Tíminn - 11.06.1977, Síða 3

Tíminn - 11.06.1977, Síða 3
Laugardagur 11 júnl 1977 3 Tímamyndir: Gunnar Tvær geröir af „ponsjóum” útfæröir á mismunandi vegu. Oft eru sérkennileg og skemmtileg mynztur, sem koma fram I handprjónuðum sjölum eins og þessu hérna á myndinni. Það þarf enginn aö óttast norðangarrann i skinnjökkum sem þessum. tsienzku lopapeysurnar njóta alltaf mikilla vinsælda. Þær eru mjög breytilegar hvað mynztur snertir, enda margar konur, með ólfkar hugmyndir, sem aö þeim vinna. Þær eru tii jafnt á fullorðna sem börn. Skartgripirnir á sýningunni eru eftir Jens Guöjónsson. Þetta eru allt nýtizku skartgripir, hálsmen, hringir og armbönd, og eins og sést á myndinni eru þeir stórir og áberandi, en Jens sækir hug- myndir sinar mikið i islenzk náttúrufyrirbæri. Jakkinn, sem stúlkan sýnir á þessari mynd, er úr handofnum dúk, I ljósum lit með dökku mynztri. Sýningarstúlkur úr Módelsamtökunum i kjólum frá vefstofu Guörúnar Vigfúsdóttur á tsafiröi. Konan sem situr viö rokkinn er Sigrún Stefánsdóttir, fyrsti framkvæmdastjóri islenzks heimilis- iðnaðar, sem stofnaöur var 1951. A þeim tima átti heimiiisiönaður erfitt uppdráttar i landinu og átti Sigrún stóran þátt i aö efla hann. Nú eru heimilisiðnaðarvörur orðnar veigamikiil þáttur i út- flutningi okkar. tslenzku ullarnærfötin hafa fyr- ir löngu hlotið viðurkenningu þeirra, sem útilif stunda og þýkja ómissandi i köldu veöri.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.