Tíminn - 17.06.1977, Síða 13

Tíminn - 17.06.1977, Síða 13
Föstudagur 17. júni 1977 ;tí liiinii1.1 13 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindar- götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500 —afgreiðslusimi 12323 —auglýsingasimi 19523. Verð I iausasölu kr. 70.00. Askriftargjaid kr. 1.300.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Hvarvetna biða verkefnin Á þjóðhátiðardegi er jafnan ástæða til að staldra við og láta dægurmáladeilur liggja kyrr- ar um stund. Lýðræðisleg stjórnskipan gerir ráð fyrir innbyrðis deilum og viðurkennir mismun- andi hagsmuni. Lýðræðisþjóðfélagið er i sifelldri mótun og undirorpið stöðugum umdeildum til- raunum. Hins vegar er þvi ekki að leyna að á stundum er eins og það gefi deiluefnunum óhæfi- lega mikið rúm, svo að hinn sameiginlegi arfur og hin sameiginlegu framtiðarmarkmið vilja fallai skuggann. Þjóðhátiðardagurinn er ekki að- eins hátið og skemmtun, heldur er hann jafn- framt áminning um að gleyma ekki þeirri undir- stöðu, þeim rótum sem allt þjóðlif i landinu sprettur af. Og hann er hvatning til að huga að þeim sameiginlega lifsanda sem gróandi þjóðlif framtiðar mun nærast af. Það sem flestum er efst i hug i dag er sú þjóð- hátiðargjöf að nú virðast almennir kjarasamn- ingar loks i sjónmáli. Meginniðurstöður hafa þeg- ar fengizt, og verður þvi ekki trúað að óreyndu að sérkröfur einstakra félaga, sem enn eru óleystar, geti orðið til þess að hindra lausn mála nú á næstu dögum. Það er margt sem læra má af þeim samninga- viðræðum, sem átt hafa sér stað að undan förnu —og af þeim samningum sem nú eru i vændum. í fyrsta lagi er ljóst að það er unnt að ná fram kjarabótum án mikilla langvarandi vinnustöðv- ana. Það er i öðru lagi unnt með sameiginlegu átaki að bæta aðstöðu þeirra sem minnst mega sin i þjóðfélaginu, og i þriðja lagi er unnt að standa vörð um vinnufrið og framleiðslu i þjóð- félaginu til langframa og styrkja þannig þá undirstöðu sem lifskjörin hvila á. Þetta eru mikilvægir lærdómar, sem ekki er að efa að launamenn munu hafa hugfasta, enda eiga þeir mestra hagsmuna að gæta. Atburðarásin að undanförnu sýnir einnig hve mikils virði það er að einhverjir aðilar séu fyrir hendi, sem megna að höggva á hnútinn þegar samningaþófið virðist komið i sjálfheldu. Að sönnu vildu sumir nota kjaramálin til þess að valda upplausn i þjóðfélaginu og ná með þvi póli- tiskum markmiðum. Þessar tilraunir mistókust. Samningaþófið sýndi greinilega, að frumkvæðið til lausnar verður að koma frá öðrum aðiljum en þeim flokkspólitisku öflum, sem hafa hreiðrað um sig og vilja láta hagsmuni alþýðunnar lúta sinum vilja. Enda þótt hjá þvi verði ekki komizt að væntan- legir samningar hafi sin áhrif á verðbólguþróun- ina, er það mikilvægur sigur fyrir alla þjóðina að vinnufriður verði tryggður i landinu til ársloka 1978. Staða rikisstjórnarinnar hefur styrkzt mjög við þá niðurstöðu sem virðist á næsta leiti, enda hefur frumkvæði hennar með skipun sáttanefnd- ar visað veginn. Og reyndar getur verkalýðs- hreyfingin einnig eflzt, ef hún ber gæfu til að draga réttar ályktanir af þeim atburðum sem hafa átt sér stað. Það sem mestu skiptir er auðvitað það, að þjóð- in öll stendur sameinaðari og styrkari ef samn- ingar takast nú á næstu dögum og komizt verður hjá frekari stéttaátökum. Hvarvetna biða verk- efnin vinnufúsra handa til þess að halda óhikandi áfram framsókn islenzku þjóðarinnar. Fólksfj ölgunarvanda- málið er leysanlegt t»ví veldur aukinn skilningur A UNDANFÖRNUM árum hefur aukizt mjög áhugi ráða- manna svo og annars fólks á vandamáli mannfjölgunarinn- ar. Það eru ekki mörg ár sið- an, að menn héldu að litið sem ekkert væri hægt að gera til að sporna við mannfjölgun- inni, en þess i stað voru ein- ungis birtar tölur um hina ó- trúlegu mannfjölgun sem framundan væri. I dag eru menn þó ekki eins svartsýnir, enda margt komið upp, sem bendir til að þróunin verði ekki eins og búizt hafði verið við. Fræði þau sem fjalla um mannfjölgunarmál hafa þró- azt og sem dæmi um það má nefna, að margir erlendir há- skólar bjóða nemendum sin- um upp á valfög eins og t.d. tölfræðilegar mannfjölgunar- rannsóknir. Slikar rannsóknir hafa I fyrsta lagi gert mönnum kleift að skilja mun betur hegðun mannfjölgunar I hin- um ýmsu þjóðfélögum, en einnig er nú orðið hægt að koma fram með einhverjar raunhæfar úrbætur til að draga úr mannfjölguninni. ÞAÐ ER SAGT að þjóðfélög fari gegnum þrjú aðskilin stig i þróunarsögu sinni með tilliti til fólksfjölgunar. I fyrsta lagi áður en iðnvæðingin kom til sögunnar, þá voru fæðingar örar og svo voru einnig dauðs- föll, þannig að heildarfólks- fjölgunin var litil. Stundum fjölgaði og stundum fækkaði. En með iðnbyltingunni gekk i garð annað stigið, og það var þegar öll heilsugæzla stór- batnaði og dauðsföll urðu hlut- fallslega færri en áður. Þar sem fæðingarhlutfallið hélt á- fram að vera hátt, þá fjölgaði þegnum slikra þjóðfélaga ört. Þriðja stigið er svo tiltölu- lega nýkomið til sögunnar, og er hér átt við það ástand sem rikir víðsvegar i hinum vest- ræna heimi, svo sem i Sviþjóð og i Bretlandi, en þar er ekki einungis lágt dauðsfall heldur einnig fáar fæðingar og jafn- vel svo að þessum þjóðum hef- ur raunverulega fækkað á undanförnum árum. EF ÞAÐ ER miðað við þessa skiptingu, þá má segja að vandamálið sé hve fáar þjóðir tilheyri siðasta hópnum, en miðað við þau riki, sem eru i honum I dag, þá tekur það um 150 ár að komast i gegnum annað stigið. Flest þróunar- landanna eru sögð vera á öðru stiginu, sem þýðir i raun að fólksfjölgunin hægir ekki á sér eða stöðvast fyrr en um 16 þúsund milljónir búa á jarð- kringlu okkar — f jórum sinn- um meir en i dag. Hvernig á þá að flýta þess- ari þróun er þvi greinilega grundvallarspurning. Vitan- lega er hér um að ræða allvið- kvæmt stjórnmálalegt vanda- mál, og það bæði i þróunar- rikjunumog þróuðu rikjunum. Hlutverk hinna siðarnefndu rikja hlýtur og ætti að felast i viðtækri efnahagsaðstoð við fyrrnefnda rikjahópinn. Þar hefur þó orðið allmikill mis- brestur á, þvi svo virðist sem hinir vanþróuðu séu i raun þeir sem styrkja — en ekki öf- ugt. Til að mynda fer gifurlegt fjármagn til hinna riku iðn- velda Vesturlanda fyrir kaup á vígvélum og drápstækjum. Þá og þykir mörgum vestræn- um auðhringum gott að fjár- festa i hinum „viðráðanlegri” þróunarlöndum. Sennilega er þó skilningur ráðamanna á Vesturlöndum að aukast, svo og vilji til að aðstoða þróunar- löndin. Hlutverk rikisstjórna hinna vanþróuðu rikja er bæði erfitt og viðkvæmt. Andstaða gegn ófrjósemisaðgerðum hefur færzt i aukana eftir að upp komst um hrakfarir þeirrar aðgerðar á Indlandi, en sem betur fer er ófrjósemisaðgerð- in ekki eina úræðið. Með langtimasjónarmið i huga eru umbætur i mennta- málum liklegastar til að gefa af sér árangur og þá sérstak- lega ef möguleikar kvenkyns- ins til að mennta sig eru aukn- ir. Skólaganga stúlkna veldur þvi að þær gifta sig seinna, þær komast út úr þvi hefð- bundna andrúmslofti, að hlut- verk þeirra sé að þvo upp og ala börn, og þær fá skilning á nauðsyn fjölskylduáætlana. Reynslan hefur sýnt, að fæð- ingarhlutfall stórlækkar meö minnkandi barnadauða, þvi löngun fjölda fjölskyldna i vanþróuðu rikjunum byggist oft á þvi að þær vilja eignast heilbrigð börn, sem seinna geti haldið uppi öldruðum for eldrum sinum. Viðtæk heil- brigðishjálp við ungbörn hefur þó á einhvern hátt farizt fyrir. Veigamikið atriði er svo að breyta stöðu konunnar i þjóð- félaginu, og það gæti flestar rikisstjórnir gert án mikils erfiðis. Viðast hvar i þróunar- löndunum kemur konan alltaf siðast — á eftir bæöi karl- mönnunum og börnunum. Þær vinna lengstan vinnudaginn og fá siðasta bitann. Vinnuþjak- aðar mæður fæða heilsulitil börn og hafa litinn tima til að sinna þeim i ungdómisem sið- ar. Yrði stöðu konunnar i þjóð- félaginu breytt i átt til jafn- ræðis við karlmanninn, þá er vist að margt myndi færast i átt til betri vegar. Þátttaka þeirra í atvinnulifi utan heim- ilis hefur að minnsta kosti tvenns konar afleiðingar. Þær eignast færri börn og þær verða mikilvægari afl i þjóðfé- laginu, þ.e. þeirra yrði meir þarfnazt. 1 dag vill fjölskyld- an, að móðirin fæði frekar son en dóttur. Fæðist stúlka, þá þýðir það að önnur fæðing verður að fylgja i kjölfarið i þeirri von að það verði dreng- ur. Með breyttri stöðu konunn- ar þá féllu slikar röksemdir um sjálfar sig. VANDAMAL fólksfjölgunar- innar er ekki eins geigvænlegt i dag og það varfyrir nokkrum árum, en þó ekki vegna þess að það sé ekki enn fyrir hendi, heldur vegna þess að menn hafa öðlazt mun meiri og betri skilning á vandamálinu en áö- ur. Lausn þess verður þó ekki fengin nema með viðtækri aö- stoð hinna auðugri rikja, sem aftur á móti fæst sennilega aldrei á raunhæfum grund- velli fyrr en mönnum hefur skilizt, að þeir eru ekki ein- ungis að hjálpa Ibúum vanþró- uðu landanna heldur einnig sjálfum sér. MÓL tók saman

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.