innandyra getur leitt til þess að myglublettir og rakaskemmdir verða á heim- ilinu með tilheyrandi gróður- myndun. Geri mygla, fúkkalykt, vatnsblettir eða saggi vart við sig skaltu reyna að komast að því hvar vandamálið á upptök sín. Ef rakaskemmdin er staðbundinn blettur á vegg, gólfi eða lofti er líklega um leka að ræða. Sé rakaskemmdin hins vegar stærri flötur þá getur verið um rakaskemmdir að ræða. Raka- og vatnsskemmdir geta auðveldlega valdið skemmdum á bygginga- verki og eyðilagt málningu og því er mikilvægt er að stöðva vatns- leka sem allra fyrst til að koma í veg fyrir myglu og gróðurvöxt. Vatn smýgur auðveldlega inn í veggi af leku þaki eða lekum grunni. Einnig kemst vatn auð- veldlega inn um illa þétta glugga og hurðar. Vatnsleki og raka- skemmdir geta líka átt uppruna sinn innan veggja heimilisins í pípum og lögnum hússins. Sé lekinn í þakinu er öruggara að fá fagmann til að laga hann. Láttu pípulagningamann fara yfir allar lagnir og eftir að lekinn er stöðv- aður er nauðsynlegt að þurrka svæðið vel. Hátt rakastig innandyra getur verið afleiðing af daglegum athöfnum eins og baðferðum, eldamennsku, þvotti og þurrkun. Nauðsynlegt er að loftræsta vel þau herbergi með viftum sem leiða loftið beint út. Nauðsynlegt er að þrífa loftsíurnar reglulega. Tengi úr þurrkaranum þarf einn- ig að leiða beint út og tryggja að hann leki ekki lofti við inntakið. Best er að láta fagmenn um að laga mygluskemmdir til að tryggja að vandamálið verði ekki varanlegt. Stoppaðu vatns- leka snemma Daglegar athafnir, baðferðir, þvottur og þess háttar geta hækkað rakastig í húsum. Sé illa loftræst gæti það á endanum leitt til rakaskemmda. Pípur og lagnir geta lekið vatni innan veggja. Gerist það myndast staðbundinn blettur á vegg eða lofti. Langtíma vatns- og rakaskemmdir geta valdið varanlegum skaða, myglu, fúkkalykt og gróðurmyndun ef ekkert er að gert. Leki í húsþökum bryjar oftast á því að leiða frá sér út í veggi og skemmdir myndast á þeim. Á endanum getur loftið sjálft farið að leka og eyðilagt innbú og gólefni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.