Eintak - 19.05.1994, Síða 21
hommar og ofbeldismenn. Kven-
fólk verður líka voðalega lauslátt
þegar það verður frægt!“
Þetta var nokkuð fyndið. Það
virðist vera rétt eftir kjaftasögunum
að dæma að frægt fólk sé mjög
lauslátt. Ætli það verði svona við
frægðina eða ætli það verði frægt
vegna þess að það er lauslátt? Æi,
mér kemur það ekki við.
Segðu mér Sigurður, heldur þú að
það sé svipað að vera í hljómsveit í
dag ogfyrir tuttugu árum?
„Það er kannsi erfiðara í dag því
ég held að aðsóknin á tónleikum sé
ekki eins góð og hún var áður fyrr.
Þegar við vorum að spila var svo iit-
ið um að vera í þjóðfélaginu að fólk
gaf sér tíma til að fara á tónleika.
Mér finnst fólk vera hætt að gefa sér
tíma til að hlusta á músik og ég held
að útvarpsstöðvarnar eigi sök á því.
Fólk heyrir músik í útvarpinu allan
daginn og nennir svo ekki að setjast
niður á kvöldin og virkilega pæla í
tónlistinni. Kannski eru einhverjir
sem gera það en það fer þá ekki
mikið fyrir þeim. Smábörnin og
þetta lið sem er hvað geggjaðast í
skemmtanalífmu tekur alla athygl-
ina.“
Hvernig tónlist hlustar þú sjálfur
á?
„Ég hlusta voða lítið á tónlist. Ég
fæ nóg af henni í vinnunni. Þegar
ég er heima set ég stundum klass-
íska tónlist á fóninn til þess að róa
mig eða ná mér í einhverja
stemmningu.“
Siggi segist fá nóg af tónlist í
vinnunni. Hmmm. Ætli fólk Iangi
að vita við hvað hann starfar? Hann
er hljóðmaður og einn færasti upp-
tökumaður á landinu.
„Ég hef verið að þessu alla mína
hundstíð," segir hann þegar ég spyr
hvenær hann hafi byrjað að taka
upp. „Ég var mjög áhugasamur um
tæknistjórnina þegar Stuðmenn og
Spilverkið voru að gera plötur og
var alltaf að fá að fikta eitthvað.
Þannig kom þetta bara smám sam-
an. Það er ekki hægt að læra þetta í
skóla. Þetta lærist bara eins og allt
annað með því að gera nógu mörg
mistök. Þetta er mjög erfitt starf og
það er meira á bakvið þetta en fólk
heldur. Það er ekki nóg að vita
hvernig á að taka upp heldur er
ekki síður nauðsynlegt að vera þol-
inmóður og kunna að peppa fólk
upp. Upptökumaður lendir oft í
því að vera nokkurs konar sálu-
hjálpari tónlistarmannanna og
redda málunum þegar fólk brotnar
niður í stúdíóinu sem kemur mjög
oft fyrir.“
Siggi er þessa dagana að taka upp
plötu með hljómsveitinni Rask sem
hefur meðal annars Sigríði
Guðnadóttur og Begga Mort-
hens innan borðs. Síðan er hann
eitthvað að fikta við að útsetja lög
með Birni Jörundi á væntanlegri
sólóplötu þess síðarnefnda. Siggi
hefur gert dálítið af því að útsetja
lög og semja sjálfúr. Fyrir nokkrum
árum kom út platan Góðir hlutir
gerast hægt sent Siggi gerði ásamt
Pétri Stefáns. Ætlar hann ekki að
fara að koma með eitthvað nýtt?
„Það gæti verið. Það er nóg til af
músik, það vantar ekki.“
Hvernig þykir þér í dag tónlistin
sem þú samdir með Stuðmönnum og
Spilverkinu á sínum tíma?
„Mér finnst sumt af því vera
ágætt en svo er annað sem stenst
engan veginn. Lögin með kornrna-
textunum og öllum predikunum
lifa ekki og það bendir til þess að
þannig predikunaraðferðir séu ekki
mjög gæfulegar í músik."
Þú gerðir samt mikið af því að
predika í tónlistinni.
„Já að vísu predikuðum við ekk-
ert í Stuðmönnum. Spilverkið var
aftur á móti dálítil sósíalistahljóm-
sveit. Það voru allir mjög vinstri
sinnaðir á þessum tíma og hljóm-
sveitin Þokkabót var miklu meiri
kommahljómsveit en við.“
Ertu kommi í dag?
„Nei, ég flokka ekki sjálfan mig
niður. Mér finnst mjög heimsku-
legt að setja sjálfan sig ofan í ein-
hverja skúffu og loka sig þannig af.“
Siggi hefur komið víða við sem
hljóðmaður og engin hætta á að
hann loki sig af í einhverju föstu
starfi frekar en einhverri stjórn-
málastefnu. Á milli þess sem hann
er í upptökuverum eða heima að
semja eitthvað sjálfur er hann
hljóðmaður hjá Þjóðleikhúsinu í
söngleiknum Gauragangur. Hann
átti eitt sinn hluta í Stúdíó Sýrlandi
ásamt nokkrum fyrrum Stuð-
mönnum og Snrekkleysu sm/hf en
það fýrirtæki varð gjaldþrota og
upptökuverið var keypt af Skífunni.
„Mér þykir þróunin í útgáfu-
bransanum vera komin á dálítið
hættulega braut. Þetta er eiginlega
allt komið á sömu hendina og því
verður það dálítið háð persónuleg-
um skoðunum nokkurra manna
hvað er gefið út.“
Langar þig ekkert að reyna fyrir
þér sem hljóðupptökumaður erlend-
is?
„Jú jú. Það gæti verið gott að
skipta um umhverfi og hitta nýtt
fólk. Að vísu er mjög erfitt að kom-
ast áfram erlendis sem hljóðupp-
tökumaður. Ég myndi ckki nenna
því nema hafa eitthvað í bakhönd-
ina svo ég hefði nú eitthvað að
gera.“
Hvað með kvikmyndirnar? Þœtti
þér ekki spennandi að vera hljóð-
maður í kvikmynd?
„Og standa einhvers staðar í
fimmtán stiga frosti og norðan-
garra með kústskaft.-.eiginlega
ekki. Annars á maður ekki að vera
að fordæma neitt sem maður þekk-
ir ekki. Það er bara heimskulegt."
Siggi er elcki í fastri vinnu og hef-
ur því eins og gefur að skilja mis-
jafnlega mikið að gera. Hann hefur
aldrei verið fastráðinn og þekkir því
vel atvinnuóöryggi þess lausráðna.
„Ég held að það sé ágætt að búa
við dálítið óöryggi í starfi. Of mikið
öryggi gerir fólk dálítið sinnulaust.
Það gengur alltaf að sínu og þarf
ekkert að hafa fyrir hlutunum. Lífið
verður eins og þvottavél, fer alltaf
hring eftir hring.“
Fcerðu aldrei samviskubit þegar
það er lítið að gera yfirþví að þú sért
bara að slœpast?
„Nei, þá ligg ég bara í leti og hef
það gott. Þegar það er lítið að gera
verð ég auðvitað að draga saman
seglin. Mér finnst það bara ágætt
svona öðru hvoru. Svo þegar það er
mikið að gera hef ég það mjög gott.
Þetta er voðalega þægilegt líf.“
Langarþig ekkert til að kvænast og
eignast börn?
„Nei, eiginlega ekki. Það er eins
og það sé hvorki tími né ástæður til
að fara að setja sig í stellingar og
stofna fjölskyldu, kaupa hús og
lenda inn í öllu því dæmi. Það er
búið að vera svo mikið skömbó líf á
mér, svona óreglulegt bóhemlíf
sem passar ekki við fjölskyldu-
mynstrið.“
Ég hef aldrei getað vanist því að
kalla Bjóluna neitt annað en Sigga,
hvorki hér í þessu viðtali né nokkur
staðar annars staðar. Afhverju vild-
ir þú heita Bjóla?
„Ég vildi ekkert heita Bjóla. Það
datt bara einhvern tímann upp úr
mér í menntaskóla að ég væri ætt-
aður frá Bjólu á Rangárvöllum.
Valli heyrði þetta og byrjaði að
kalla mig Sigga Bjólu. Svo þegar
ákveðinn fjöldi er farinn að kalla
þig þetta þá byrjarðu að skrifa það.
Þegar þú ferð að taka út úr banka-
bókinni þá skrifarðu allt í einu Sig-
urður Bjóla í staðinn fyrir Sigurður
Garðarsson og setur allt á annan
endann í bankanum."
Það vitafáir hvers son þú ert. Það
þekkir enginn þennan Sigurð Garð-
arsson.
„Nei, það er ágætt. Þegar ég vil
svissa mig út, vera bara nobody, þá
verð ég bara Sigurður Garðarsson.
Sigurður Garðarsson, hvað?“
Trésmiður?
„Já, Sigurður Garðarsson, tré-
smiður.“
Hvers vegna ekki? Hann gæti allt
eins verið trésmiður, þessi maður
sem situr á móti mér og tekur lífinu
af svo mikilli ró.
„Ekki fara að gera mig neitt
merkilegri en ég er,“ segir Siggi
þegar ég kveð hann.
Nei, nei, segi ég og söngla eitt lag
af Spilverksplötunni Island. „Hann
var eitt sinn hippi, í rósóttum kjól,
dararara... lalalalaaa... dídí... “ ©
HEINTAK
Ekki bara einu sinni í viku heldur tvisvar
- á fimmtudags- og mánudagsmorgnum
Við óskum því eftir
sölubörnum tvo daga í viku,
á mánudögum jafnt sem fimmtudögum,
í miðbænum, úthverfunum
og út um allan bæ
Duglegir krakkar
geta unnið sér
inn góðan pening
og verðlaun að auki
Komið og sækið EINTAK
ða fáið það sent heim
m
EINTAK
sturgötu 2
101 Reykjavík
sími 1 68 88
HEILSÁRS SUMARHÚS
Qlæsileg og sérlega vönduð bjálkahús fyrir íslenskar aðstæður.
W Tryggðu þér hús fyrir veturinn. W
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994
21