Tíminn - 17.06.1977, Page 17
Föstudagur 17. júni 1977
17
14.00 óskastund þjdöarinnar.
Þáttur, sem Silja Aöal-
steinsdóttir sér um.
15.00 islenzk tónlist.a. ,,Sam-
stæöur”, kammerdjazz eftir
Gunnar Reyni Sveinsson,
Jósef Magnússon, Gunnar
Ormslev, örn Ármannsson,
Reynir Sigurösson, Jón Sig-
urösson og Guömundur
Steingrlmsson leika. b. Lög
eftir Sigfús Halldórsson og
Oddgeir Kristjánsson. Sin-
fóniuhljómsveit íslands
leikur, Páll P. Pálsson
stjórnar.
16.00 Fréttir. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.25 Barnatimi: Guöbjörg
Þórisdóttir og Arni Biandon
stjórna.Hvernig liöur börn-
unum og Búkollu á vorin?
Flutt ýmislegt efni um vor-
iö. Einnig syngur telpnakór
Breiöageröisskóla. Stjórn-
andi: Þorvaldur Björnsson.
17.15 Sagnameistari I Mýrdal.
Dagskrá um Eyjólf Guö-
mundsson á Hvoli, tekin
saman af Jóni R. Hjálmars-
syni. Lesarar meö Jóni:
Albert Jóhannsson og Þórö-
ur Tómasson. — Áöur útv.
1971.
18.00 Stundarkorn meö Birni
Ólafssyni fiöluleikara. Til-
kynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Á Bessastööum. Guöjón
Friöriksson blaöamaöur
gengur um staöinn meö Sig-
uröi Thoroddsen verkfræö-
ingi.
20.00 Sinfónluhljómsveit ls-
lands leikur I útvarpssal
Serenööu fyrir strengi I
C-dýr op. 48 eftir Tsjaikov-
ský. Stjórnandi: Geörgy
Pauk.
20.30 Astandskrafan. Þanka-
brot um atvinnumál I umsjá
Eggerts Jónssonar hag-
fræöings.
21.30 Frá afmælistónleikum
Skólahljómsveitar Kópa-
vogsi Háskólabiói i marz sl.
Stjórnandi: Björn Guöjóns-
son. Kynnir: Jón Múli Arna-
son.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
þ.á.m. leikur hljómsveit
ólafs Gauks I hálfa klukku-
stund.
(23.55 Fréttir)
01.00 Dagskrárlok.
sjónvarp
20.00 Fréttir, veöur og dag-
skrárkynning.
20.20 Þjóöhátföarávarp for-
sætisrá öherra , Geirs
Hallgrlmssonar.
20.30 Heimsókn til Hafnar um
lokin. A þessu vori eru liöin
80 ár frá þvi aö fyrsta
ibúöarhúsiö var reist á Höfn
I Hornafiröi og Papósversl-
un var flutt þangaö. Nú eru
ibúar þar hátt á þrettánda
hundrað, og mikil gróska er
I atvinnullfi. Sjónvarps-
menn heimsóttu Höfn um
vertlöarlokin I vor. Umsjón
Magnús Bjarnfreösson.
Kvikmyndun Sigurliöi
Guðmundsson. Hljóö Jón
Arason, Klipping Isidór
Hermannsson.
21.15 Maöur og kona Alþýðu-
sjónleikur, saminn af Emil
Thoroddsen og Indriöa
Waage eftir skáldsögu Jóns
Thoroddsens. Leikritið er
hér nokkuö stytt. Leikstjóri
og sögumaður Jón Sigur-
björnsson. Leikendur:
Brynjólfur Jóhannesson,
Inga Þóröardóttir, Sigrlöur
Hagalín, Valgeröur Dan,
Þorsteinn Gunnarsson,
Valdimar Helgason, Stein-
dór Hjörleifsson, Kjartan
Ragnarsson, Borgar Garö-
arsson Jón Aöils, Margrét
Magnúsdóttir, Guömundur
Erlendsson og Guömundur
Magnússon. Slöast á dag-
skrá 19. aprfl 1970.
22.45 Dagskrárlok.
framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan
Frú Harris fer
til Parísar @
eftir PaaTGallico
Hún sá aftur fyrir sér hina skilningsríku og kvenlegu
f rú Colbert, með dökka, vel snyrta hárið og fallegu húð-
ina og Natösju hina fögru, sem alltaf hló, ásamt Fauvel,
alvarlegum og hugsandi á svip, sem hafði á einum degi
breytzt úr reiknivél í mann og elskhuga.
Fleiri myndir komu fram í hugann. Andartak sá hún
hrukkuð enni saumakvennanna og einbeitingarsvip
þeirra, þegar þær lágu á hnjánum við fætur henni með
f ullan munninn af títuprjónum. Hún fann næstum þykkt,
gráttgólfteppið undir fótum sínum og andaði að sér sæt-
um, notalegum ilminum, sem lá í loftinu í Dior-bygging-
unni.
Aftur heyrði hún háværar raddir meðan verið var að
sýna fötin í salnum og þangað var hún nú aftur komin
með tárvot augun og horfði á hverja sýningardömuna á
fætur annarri í fegurstu kjólum, drögtum og loðfeldum
koma trítlandi, liðandi eða stikandi inn á sviðið — þrjú
skref og snúningur — þrjú skref aftur og snúa við — og
síðan var minkasláið eða dökka silkikápan tekin af og
látin dragast yf ir teppið — kastað til höf ðinu og snúið við
aftur, áður en sú næsta kom inn.
Þaðan var ekki langt i mátunarherbergið, sem var eins
og býkúpa, heimur kvenna með andrúmslofti, sem var
dásamlegt sambland af silkiskrjáfi, ilmvatni af öllum
tegundum og ráðagerðum saumakvennanna í lágum
hljóðum, rétt eins og býflugnasuð. Oðru hverju heyrðist
hlegið bak við tjöldin í klefunum.
Síðan sat hún í sólskininu undir fagurbláum himni, á
bekk á blómatorginu, umlukin tízkuframleiðslu sjálfrar
náttúrunnar, blómum í dæmalausum litum og við hlið
hennar sat virðulegur roskinn aðalsmaður, sem hafði
skilið hana og komið f ram við hana eins og jaf ningja.
En fólkið, sem hún hafði kynnzt, vék ekki úr huga
hennar og hún minntist svipsins á andlitum Natösju og
Andrés, þegar þau föðmuðu hana að sér kvöldið góða i
„Pré-Catalan” og henni fannst hún aftur finna hlýtt
faðmlag frú Colbert, þegar hún kyssti hana í kveðju-
skyni og sagði: — Þér haf ið sannarlega fært mér gæf u....
Frú Harris einbeitti hugsunum sínum að f rú Colbert og
minntist þess, hvernig þessi franska kona hafði brotið
reglur til að hjálpa henni til að láta ósk sína rætast, þessa
heimskulegu ósk um að eignast Dior-kjól. Ef hún hefði
ekki hjálpað henni, hefði kjóllinn aldrei komizt alla leið
heim. Og frú Harris hugsaði með sér, að ef vill væri
hægt að gera við ,,f reistinguna". Það yrði nóg að skrifa
frú Colbert, sem siðan mundi senda eina perlusaumaða
ræmu til baka. Dugleg saumakona gæti sett hana á sinn
stað á kjólnum, svo hann yrði jaf n góður og nýr. Og þó,
yrði hann nokkurn tíma sá sami?
Þessi skyndilega spurning hafði undarleg áhrif á frú
Harris. Hun stöðvaði táraf lóðið og reisti hana á fætur og
þegar hún leit í kring um sig í blómaha-f inu, kom svarið
til hennar rétt eins og opinberun.
Nei, hann yrði það ekki. Hann yrði aldrei samur.
En hún vildi það heldur ekki sjálf.
Það hafði nefnilega ekki endilega verið kjóllinn, sem
hún hafði keypt, heldur reynslan og ævintýrið, sem hún
átti til æviloka. Henni fyndist hún aldrei framar ein-
mana og óþörf. Hún hafði árætt að fara til ókunnugs
lands og hitt f ólk, sem henni haf ði verið sagt að væri lítil-
mótlegt og óheiðarlegt. I Ijós hafði komið, að þetta var
hlýtt og manneskjulegt fólk, konur og karlar og ástin og
skilningurinn var driffjöður lífs þess. Þau höfðu látið
hana f inna, að þeim þótti vænt um hana hennar sjálfrar
vegna.
Frú Harris opnaði töskuna og tók ,,f reistinguna" upp.
Hún snerti aftur við skemmdunum og sá, að auðvelt var
aðfella þar inn nýtt stykki og gera við. En hún vildi ekki
láta gera það. Hún vildi eiga hann eins og hann var,
ósnertan af öðrum höndum en þeim, sem höfðu f lýtt sér
svo mjög með hvert nálspor aðeins af samúð og skiiningi
á hjarta annarrar konu.
Frú Harris þrýsti kjólnum að innföllnu brjósti sínu,
rétt eins og hann væri lifandi, mannleg vera. Tárin
streymdu aftur úr litlu, vökulu augunum og niður hrukk-
óttu eplakinnarnar, en það voru ekki lengur sorgartár.
Hún stóð þarna og vaggaði sér f ram og aftur með kjól-
inn í fanginu og með.honum faðmaði hún þau öll, f rú Col-
bert, Natösju og Andre, allar saumakonurnar, gamla
aðalsmanninnog borgina þeirra, sem hafði fært henni o-
metanlegar minningar um skilning, vináttu oq mann-
legt eðli.
Endir.
„Dökku skýin eru þau sem eru
full og eru aö koma, þau ljósu eru
tóm og eru aö fara.”
DENNI
DÆMALAUSI
JBSpíl BiLA-
parta.
SALAN
auglýsir
Nýkomnir varahlutir í:
Peugeot 404 '66
Fíat 125 '71
Fíat 124 '67
Moskvitch 72
Ford Falcon '63
Taunus 17 m '66
Landrover '66 disel
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97
Auglýsið í Tímanum