Tíminn - 11.06.1977, Blaðsíða 5
Laugardagur 11 júní 1977
5
á víðavangi
„Smá
leiksýning’5
1 Alþýöublaðinu vár nú á
dögunum i neðanmálsgrein
fjargviðrazt yfir þvl að
byggðastefna Framsóknar-
flokksins sé „öfgakennd” og
að hún mótist af „andstöðu við
R-eykjavikurborg”. Þennan
söng hafa menn heyrt áður.
Hann hefur verið sunginn i si-
bylju. En almenningur veit að
sungið er falskt og laglaust,
enda hefur fyigi Framsóknar-
flokksins aukizt mjög á höfuð-
borgarsvæðinu frá þvi sem
áður var.
Hið sanna er að byggða-
stefna Framsóknarflokksins
er róttæk og að hún mótast, að
þvi leyti sem hún snertir
höfuðborgina, af andstöðu við
borgarstjórnarihaldið. Hins
vegar hefur Alþýðuflokkurinn
mótað afstöðu sina til
byggðamála um langt skeið á
grundvelli andstöðu gegn
þörfum og nauðsyn þjóðar-
innar fyrir öfluga og fjöl-
breytta landbúnaðarfram-
leiðslu.
Enn segir Alþýðublaðið i
þessari grein:
Jafnvel Reykjavikurþing-
maður Framsóknarflokksins,
Þórarinn Þórarinsson,
HEFUR EKKI RÆNU A AÐ
SETJA UPP SMA LEIKSÝN-
INGU TIL ÞESS AÐ SANN-
FÆRA borgarbúa um að hann
hafi áhuga á þvi að efla at-
vinnulif borgarinnar”,
Ætlast Alþýðuflokkurinn til
þess að blað hans sé tekið
alvarlega? Miðast stefna
flokksins i raun og veru við
„smá leiksýningar til þess að
sannfæra” almenning f land-
inu?
Hitt er rétt að fáir hafa
unnið meira en Þórarinn
Þórarinsson að þvi að bæta
aöstöðu iðnaðarins i Reykja-
vik með málflutningi og til-
lögugerð á. Alþingi. Fram-
sóknarmenn hafa nefnilega
rænu á þvi að setja ekki upp
neinar pólitiskar leiksýningar.
Stefna þeirra miðast við fram-
för þjóðarinnar allrar og
landsins alls. Byggðastefna
Framsóknarflokksins, sem
aðrir reyna nú að eigna sér af
veikum burðum, miðast við
hagsæld i heimabyggðum
fólksins, jafnrétti hvort sem
menn búa á höfuðborgar-
svæðinu eða úti um land og við
öfluga og fjölbreytta eigin
framleiðslu lifsnauðsynjanna i
landinu sjálfu.
Hver er þjáður?
Vilmundur Gylfason og Jón
G. Sólnes taka heldur en ekki
sprettinn i Dagblaðinu nú fyrir
skemmstu.Um Vilmund segir
Jón:
„Mér hafa fundizt öll skrif
Vilmundar vera á þann veg að
eiginlega dæmdu þau sig sjálf
og væru þvi ekki svaraverð og
þvi hefi ég ekki hirt um að
gera honum það til geðs að
vera að standa i þvi að svara
þeim þvættingi sem hann
hefur oftlega verið að bera á
borð fyrir lesendur blaðsins."
Enn fremur segir Jón:
„Finnst mér hvila sú siðferði-
lega skylda á Dagblaðs-
mönnum að sjá svo til að Vil-
mundur Gylfason sé ekki
þjáður af likamlegri eða and-
legri ormasýki”.
Það er með öðrum orðum
svo komið að flokksbræður
Jónasar K rist jáns sona r,
landsfundarfulltrúa ihaldsins
og ritstjóra, verða að minna
hann á siðferðilegar skyldur.
Þykir víst fáum mikið, og
þótt fyrr hefði verið.
En Vilmundi þykir þetta
engum tiðindum gegna.
Honum er mest i mun að „Jón
G. Sólnes lærði að skammast
sin”.
Einhvern tima var eitthvaö
talað um flisina i auga náung-
ans og bjálkann i eigin auga.
J.S.
Ritari
Óskum að ráða ritara hluta úr degi.
Reynsla i hraðritun og kunnátta i ensku og
þýzku æskileg.
Samvinnuferðir
Austurstræti 12, Reykjavik, simi 27077.
EINS ÁRS ÁBYRGÐ
Við tökum nú eins árs ábyrgð á hinum
þekktu Grohe blöndunartækjum — sem
keypt eru hjá okkur.
Fjórða hvert blöndunartæki sem selt er i
Evrópu er frá Grohe.
Grohe = vatn + velliðan.
Lokun sjúkradeilda algert neyðar-
úrræði — segir stjórn Hjúkrunarfélags íslands
BYGGINGAVÚRUVERZLUN
BYKO
w K0PAV0GS SÍMI 410 00
AÐ undanförnu hafa umræöur
oröiðum þann vanda sem er fyrir
dyrum i sjúkrahúsum vegna þess
hve fáir hjúkrunarfræöingar eru
fyrir hendi. í fréttatilkynningu
frá stjórn Hjúkrunarfélags Is-
lands kemur fram aö ástæöur
þessa eru þær aö mati félagsins,
aö vinnuálag er óeölilega mikiö,
vinnutlmi óhagkvæmur og siöast
en ekki sizt er starfið vanmetiö til
launa. Er þaö meginástæöa þess
aö u.þ.b. þriöjungur starfandi
hjúkrunarfræöinga sagði lausu
starfi á fyrra hluta þessa árs.
Stjórn Hjúkrunarfélags tslands
telur lokun sjúkradeilda algert
neyöarúrræöi, en þaö miöi þó aö
þvi aö unnt veröi að veita sjúk-
lingum þá þjónustu og aðhlynn-
ingu sem þeir eiga rétt á.
IÐNKYNNING
Á SELFOSSI
NÆSTU VIKU
Dagana 13. — 20. júni fer fram veröa: Bragi Hannesson,
iðnkynning á Selfossi. Frá 13. bankastjóri, Óli Þ. Guöbjarts-
júni verða islenzkar iðnaðar-
vörur kynntar I verzlunum á
Selfossi en fimmtudaginn 16.
júni, sem nefndur er „Dagur
iðnaðarins”, verður opnuð sýn-
ing I gagnfræðaskóla Selfoss.
Þarmunu 25 fyrirtæki á Selfossi
kynna framleiðslu sina og þjón-
ustu. A sýningunni I gagnfræða-
skólanum verða seldar veiting-
ar frá fyrirtækjum á Selfossi.
Sýningunni lýkur á sunnudags-
kvöld.
Iönaöarráöherra, dr. Gunnar
Thoroddsen, og frú Vala
Asgeirsdóttir Thoroddsen,
heimsækja Selfoss af þessu
tilefni ásamt ýmsum forystu-
mönnum islenzks iönaöar.
Munu gestirnir skoöa nokkur
fyrirtæki á staönum árdegis á
fimmtudag.
Viö opnun sýningarinnar á
Selfossi kl. 13:30 mun Guö-
mundur Jónsson skósmiður
flytja ávarp. Kl. 14:00 hefst
fundur I Selfossbió um iðnaðar-
mál. Þar mun iönaöarráöherra
flytja ávarp en ræöumenn
son oddviti og Einar Eliasson
framkvæmdastjóri. Fundar-
stjóri er Haukur Glslason ljós-
myndari. Aö framsöguræöum
loknum veröa almennar um-
ræöur og fyrirspurnir. Fundur-
inn er öllum opinn.
I tilefni iönkynningarinnar
veröur gefin út Iönskrá Selfoss.
Þar er aö finna upplýsingar um
iönfyrirtæki og iönmeistara.
Skránni veröur dreift i öll hús á
Selfossi.
Sú nýbreytni verður tekin upp á
iönkynningunni á Selfossi, aö
veita viöurkenningu til iönfyrir-
tækja fyrir snyrtimennsku og
góöa umgengni á athafnasvæði,
Hefur Junior Chamber kiúbbur-
inn á Selfossi gefið farandbikar,
sem afhentur verður i fyrsta
sinn á „Degi iðnaðarins”
fimmtudaginn 16. júni.
Iðnkynningarneínd Selfoss
skipa: Þorsteinn Sigurösson
formaður, Eggert Jóhannesson
ogStefán A. Magnússon. Fram-
kvæmdastjóri nefndarinnar er
Sigurður Jónsson.
VAUXHALL
BEDFORD
nýtt útlit-nýrog betri bíll
Nýi smábíllinn frá GM er meistaralegt jafnvægi fjölskyldnbils og sportbíls. Mikið rými og þægindi,
mikió afl mióaó við þunga, samfara ótrúlegri sparneytni. Snöggur, hljóðlátur, öruggur.
Hagstætt verð. Til afgreiðslu strax.
KllSfH /S Véladeild
1^1 550 Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Sími 38900.