Tíminn - 03.06.1977, Page 6
6
Föstudagur 3. júni 1977
— Ilræöilfgt veöur er þetta. Éger
viss um aft þið hafiö haldið að
við kæmumst ekki.
— Kyrirgel'ið hvaö ég kem seint,
mér gekk svo illa að fá einhvern
til að passa krakkann.
— Getur þú ekki gengið á svörtu
reitunum?
Nú kemur
Madame Claude
Just Jaeckin, stjórnandi kvikmyndarinn-
ar Emmanuelle, sem allir kannast við, er
nú kominn af stað með nýja kvikmynd,
sem margir biða spenntir eftir. Hún heitir
Madame Claude, og titilhlutverkið leikur
kanadisk stúlka, dökkhærð og kynþokka-
full, sem heitir Dayle Haddon og sést hér á
myndinni með bldmvönd I hendi. Hún var
áður tizkusýningardama og ballettdans-
ari, en hefur smávegis fengizt við kvik-
myndaleik áður, t.d. I einni Disneymynd
og í súrrealiskri kvikmynd sem kölluð var
Spermula. í þessari kvikmynd Jaeckins
eru fleirifallegar stúlkur og sjáum við hér
mynd úr einu æsilegu atriði þar sem gusu-
gangur og vatnselgur er mikill, svo þær
fáu flikur, sem þær bera limast við kropp-
inn.
Ef myndin,,slær i gegn” eins og sagt er,
þá má búast við að Dayle Haddon verði
ein frægust kvenna á árinu 1977. Menn
minnast þess, að kvikmyndin Emmanu-
elle fékk ekki góða dóma hjá gagnrýnend-
um og Sylvia Kristel þótti leika heldur við-
vaningslega, en hún hafði til að bera
geysilegan kynþokka, svo að hún er sögð
ein af þeim frægustu ,,sex-bombum” i
heiminum, og Emmanuelle gaf svo góðan
pening i kassann, að mynd nr. 2 var fram-
leidd i skyndi. Farið er að tala um stjórn-
andann Just Jaeckin sem nýjan Roger
Vadim i kvikmyndaheiminum, en Roger
tók oft óþekktar stúlkur og kom þeim á
framfæri og gerði þær frægar á stuttum
tima. Sú fyrsta, sem hann kom i frægðar-
ljómann, var Brigitte Bardot, en síðan
komu aðrar á eftir.
X Fyrir ári siðan tókst Dreka að ná
glæpamönnunum, sem reyndu
að myrða Goranda forseta